15.03.1978
Neðri deild: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2914 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

217. mál, tollskrá o.fl.

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af því, að komið er til umr. frv. um tollamálefni. Mér er að sjálfsögðu ljóst, að þetta er frv. sem miðar að samræmingu og nánast sjálfgerðum hlutum. En þar sem þetta mál hefur nú verið opnað dettur mér í hug, hvort ekki væri mögulegt fyrir þá n., sem fær málið til umfjöllunar, að gera víðtækari breytingar á tollalöggjöf en mér sýnist að stefnt sé að með þessu frv. Þar á ég við mistök sem orðið hafa við gerð tollskrár þegar það mál var síðast til umfjöllunar í þinginu. Þá var breytt tollaflokkun á vélum til landbúnaðar, en út undan urðu mikilsverðar vélar til landbúnaðarframleiðslu. Sú lækkun, sem þá var gerð á tollum, var ekki látin taka til landbúnaðardráttarvéla, ekki til ámoksturstækja og ekki til heyhleðsluvagna. Hins vegar var þessi tollalækkun látin taka til heybindivéla sem eru hliðstæðar vélar heyhleðsluvögnum. Þetta er atriði sem ég held að hljóti að mega kippa í lag, því þetta er ekki óskaplegt fjárhagsspursmál fyrir ríkissjóð. Ég beini því til fjh.- og viðskn. hv. d., hvort hún sjái sér ekki fært að verða við ósk um leiðréttingu í þessu efni.