30.03.1978
Efri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2946 í B-deild Alþingistíðinda. (2181)

234. mál, ónæmisaðgerðir

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Snemma á s. l. ári barst heilbr: og trn. beiðni landlæknis þess efnis, að felld yrðu úr gildi þau ákvæði núgildandi laga um ónæmisaðgerðir sem fjalla um skyldubólusetningu gegn bólusótt, jafnframt að í staðinn yrðu sett í lög ákvæði er heimiluðu slíkar bólusetningar ákveðinna starfshópa samkv. ósk viðkomandi, enn fremur að felld yrðu niður ákvæði laga er sérstaklega snerta kúabólusetningu.

Ástæðan fyrir þessari beiðni landlæknis er byggð á því, að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur náð mjög góðum árangri í baráttu gegn bólusótt á s. l. áratug og er svo komið að veikinni hefur að mestu verið útrýmt, þannig að hennar hefur eingöngu orðið vart í einstaka tilvíkum og þá í afskekktum fjallaþorpum í Afríku.

Englendingar, Svíar og Bandaríkjamenn hafa fyrir nokkrum árum fellt þessi ákvæði niður, og fyrir tveimur árum felldu flest nágrannalönd okkar þau einnig niður. Samkv. íslenskum lögum er bólusetning gegn bólusótt sú eina sem skylda ber til samkv. lögum að framkvæma í dag, og það er almenn skoðun þeirra lækna, er fást við slíkar bólusetningar, að fetla beri þær niður sem skyldubólusetningar, en í stað þess skuli vera heimild til bólusetningar.

Núgildandi lög um ónæmisaðgerðir eru frá árinu 1950 og eru nú orðin á margan hátt óraunhæf. Á þeim tíma, sem lögin voru sett, voru ekki þekkt mótefni gegn eins mörgum ónæmissjúkdómum og í dag, og bera lögin þess glögg merki. Lögin fyrirskipa kúabólusetningu, þ. e. a. s. svokallaða frumbólusetningu, á hverju barni milli hálfs árs og eins árs aldurs. Má reyndar segja, að með hliðsjón af þróun þessara mála á undanförnum árum sé óæskilegt að skylda slíkar bólusetningar, þar sem hættan á bólusótt er nánast engin í dag, en eftirköst vegna bólusetningar geta verið mjög slæm, eins og allir þekkja.

Margar greinar laganna frá 1950 eru til komnar eingöngu vegna kúabólusetningar. Með hliðsjón af því, að lögin styttast verulega og breytast við brottfall skyldubólusetningar, ákvað rn. að endurskoða lögin í heild og leggja fram frv. til nýrra laga um ónæmisaðgerðir í stað þess að breyta gildandi lögum. Var gripið til þess ráðs að reyna að telja upp á tæmandi hátt þær sóttir sem þekktar eru í dag og þekkt eru mótefni gegn, enn fremur að lögin hafi að geyma ákvæði þar sem heimilt sé að bólusetja gegn öðrum sóttum þegar sérstaklega standi á.

Lögin gera ráð fyrir því, að almenningur geti fengið ónæmisaðgerðir gegn barnaveiki, kíghósta, stífkrampa, mænusótt og mislingum, þegar farið er fram á slíkt. Sé talin þörf á, á fólk enn fremur kost á bólusetningu gegn rauðum hundum, berklaveiki, bólusótt, heilahimnubólgu, hettusótt og jafnframt öðrum sóttum. Hér verður það fyrst og fremst mat heilbrigðisyfirvalda, hvenær þörf er á slíkum bólusetningum.

Þar sem frv. þetta gerir ráð fyrir að skyldubólusetning verði alfarið felld niður, er nauðsynlegt að heilbrrh. geti fyrirskipað almenna bólusetningu komi upp mikil sótthætta að dómi landlæknis. Hér kann að vera um að ræða svæðisbundna sótt eða sótt er herjar á landið sem heild, og er gert ráð fyrir því, að ráðh. geti látið bólusetningaraðgerðir ná til tiltekinna svæða landsins eða landsins í heild. Þetta ákvæði er sjálfsagt með hliðsjón af niðurfellingu skyldubólusetningar.

Frv. gerir ráð fyrir því, að almenningi verði veitt fræðsla um framkvæmd ónæmisaðgerða. Ætlunin er að heilsugæslustöðvar þær, sem risið hafa og rísa munu á næstu árum, annist slíka fræðslu í samráði við landlækni. Slík fræðsla skal einkum við það miðuð, að almenningur eigi hæfilega greiðan aðgang að ónæmisaðgerðum miðað við aðstæður á hverjum stað og slíkar aðgerðir komi almenningi að sem mestu gagni.

Margar greinar þessa frv. eru efnislega samhljóða ákvæðum gildandi laga. Þess vegna er ekki ástæða til þess að fara mörgum orðum um einstök efnisatriði, auk þess sem þegar hefur verið fjallað um hér áður, og vísast nánar til aths. með frv. hvað þetta snertir. Eitt ákvæði er þó nauðsynlegt að fjalla nánar um. Er það að finna í 7. gr. frv., 2. mgr., en ákvæði þetta er nýmæli. Ákvæði þetta gerir það að skyldu, að starfsfólk rannsóknastofnana, þar sem rannsóknir á smitnæmum sjúkdómum fara fram, svari jákvætt við ónæmisprófun ellegar gangist undir sérstaka ofnæmisbólusetningu áður en það hefur störf, sé um að ræða alvarlega smitnæma sjúkdóma og berkla. Hliðstætt ákvæði er að finna í gildandi lögum, en það snertir aðeins starfsfólk á hælum og öðrum stofnunum er vista berklasjúklinga. Nauðsynlegt er að viðhalda því ákvæði, en gera þarf það víðtækara bæði hvað snertir sjúkdóma og að það nái til fleiri aðila, sem sannanlega kunna að vera í hættu ekki síður en þeir sem starfa á stofnunum fyrir berklaveikt fólk, en sem kunnugt er hefur þeim sjúkdómi sem næst verið útrýmt hér á landi.

Frv. gerir ráð fyrir því, að Lyfjaverslun ríkisins annist útvegun bóluefnis til ónæmisaðgerða. Er það í hæsta máta eðlilegt, þegar þess er gætt, að frv. gerir ráð fyrir því, að ríkissjóður standi undir kostnaði við nær allar ónæmisaðgerðir samkv. þessum lögum. Aðeins er gert ráð fyrir kostnaði hlutaðeigandi aðila þegar um er að ræða ónæmisaðgerð samkv. 12. lið 1. gr. liðar frv., þ. e. a. s. gegn enn öðrum sóttum, þegar sérstaklega stendur á, einkum í sambandi við ferðir manna úr landi.

Að svo stöddu er ekki ástæða til þess að tíunda fleiri atriði er frv. þetta snertir, en vísað er til aths. með frv. Að síðustu skal þess getið, að hér er um að ræða stefnumarkandi frv. Lögð skal á það áhersla, að frv. er fyrst og fremst borið fram með hliðsjón af þróun mála á undanförnum áratug og því, að nauðsynlegt er að löggjöf á þessu sviði sé sem mest í samræmi við löggjöf nágrannaþjóðanna. Vænti ég þess, að frv. þetta hljóti góðar undirtektir og skjóta afgreiðslu, og legg til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.