14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2891 í B-deild Alþingistíðinda. (2127)
347. mál, húsnæði Tryggingarstofnunar ríkisins
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég tel mig eiginlega til knúinn að leggja orð í belg.
Ég geri mér grein fyrir því, að hæstv. ráðh. veit fullvel að meginerindi fattaðra og lamaðra í húsakynni Tryggingastofnunarinnar er ekki það að sækja peningana sína, því svo mun vera í langflestum tilfellum, að jafnvel þeir, sem ekki vilja láta leggja þessar smáupphæðir sínar inn á bankareikning, geta fengið einhvern til að skjótast fyrir sig.
Þannig er ástatt um starfsemi Tryggingastofnunarinnar og sókn þeirra, sem mest þurfa, eftir bótum, sérstaklega lamaðra og fatlaðra, að þeir þurfa að tala persónulega við fulltrúa stofnunarinnar þ. á m. við tryggingayfirlækni. Því miður er ástandið þannig, að starfsemi stofnunarinnar hefur tekið á sig fullmikinn skriffinnskublæ. Stundum getur maður ekki varist þeirri hugsun, að beinlínis sé verið að torvelda sókn bótaþega eftir lögmætum styrk sínum. Það getur virst svo. Ég er alveg viss um að það er ekki ætlun hæstv. ráðh. að stuðla að slíku.
Ég get nefnt sem dæmi, að maður, sem misst hefur lim, fót eða hönd, þarf að verða sér úti um, ef hann er búinn að slíta út gervilim sínum, vottorð læknis um það — og koma því í hendur tryggingayfirlæknis — að ekki hafi vaxið á honum limur í millitíðinni. Ég get vottað þetta sjálfur, og flestir þeir, sem ég þekki til og fyrir þessu hafa orðið, geta vottað það einnig. Starfsemi Tryggingastofnunarinnar er með þeim hætti, að einmitt þetta fólk þarf að komast á skrifstofurnar til fulltrúa Tryggingastofnunarinnar til þess að sýna þeim fram á ýmislegt sem þeir mundu e. t. v. ekki trúa þó þeim væri sagt það í síma.