08.03.1978
Neðri deild: 65. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)

206. mál, Lífeyrissjóður barnakennara

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Virðulegi forseti. Ef það leikur vafi á því hvernig ber að skilja þetta með tilliti til laga frá því í des., sem hv. 2. landsk. þm. benti á, þá tel ég rétt og vil mælast til þess, að n. athugi á milli 2. og 3. umr., hvort ástæða væri til að breyta þeim texta, sem hér er. Þá yrði að bæta við 2. tl. 1. gr. Þar sem talað er um ávöxtun í skuldabréfum, sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs, væri hægt að bæta úr með viðbótarsetningu. Ég tel rétt að það atriði verði athugað milli 2. og 3. umr.