14.03.1978
Sameinað þing: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2896 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)
348. mál, reglugerð um lágmarksstærðir fisktegunda
Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Af því að hæstv. ráðh. benti á það áðan, að sú breyting mundi hafa orðið á, að fiskur væri farinn að hrygna fyrir Norðurlandi, þá vil ég láta það koma fram, að ég hef rætt þetta atriði við fiskifræðinga og Hafrannsóknastofnunina. Þetta hefur einnig verið birt í blöðum. Væri auðvitað ástæða til þess að fagna því, ef sagan væri þar með öll sögð, því að það má segja, að ef fiskur hrygnir við landið og nær kynþroskaaldri og þannig endurnýist stofninn, sé sama hvar hann hrygnir. En þær upplýsingar, sem fyrir liggja frá Hafrannsóknastofnuninni, eru þess eðlis, að því miður virðist einskis vera að vænta af þeim fiski sem fyrir Norðurlandi hrygnir. Það sýnir sig að seiði, sem þeir hafa fylgst með eftir hrygninguna sem þar hefur átt sér stað, sem mun vera í eitthvað ríkara mæli en áður hefur verið, en fiskur hefur víst hrygnt þarna að einhverju leyti alla tíð, þau ná ekki þroskaskeiði og eru aðeins brot af stærð miðað við þau þorskseiði sem koma frá þeim fiski sem hrygnir hér við Suðurland og Suð-vesturlandið í heitari sjó. Það virðast alls ekki vera uppvaxtarskilyrði fyrir þau þorskseiði, sem koma af hrygningarstöðvum fyrir Norðurlandi, því miður. Við höfum því ekki ástæðu til að vænta þess, að þannig geti þorskstofninn endurnýjað sig.
Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að fiskur, sem veiðist nú, er stærri en hann hefur verið áður. Á þessu er ákaflega eðlileg skýring. Árgangurinn 1973 ber uppi megnið af veiðunum núna fyrir Vestur-, Norður- og Norðausturlandi. Þessi fiskur er búinn að vera að vaxa frá þessu ári og er nú kominn á það stig, að hann er að því kominn að verða kynþroska og er orðinn 3–4 kg að þyngd. Það er þess vegna ósköp eðlileg skýring til á því, að fiskur, sem landað er nú á þessu svæði — fyrir Vestur-, Norður- og Austurlandi, er stærri. En þessi fiskur eðli sínu samkv. hverfur alveg af þessum miðum eftir 1–2 ár, og það, sem er kannske ískyggilegast við þetta, er að á eftir koma tveir mjög veikir árgangar. Árgangarnir 1974 og 1975 eru taldir af fiskifræðingum mjög veikir og spurningin er, hvað biður fiskiflotans almennt, ef þessi spá er rétt, að árgangurinn 1973 er e. t. v. að miklu leyti þegar veiddur og nær aldrei að endurnýja sig og á eftir koma tveir mjög veikir árgangar. Það hlýtur að segja sína sögu.
Ég er alls ekki með neinar till. um að stöðva þorskveiðarnar. Ég er aðeins að benda á, að ef þetta færi eins og útlit er fyrir samkv. þeim upplýsingum, sem fyrir liggja frá fiskifræðingum og Hafrannsóknastofnun, þá getur komið að því, að Íslendingar verði að stiga það skref að stöðva veiðarnar eitthvert árabil, eins og varð að gera með síldveiðarnar til þess að ná síldarstofninum upp aftur. Auðvitað vona allir, að til þess þurfi ekki að grípa. En því miður er útlitið þannig í dag, að a. m. k. ber mjög að hafa í huga, hvort þetta ástand getur ekki borið að höndum.
Ég endurtek það, að ég tel að það þurfi miklu strangara eftirlit með veiðum á smáfiski en nú er framkvæmt. Þó að ég virði þá viðleitni, sem rn. hefur haft uppi með því að senda út menn með fiskiskipum til eftirlits, þá hygg ég að það sé hvergi nærri fullnægjandi. Þá umsögn mína byggi ég á frásögn þeirra manna, sem þessar veiðar stunda og eru ekki í neinu samræmi við þær upplýsingar sem koma fram hjá hæstv. sjútvrh.