08.03.1978
Neðri deild: 65. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2825 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

62. mál, grunnskólar

Gunnlaugur Finnsson :

Virðulegi forseti. Ég sé ástæðu til þess að ræða þetta mál lítillega áður en hv. d. afgreiðir það. Ég tel raunar vera skylt að benda á nokkur atriði er varða málið sjálft, gang þess á Alþ. til þessa, en ég gerði það ekki síst vegna þess, að þegar 2. umr. fór fram urðu um það litlar umr., enda tiltölulega fáir þm. á fundi og atkvgr. frestað. Ég vil sérstaklega vekja athygli á afstöðu menntmn. til málsins þeirrar n. sem ber og bar að kynna sér efnisatriði þess sérstaklega.

Málið var afgreitt í n. í lok jan. með óvenjuskjótum hætti að formanni n. fjarverandi, en þó með hans samþykki. Fyrir liggur andstaða þriggja nm., þeirra er stóðu að 1. minnihlutaáliti, en auk þess lýsti formaður sig andvígan frv. við 2. umr. Einn nm., sem stóð að 2. minnihlutaálitinu, undirritaði það með fyrirvara. Það eru því raunar ekki nema tveir af sjö um. sem fyrirvaralaust mæla með samþykkt þess.

Út af fyrir sig er ekkert við það að athuga eða óeðlilegt að hv. þd. taki svo afgerandi afstöðu gegn áliti þeirra sem unnu að málinu í n., en fremur óvenjulegt verður það að teljast. Málið var á dagskrá og tilbúið til atkvgr. á fundi deildarinnar 1. mars s. l., en einhverra hluta vegna var því frestað þá, þegar aðrar atkvgr. fóru fram. Ekki er víst að þm. hafi fengið alhliða upplýsingar um málið í þeim umr. sem hugsanlega hafa átt sért stað utan þingfunda. Vegna þeirra, sem ekki voru viðstaddir 2. umr., þykir mér rétt að koma með nokkrar upplýsingar nú við 3. umr., sem væntanlega skýra hvers vegna ég leggst gegn frv. Gildir það væntanlega gagnvart öðrum, sem sömu afstöðu hafa tekið. Hér er raunar einnig um að ræða ný afbrigði, sem komu ekki fram við 2. umr.

Frv. sjálft er um almenna heimild til að stofna fræðsluskrifstofur í sveitarfélögum með 10 þús. íbúa o. fl. Þrátt fyrir það er öllum ljóst, að hér liggur fiskur undir steini. Hér er í raun deilt um það, hvort stofnuð skuli ný fræðsluskrifstofa, sem þjóni Hafnarfirði einum, og hver áhrif það hefur á þróun skólamála í landinu. Um það vil ég gjarnan fara nokkrum orðum.

Það vill svo til, að mér hefur borist bréf í hendur, sem núv. fræðslustjóri í Reykjanesumdæmi hefur sent flm. frv., öllum þm. Reykn., menntmrh. félmrh., bæjarstjórninni í Hafnarfirði og fræðsluráði í Reykjanesumdæmi. Hann getur þess í bréfinu eða fylgibréfi, að hann hafi lesið þetta bréf, sem hann sendi frá sér, upp í fræðsluráði Reykjanesumdæmis, sem hélt fund í grunnskóla Gerðahrepps, og þar hafi verið samþykkt shlj. efni þess, þar sem fræðsluráðið er andvigt því að Hafnarfjörður verði sérstakt fræðsluumdæmi. Ég vil lesa smákafla úr þessu bréfi, með leyfi hæstv. forseta:

„Til viðbótar því, sem fram kemur í meðfylgjandi bréfi,“ segir hann, „skal tekið fram, að málefni Hafnarfjarðarbæjar fá að sjálfsögðu sömu meðferð á allan hátt hjá embætti mínu og mál annarra skólahverfa í umdæminu. Öll samskipti við skólana í Hafnarfirði hafa frá upphafi verið með eðlilegum hætti. Og hið sama má nú orðið segja um samskipti embættisins við skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, en nokkrir erfiðleikar voru þar á í byrjun, sökum þess að forstöðumaður skrifstofunnar hafði um það fyrirmæli frá yfirboðurum sínum að skipta ekki við fræðslustjóraembættið í Reykjanesumdæmi, en snúa sér til menntmrn. í þess stað. Með þeim hætti varð menntmrn. milliliður á milli Hafnarfjarðarbæjar og fræðslustjórans í umdæminu, því að rn. tók við erindum frá Hafnarfjarðarbæ og sendi þau áfram til mín til afgreiðslu. Af þessum sökum urðu nokkrar tafir á afgreiðslu mála, en eftir að mál fóru að berast eðlilega leið og eðlileg samvinna var tekin upp, gengu allar afgreiðslur mun betur á allan hátt.“

Þessi kafli er í fylgibréfi. En ég vil — með leyfi hæstv. forseta — lesa hér líka kafla úr því bréfi, sem hann sendi út, og skýra þessi mál frá annarri hlið en hér hefur komið fram. Ég tel að það sé næsta nauðsynlegt, að hv. þm. hafi þá mynd í huga áður en málið er afgreitt frá d. Ég gríp ofan í bréfið þar sem segir:

„Sú fræðsluumdæmaskipan, sem ákveðin var í lögum um grunnskóla, hefur nú hlotið nokkra reynslu. Ég hygg að sú reynsla sé yfirleitt mjög jákvæð, ef dæma má eftir þeim undirtektum sem störf fræðslustjóranna hafa fengið. Nægir þar að nefna samþykktir velflestra sveitarstjórna í Reykjanesumdæmi, sem fögnuðu stofnun fræðsluskrifstofu umdæmisins. Frv. gerir ráð fyrir að þessari fræðsluumdæmaskipan sé breytt. Það hljóta því að liggja veigamikil rök fyrir því, að flutt er frv. um slíka breytingu, önnur og veigameiri en fram koma í grg. með frv. Þau rök, sem þar koma fram, eru aðallega þau, að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi samþykkt áskorun til Alþ. þess efnis að heimila að Hafnarfjörður verði sérstakt fræðsluhérað með sérstökum fræðslustjóra og að Hafnarfjörður hafi árið 1969 stofnað eigin fræðsluskrifstofu, ráðið eigin fræðslustjóra og haft þar eigin frumkvæði, komið á stjórnun og þjónustuaðstöðu í sínum skólamálum og viljað halda þessari afstöðu áfram. Enn fremur er minnst á samning við menntmrn. um starfið.

Ef þessi rök eru skoðuð nánar og í fyrstu litið á þá röksemd, að Hafnarfjörður verði sérstakt fræðsluhérað með sérstökum fræðslustjóra, skal bent á eftirfarandi:

Í ályktun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 15. nóv. 1974 segir m. a.:

„Enn fremur skorar bæjarstjórnin á Alþ. að gera þá breytingu á lögum um grunnskóla, að Hafnarfjörður verði hér eftir sem hingað til sérstakt fræðsluhérað með sérstökum fræðslustjóra.“

Í þessu sambandi skal á það bent, að Hafnarfjörður var sérstakt fræðsluhérað samkv. lögum frá 1946, en er nú sérstakt skólahverfi samkv. lögum frá 1974. Á þessu tvennu er í raun enginn munur, vegna þess að í lögum um grunnskóla táknar orðið „skólahverfi“ það sama og orðið „fræðsluhérað“ táknaði í eldri lögum, þegar um er að ræða sveitarfélag sem rekur tvo eða fleiri grunnskóla. Hafnarfjörður hefur aldrei verið sérstakt fræðsluumdæmi, vegna þess að landinu var skipt í fyrsta sinn í fræðsluumdæmi með lögum um grunnskóla. Áður var landið allt eitt fræðsluumdæmi. Starfsheitið fræðslustjóri er nýmæli í lögum um grunnskóla með því starfssviði sem þar er skilgreint, enn fremur í lögum nr. 34 frá 1946 og lögum nr. 31 frá 1955 og enn fremur lögum frá 1967.

Þegar starf fræðslustjóra Hafnarfjarðar var stofnað af bæjarstjórn Hafnarfjarðar, var starfssviðið skilgreint í sérstöku erindisbréfi sem samþykkt var af bæjarstjórn, en ljósrit af erindisbréfinu fylgir með þessu bréfi. Eins og fram kemur í erindisbréfinu, var fræðslustjóri Hafnarfjarðar framkvæmdastjóri fræðsluráðs, æskulýðsráðs og íþróttanefndar. Hann var einnig fulltrúi og ráðunautur bæjarráðs og bæjarstjóra í skóla-, æskulýðs- og íþróttamálum. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 30. jan. 1968 var ég ráðinn í þetta starf og skyldi ég taka til starfa hinn 1. júlí 1968. Eitt af meginhlutverkum mínum í þessu starfi var að hafa umsjón með fjárhagslegum rekstri skólanna og sjá um að það fjármagn, sem bærinn veitti til skólamála, nýttist sem best og kostnaður færi ekki fram úr fjárhagsáætlun bæjarins á hverjum tíma.

Í byrjun árs 1969 leitaði ég eftir því við menntmrn., að starf mitt yrði jafnframt námsstjórastarf í Hafnarfirði, þar sem ég áleit að það væri grundvöllur til þess að nýta afgangs-“ — ég bið menn að taka eftir þessu — „að nýta afgangskennslumagnskvóta til að bera hluta kostnaðar af starfinu. Þá var skólahúsnæðið þröngt setið í Hafnarfirði og kennslumagnskvóti ekki fullnýttur vegna húsnæðisskorts. Menntmrn. féllst á þessa málaleitan mína og gerðum við deildarstjórinn í menntmrn. uppkast að samningi um stjórn og umsjón skólamála í Hafnarfirði og kostnað af starfi fræðslustjóra. Ég lagði þetta uppkast fyrir bæjaryfirvöld í Hafnarfirði, sem samþykktu það, og var því samningur undirritaður hinn 10. febr. 1989. Störf mín fyrir Hafnarfjörð voru óbreytt fyrir og eftir samningsgerðina, en fyrstu tvær greinar samningsins voru teknar upp í nýtt erindisbréf.

Ef erindisbréf fræðslustjóra Hafnarfjarðar er borið saman við reglugerð frá 1976 um störf fræðslustjóra, sést að hér er um gerólík störf að ræða. Starf fræðslustjóra Hafnarfjarðar var að sjálfsögðu að langmestu leyti unnið fyrir Hafnarfjarðarbæ og fræðsluráð Hafnarfjarðar. En störf fræðslustjóra samkv. grunnskólalögum eru að mesta leyti embættisfærsla á vegum menntmrn. og faglega aðstoð við skólanefndir og sveitarstjórnir. Þessu til sönnunar nægir að taka eftirfarandi fram :

Fræðslustjóri Hafnarfjarðar átti samkv. erindisbréfi að semja áætlanir um nemendafjölda. fjölda reglulegra stunda og áætlaðan kostnað ríkissjóðs annars vegar og bæjarsjóðs hins vegar fyrir hvert komandi skólaár og leggja fram samþykkta áætlun fræðsluráðs. Skyldi leggja hana fyrir bæjarráð og senda menntmrn. til úrskurðar um kostnaðarþátttöku ríkissjóðs. Fræðslustjóri, sem starfar samkv. lögum um grunnskóla. á hins vegar að úrskurða um kostnaðarþátttöku ríkissjóðs vegna slíkra áætlana, en það annaðist menntmrn. áður. Við framkvæmd þessara áætlana gerði fræðslustjóri Hafnarfjarðar kröfur um greiðslur úr ríkissjóði, en fræðslustjóri fellir samkv. grunnskólalögunum úrskurð um, að hv e miklu leyti slíkar kröfur skuli greiddar úr ríkissjóði. Það, sem hér getur valdið misskilningi, er að sama starfsheitið er notað um mismunandi störf. Það er þó sameiginlegt með þessum störfum, að í báðum tilfellum er almenn námsstjórn hluti af starfinu. Í því sambandi er rétt að benda á að í samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 15. nóv. 1974 segir m. a.:

„Þá vill bæjarstjórn benda á, að hún telur eðlilegt að ein sameiginleg fræðsluskrifstofa starfi fyrir Reykjanesumdæmi, en að verkefni hennar verði kennslufræðilegs eðlis, svo sem námsstjórn, eftirlit með störfum skólanna, leiðbeiningarstörf fyrir kennara, skólastjóra og skólanefndir, námskeiðahald, tilraunakennsla o. fl.

Ef svo er litið á þá röksemd, sem sett er fram í grg., að Hafnarfjarðarbær vilji halda áfram rekstri þeirrar stjórnunar- og þjónustuaðstöðu, sem bærinn kom upp mörgum árum áður en grunnskólalögin tóku gildi, skal á það bent að ekkert er því til fyrirstöðu að bærinn haldi þessari starfsemi áfram, m. a. vegna þess að í grunnskólalögunum eru ákvæði um að sveitarstjórnir eða skólanefndir geti ráðið sér skólafulltrúa til að sinna sameiginlegum stjórnunar- og þjónustumálum fyrir viðkomandi skólahverfi.

Af framansögðu er ljót, að ekki þarf að breyta lögunum til þess að Hafnarfjarðarbær geti áfram haldið þeirri starfsemi sem fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar hefur annast frá upphafi allt til þessa dags. Verksvið skólafulltrúa getur verið það sama og fræðslustjóra Hafnarfjarðar, ef bæjarstjórn óskar þess. Hann getur að vísu ekki annast námsstjórn á sama hátt og ég gerði, þar sem fræðslustjóri umdæmisins annast þann þátt. En á það er að líta, að það er einnig í samræmi við óskir bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sbr. tilvitnun í samþykkt bæjarstjórnar hér að framan. Það er því ljóst að bæjarstjórn Hafnarfjarðar getur framfylgt ályktun minni frá 5. nóv. 1974 efnislega í öllum atriðum án þess að lagabreyting komi til. Það er á valdi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að ráða sér skólafulltrúa og fela honum það starf sem fræðslustjóri Hafnarfjarðar annaðist fyrir Hafnarfjarðarbæ, á sama hátt og bæjarstjórn Hafnarfjarðar stofnaði starf fræðslustjóra á sínum tíma. Það er á valdi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að halda áfram þeirri starfsemi, sem stofnað var til þegar fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar var stofnuð. Hvorki lög um grunnskóla né nýjar reglugerðir taka nein þau völd í skólamálum af bæjarstjórn Hafnarfjarðar sem hún hafði áður.“

Ég hef leyft mér, virðulegi forseti, að lesa hluta úr þessu bréfi, eða raunar meginefni bréfsins, vegna þess að ég tel að í því komi fram veigamikil atriði sem séu til skýringar og upplýsingar, ef hv. þm. á annað borð kæra sig um að heyra það. En ég vil sérstaklega undirstrika fjögur atriði í þessu sambandi:

1. Fræðslustjórinn, samkv. lögum frá 1974, er starfsmaður ríkisins með allt annað valdsvið en þeir fræðslustjórar voru með, sem störfuðu á vegum sveitarfélaganna samkv. eldri lögum.

2. Þrátt fyrir samning Hafnarfjarðarbæjar við rn. var þar ekki um að ræða að spónn væri tekinn úr aski Hafnarfjarðarbæjar hvað launagreiðslur snerti, vegna þess að þegar sú breyting var gerð, að fræðslustjóri Hafnarfjarðar tók laun beint úr ríkissjóði, var það innan þess ramma, innan þess kostnaðarfótar samkv. skólakostnaðarlögum, sem Hafnarfjarðarbær hafði, vegna þess að hann fullnýtti ekki þennan kvóta í kennslustörfum sínum. Þess vegna var hér um að ræða kostnað sem bænum bar að greiða, enda þótt það hafi verið gert beint í gegnum rn.

3. Þá vil ég benda á samþykkt bæjarstjórnar, sem margsinnis var vitnað hér í, um eina skrifstofu fyrir umdæmið allt sem sinnt sameiginlegum verkefnum kennslufræðilegum, og svo það atriði til viðbótar, að nú þegar samkv. nýsamþykktri ósk bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur það samkomulag tekist, að fræðslustjóri annast launaútreikninga alla fyrir kennara í Hafnarfirði.

Ég verð að segja það svo, að ég gagnrýni ekki út af fyrir sig þó að þm. úr einu kjördæmi taki upp mál, sem þeir eru beðnir fyrir, og flytji það í frv.-formi, síst af öllu ef svo kynni að fara að ekki kæmi strax í upphafi nógu margir efnisþræðir í hendur hv. þm. sem lýsa málinu nógu glöggt í heild. En það er nú svo, að þess ern fordæmi í þingsögunni, að það hafa verið flutt frv. sem flm. hefur horfið frá eftir að ljóst var hvernig í málinu lá og hann sá, að flutningur frv. var á misskilningi byggður. Og mér er nær að halda, að það kunni að vera ástæða til fyrir flm. að athuga vei, hvort flutningur á þessu frv. hafi ekki að einhverju leyti verið á misskilningi byggður.

Ég vil segja það í öðru lagi, að mér býður í grun að ýmsir þeir, sem fylgja þessu frv., geri það raunar af allt öðrum ástæðum en þeim, að þeir beri fyrir brjósti ímyndaða hagsmuni — ég segi: ímyndaða hagsmuni Hafnarfjarðarbæjar. vegna þess að ég tel að hér sé ekki um raunverulega hagsmuni að ræða. Það kann að vera tvennt sem því veldur. Annars vegar það, að mönnum sé ósárt um það, þó að það skipulag, sem verið er að byggja upp og var sett hér á vinstristjórnarárunum, riðlist. Ég sé t. d. ekki nein rök fyrir því, að Suðurnesin sunnan Straums geti ekki sameinast um ósk um lagabreytingu og fengið hana til þess að stofna eigin fræðsluskrifstofu þar, fyrir utan möguleikana sem eru náttúrlega þá þegar opnir bæði fyrir Kópavog og fyrir Akureyri. Og mér er spurn: Væri þá ekki alveg eins ástæða til þess fyrir Vestmanneyinga að óska eftir því, að þeir hafi sína fræðsluskrifstofn með þátttöku ríkisins staðsetta úti í Vestmannaeyjum?

Einnig kann það vel að vera, sem hefur heyrst hér í umr., að andstaðan gegn landshlutasamtökunum komi þarna inn í málið, þar sem menn telja að hvert það tilvik, hver sú ráðstöfun, sem gerð er til þess að brjóta þetta samstarf niður, hljóti að vera af því góða. Ég ætla ekki að orðlengja þær hugmyndir. Ég veit að það verður margur sem sér eftir því. Landshlutasamtökin eiga eflaust þátt í þeirri breytingu sem hefur orðið í byggðalegu tilliti. Þau eiga þátt í því, segi ég, en ég ætla ekki að ræða það mál í heild. Ég vil þó aðeins vekja athygli á því, að ég geri ekki ráð fyrir að landshlutasamtökin í heild, í því formi sem þau eru núna, komi til með að starfa til eilífðarnóns frekar en sýslunefndir muni verða viðvarandi um alla framtíð, svo úrelt sem sýsluskipanin er. Það hlýtur fyrr eða síðar að koma þar einhver lögboðinn aðili í staðinn. En ég bendi á þetta vegna þess, að ég hef orðið var við það, að þetta er þáttur í umr. um stöðu landshlutasamtakanna vegna þeirra verkefna sem þeim hafa verið falin. Þá vil ég harma það alveg sérstaklega, að varaformaður Sambands ísl. sveitarfélaga hafi þurft að vera 1. flm. að frv. sem vekur upp þær umr.

Og að lokum, virðulegi forseti. Ekki get ég að því gert, þó að ég horfi á það með eigi lítilli undrun, þegar ég sé hendur hefjast á loft hér til stuðnings við þetta mál, hendur þeirra manna, sem eru ekki hér í þingsalnum núna, hendur þeirra sem hvað skeleggast hafa gengið fram undir kjörorðinu „Báknið burt“, hafa í ýmsum tilvikum talað hvað einarðast um aðhald í ríkisbúskapnum, en vilja nú stofna algerlega óþarft embætti og það í sveitarfélagi, sem hefur þá aðstöðu að vera staðsett við þröskuldinn á starfandi fræðsluskrifstofu, þar sem það tekur aðeins nokkrar mínútur að geta gengið á vit fræðslustjórans. Þetta gerist á sama tíma og ríkið hefur ekki yfir fjármagni að ráða til að búa að þeim fræðsluskrifstofum, sem þegar starfa samkv. lögum, svo sem brýna nauðsyn ber til. Ég held þess vegna, hæstv. forseti, að ef þm. hefðu haft þolinmæði til að kynna sér þetta mál vel, þá hefði hlotið að koma upp sú spurning, hvort menn væru alveg sannfærðir um það, að afstaðan við atkvgr. eftir 2. umr. hefði verið rétt, þeir hefðu kannske fengið einhver ný atriði inn í þessa mynd, sem kunnað hefðu að verða ástæða til þess að sú afstaða yrði endurskoðuð.