08.03.1978
Neðri deild: 65. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

206. mál, Lífeyrissjóður barnakennara

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Ég ítreka það að ég er samþykkur grundvallaratriðum þessara frv. og sammála því, að svo langt sem frv. ná sé rétt hjá hv. 8. þm. Reykv., að ákvæðin auðvelda fólki að nota fé það sem sjóðirnir hafa til útlána. Þegar talað er um að auðvelda fólkinu að nota fé lífeyrissjóðanna, þá skiptir auðvitað miklu máli, hvort það er 60% eða 100% sem sjóðsstjórnirnar hafa til ráðstöfunar.

Það var kannske skyssa að benda á þetta núna, en ég er viss um að það hefði getað orðið deilumál eftir á, því að það leyndi sér ekki að hæstv. fjmrh. heldur svipunni á lofti. En það er til bóta að það verði litið á þetta atriði.