27.10.1977
Sameinað þing: 10. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

22. mál, uppbygging þjóðvega í snjóahéruðum landsins

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Það er mesti misskilningur hjá hv. þm. Inga Tryggvasyni að ég sé argur út af þessari till. Ég lýsti eindregnum stuðningi við hana. Sé ástæða til þess að vera argur út af einhverju í sambandi við þetta mál, þá er ástæða til þess að vera argur út af þeim ákvarðanatökum sem m.a. þessi hv. þm, sem stjórnarsinni og öll halarófan á þáltill. af stjórnarsinnum hefur tekið þvert ofan í það sem þessi till. fjallar um, þvert á það sem hún vill að gert verði. Það er ástæða til að vera argur út í það, en ekki út í þessa till., það er mesti misskilningur, og ég get enn ítrekað samþykki mitt við hana. Það er sem sagt þetta: Mér finnst að það fari ekki saman boðskapur þessara hv. þm. með þáltill: flutningnum, sem hér er til umr., og síðan þær ákvarðanir sem þeir taka í sambandi við afgreiðslu vegamála hér á Alþ. Það er eins og hér sé um að ræða allt aðrar persónur, sem flytja þessa þáltill., en þær sem taka ákvörðun varðandi afgreiðslu vegáætlunar t.d. með stórkostlegum niðurskurði árlega til framkvæmda.

Varðandi veggjaldið hygg ég að hv. þm. viti hug minn til þess. Ég veit ekki hvort hv. 1. þm. Suðurl. verður eins jákvæður í því og ég og hv. þm. Ingi Tryggvason. En ég tel það sannarlega réttlætismál að þeir, sem hafa slíka vegi með bundnu slitlagi, borgi hluta af því sem þeir annars mundu þurfa að borga, ef þeir ekki hefðu þessa vegi. Það er fullkomlega réttlætismál og það tek ég undir.

En aðalerindi mitt var að vekja athygli á þessu, sem ég vildi kannske kalla tvískinnungshátt hv. flm., annars vegar varðandi flutning till. og hins vegar afstöðu þeirra til afgreiðslu vegáætlunar hér á Alþ. á undanförnum árum.