14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2891 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)

348. mál, reglugerð um lágmarksstærðir fisktegunda

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram fsp. á þskj. 372 varðandi framkvæmd á 1. gr. reglugerðar nr. 262 frá 6. júlí 1977.

1. gr. þessarar reglugerðar hljóðar þannig: „Skylt er að hirða allan fisk af eftirtöldum tegundum, sem kemur í veiðarfæri íslenskra fiskiskipa: Þorskur, ýsa, ufsi, skarkoli og karfi.“

Spurningin er: Hvernig er háttað framkvæmd og eftirliti með reglugerðinni að því er þetta ákvæði hennar varðar?

Og í 2. lið er spurt: Hve mikið var á s. l. ári gert upptækt af fiski undir lágmarksstærð samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar?

Þessi fsp. er fram komin vegna þess, að ég tel nauðsynlegt að Hafrannsóknastofnun hafi á hverjum tíma sem besta aðstöðu til þess að meta stærð fiskstofna hér við land. Ég tel að 1. gr. þessarar reglugerðar, sem hér um ræðir, sé spor í rétta átt í þessu sambandi, því að það liggur alveg ljóst fyrir að fram að þessu hefur Hafrannsóknastofnunina vantað upplýsingar, mikilsverðar upplýsingar í þessu sambandi. Hafrannsóknastofnunin hefur að sjálfsögðu á hverjum tíma upplýsingar um það, hvað mikið berst af fiski á land, bæði hérlendis og einnig að miklu leyti hvað berst af fiski af Íslandsmiðum á land erlendis. En inn í þetta hefur alltaf vantað þann fisk, sem veiddur er, en aldrei kemur á land.

Um þetta hafa að vísu verið nokkuð skipta,r skoðanir, hvort þar væri um nokkurt magn að ræða sem kalla mætti verulegt, en ég hygg a. m. k. á meðan erlend veiðiskip voru hér á ferð hafi allir verið sammála um það, að hér á Íslandsmiðum hafi verið veitt mjög mikið af fiski sem kastað var fyrir borð aftur. Orð hefur einnig legið á því, að íslensk fiskiskip, bæði stærri og smærri, kæmu ekki heim með nema hluta af þeim afla sem um borð kæmi.

Með því að sett væri ákvæði í reglugerð um þetta atriði og ef því ákvæði væri framfylgt, þá hefði Hafrannsóknastofnun alveg tæmandi upplýsingar um, hvað mikið er tekið af hverjum fiskstofni, og ætti þess vegna hægara með að áætla stærð fiskstofnanna á hverjum tíma.

Ég vænti þess að fá svar hjá hæstv. ráðh. og að fyrir liggi skýrslur um það, hvernig þessu ákvæði reglugerðarinnar hefur verið framfylgt.