14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2889 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)

347. mál, húsnæði Tryggingarstofnunar ríkisins

Vilborg Harðardóttir:

Herra forseti. Ég flyt þessa fsp. í fjarveru hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar. Hún er til hæstv. heilbr.- og trmrh. og er svo hljóðandi:

„Hvenær verður gengið þannig frá aðalbækistöð Tryggingastofnunar ríkisins, að fatlað fólk, m. a. í hjólastólum, eigi greiðan aðgang að öllum húsakynnum og geti rætt þar við starfsfólk, m. a. sérfræðinga og lækna?“