30.03.1978
Efri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2948 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)
235. mál, lyfjafræðingar
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir um lyfjafræðinga, er samið af nefnd, sem skipuð var fyrir nálega 5 árum til að endurskoða lyfsölulög, nr. 30 frá 29. apríl 1963. Nefnd þessi hefur talið rétt að skipa núgildandi lyfsölulögum í þrjá sjálfstæða lagabálka og er þetta frv. um lyfjafræðinga eitt af þremur. Annað frv. hefur verið lagt fram í dag, frv. til lyfjalaga, en þriðja frv. mun ekki verða lagt fyrir það Alþ. sem nú situr vegna þess að nefndin hefur ekki endanlega gengið frá því.
Í þessu frv. um lyfjafræðinga er leitast við að lögfesta reglur um allt það sem að starfsréttindum og skyldum lyfjafræðinga lýtur. Að vísu kemur til greina, að ákvæði um starf lyfjafræðinga og aðstoðarlyfjafræðinga verði í lögum um lyfjabúðir og dreifingu lyfja almennt. Hins vegar ber þess að geta, að þróun mála hefur orðið sú, að allt að því þriðjungur lyfjafræðinga og aðstoðarlyfjafræðinga starfar annars staðar en í lyfjabúðum, svo sem í lyfjagerðum, lyfjaheildverslunum, rannsóknastofnunum, sjúkrahúsum, iðnaðarfyrirtækjum og hjá hinu opinbera. Viðbúið er að þessi þróun haldi áfram. Er því full ástæða til að setja lög sérstaklega um starfsstéttir lyfjafræðinga og aðstoðarlyfjafræðinga, án þess að ákvæði slíkra laga séu einungis miðuð við eitt tiltekið starfssvið. Er þetta einnig í samræmi við þá stefnu að setja sérstaka löggjöf um einstakar heilbrigðisstéttir, eins og gert hefur verið á undanförnum árum.
Í sjálfu sér er aðeins um eitt veigamikið nýmæli að ræða í þessu frv., því að öll önnur ákvæði þess eru meira og minna sniðin eftir þeim ákvæðum sem í gildi eru í lyfsölulögum um réttindi og skyldur lyfjafræðinga og aðstoðarlyfjafræðinga er starfa í lyfjahúðum. Nýmælið er um sérfræðingsleyfa, eins og fram kemur í VI. kafla þessa frv., og er þetta í samræmi við reglur sem gilda um sérfræðingaleyfi lækna og hjúkrunarfræðinga. Þess skal getið, að Lyfjafræðingafélag Íslands hefur í samvinnu við Háskóla Íslands gefið út slík sérfræðingaleyfi um tveggja ára skeið. Þykir því rétt eftir atvikum að þeir sem blotið hafa slík sérfræðingaleyfi, haldi þeim þrátt fyrir þessa lagasetningu.
Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar hér um þetta frv. og legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.