14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2879 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

326. mál, orkumál á Austurlandi

Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Hæstv. ráðh. talaði um, að ekki væri rétt að flana að neinu í þessu efni. Það á nú tæpast við lengur um þetta mál. Ég vil taka það fram, að þegar ég bar fram þessa fsp., þá var það ekki fyrr en við höfðum um það vitneskju, að niðurstöður væru þegar komnar á borð hæstv. ráðh. eða mundu vera væntanlegar þangað frá Hönnun hf. og umsögn Rafmagnsveitnanna kæmi svo þar beint í kjölfarið. Og í raun og veru var meira búið að gerast, því að í umsókn Rafmagnsveitna ríkisins vegna fjárlagagerðar s. l. haust var óskað eftir 430 millj. kr. framlagi til Bessastaðaárvirkjunar í ár innan ramma framkvæmdaáætlunar, sem miðaðist þá við að taka 1. áfanga virkjunarinnar í gagnið fyrir árslok 1981. Þegar þetta lá fyrir einnig, að ég vissi af þessum frumtillögum Rafmagnsveitnanna og seinna vissi ég um varatillögu Rafmagnsveitnanna upp á 110 millj. í þessu skyni, þá þótti mér ekki að neinu flanað þó þessi fsp. væri fram borin.

Það er rétt sem hæstv. ráðh. segir, að hann er ekki kominn í þennan ræðustól til þess að svara blaðagreinum. En hans ágætu samstarfsmenn beindu þessum fyrirspurnum til hæstv. ráðh. í leiðar sínum og mér þótti líklegt, að kurteisinnar vegna hefðu þeir sent honum þetta blað sitt með þessum leiðara til þess að hann gæti svarað, því svars var mjög eindregið óskað frá hæstv. ráðh. eða einhverjum hans manna hér á þingi.