16.03.1978
Sameinað þing: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2931 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)

119. mál, sparnaður í fjármálakerfinu

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég þóttist ekki, eftir að hv. fyrri flm. till. hafði talað áðan, hafa ástæðu til að standa upp aftur. Það eru þó aðeins örfá orð, þ. á m. kannske til að vitna aftur í þau orð hv. 12. þm. Reykv. sem hann upphóf í sinni fyrri ræðu um það, að hér væri hálfgerður skopleikur á ferðinni. Eftir að hafa svo hlustað á hann lýsa því yfir, að hann væri efnislega sammála nær öllum þáttum sem fram koma í þessari till. okkar, datt mér í hug óperan I Pagliacci, en í henni hló aðalleikarinn á meðan hjarta hans grét.

Það kom líka fram ofsatrú hv. þm. á núv. ríkisstj. að hún hafi ekki aðeins heimild til þess að gera þetta, heldur geri það líka. Þar ber okkur svolítið í milli, vegna þess að ég hef ekki trú á því, að hún geri þetta, nema við hér á Alþ. felum henni að gera það. (Gripið fram i.) Já, skipum henni að gera það. Það er þess vegna m. a. sem ég er meðflm. að þessari till. (Gripið fram í.) Þá skilur hv. þm. harmleikinn. Ég vil hins vegar láta það koma skýrt fram, að ég er ekki þar með að draga úr því, að núv. hæstv. ríkisstj., eins og reyndar allar ríkisstj. sem ég minnist, hafi gert heiðarlegar tilraunir til þess að draga úr útþenslu ríkisbáknsins. Vissulega hafa orðið umtalsverðar úrbætur á því sviði nú á síðustu árum, í tíð núv. hæstv. ríkisstj. Ekki ber að vanþakka það sem vel hefur verið gert. Hins vegar erum við að benda á ákveðna leið. Við erum að benda á þessa ákveðnu leið og erum að óska eftir því, að þingið samþ. þessa till. okkar sem mundi um leið vera fyrirskipun til hæstv. ríkisstj. að fara eftir henni.

Ég ætla aðeins að skýra með örfáum orðum, fyrst þetta tilefni gafst, af hverju ég er fylgjandi því, að þessi leið verði farin. Það er einfaldlega vegna þess, að ef íslenskir stjórnmálaflokkar og hv. Alþ. ætla af einhverjum heilindum að ráðast gegn verðbólguvandamálinu í þjóðfélaginu, þá vitum við að það mun kosta fórnir allra þegnanna. Það þarf að leita til allra þegnanna eða nær allra, hárra og lágra. Og það verður ekki gert og það er útilokað að ætla sér að gera það öðruvísi en þannig, að ríkisstj. og hið opinbera hafi forgöngu. Ég álít persónulega, að besta skrefið og heillavænlegasta, sem verður stigið í þeim efnum, sé að ráðast til atlögu við þann hluta báknsins sem hefur bólgnað mest út.