15.03.1978
Neðri deild: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2910 í B-deild Alþingistíðinda. (2147)

220. mál, Fiskimálasjóður

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Þetta frv. um breytingu á lögum um Fiskimálasjóð gerir ráð fyrir því, að hámarkslán Fiskimálasjóðs megi hækka úr 600 þús. kr. hvert lán í 2 millj. kr. Lögin hafa bundið hverja lánveitingu við tiltekna hámarksupphæð og hefur ekki orðið breyting á hámarksupphæð frá árinu 1971. er lögunum um Fiskimálasjóð var breytt. Stjórn Fiskimálasjóðs er sammála um að geta sjóðsins og aðrar aðstæður leyfi að þessi upphæð verði hækkuð í 2 millj. Mælir hún því með að þessi breyting verði gerð.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.