30.03.1978
Efri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2949 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)
213. mál, þroskaþjálfar
Frsm. (Oddur Ólafsson) :
Herra forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um þroskaþjálfa. N. leggur til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu einni, að í stað orðanna „má aðeins“ í 2. gr. komi: skal.
Þroskaþjálfar gegna því hlutverki að þjálfa, stæla og æfa hæfileika þeirra sem þroskaheftir eru vegna meðfæddrar eða áunninnar fötlunar. Skóli fyrir þessa aðila hefur verið starfræktur frá árinu 1958. Lengst af var námið miðað eingöngu við andlega þroskahefta, en er nú orðið víðtækara, þar sem svo margir af þeim, sem þroskaþjálfarnir meðhöndla, eru fjölfatlaðir, þ. e. bæði andlega og líkamlega fatlaðir. Auk þess að sjá um alhliða velferð þroskaheftra þurfa þroskaþjálfar að einbeita sér að hverjum og einum, skipuleggja þjálfunaráætlun fyrir þá. Slíkar áætlanir geta verið mjög breytilegar, allt frá því að kenna þeim að klæðast eða matast upp í það að mæta á vinnustað og kunna að koma fram þar og starfa.
Hvað snertir hjúkrun þroskaheftra má t. d. geta þess, að þroskaþjálfar gefa lyf samkv. fyrirsögn læknis, veita þeim þroskaheftu yfirleitt alla þá umönnun, sem þörf er á, og hafa náið samstarf við lækna og hjúkrunarkonur. Þá gegna þeir einnig sums staðar raunverulegum verkstjórnarstörfum, veita forstöðu deildum þeirra stofnana, er annast um þroskahefta. Nám þeirra og starf er því bæði erfitt, fjölbreytt og þýðingarmikið, þar eð framtíðarmöguleikar og lífshamingja margra þroskaheftra byggist á þeirri natni, samviskusemi og lærdómi sem þroskaþjálfinn hefur til að bera og sýnir.
Til þess að komast inn í þroskaþjálfaskólann hér þarf nemandi að vera orðinn 18 ára. Námið er þriggja ára nám, en áður þarf nemandinn að hafa lokið námi úr 2. bekk í samræmdum framhaldsskóla eða fjölbrautaskála.
Um 2% landsmanna eru taldir andlega þroskaheftir. Fötlun þeirra er þó mjög misjöfn, allt frá því, að skarpskyggni þarf til þess að greina slíkt, og upp í það. að þeir eru algerlega bjargarlausir. Sem betur fer eru þeir miklu fleiri, sem eru lítið andlega fatlaðir, en þeir, sem illa eru settir. þurfa aftur á móti mjög mikla umönnun og mikla gæslu. Síðustu árin hefur viðhorfið til þeirra andlega þroskaheftu breyst mikið hvarvetna. Áður voru þeir, sem illa fatlaðir voru, gjarnan geymdir á stofnunum ævilangt, en nú hefur það sýnt sig, að með þjálfun, námi og natni má gera fjölda þeirra, sem áður leit út fyrir að mundu verða ósjálfbjarga alla ævi, hæfa til sjálfsbjargar og jafnvel til ýmiss konar starfa.
Illa hefur gengið að komast fyrir orsakir andlegrar fötlunar, en þó er það, að kannske má setja það frv., sem ráðh. mælti fyrir áðan, um ónæmisaðgerðir í beint samband við vonina um það að takist að fækka þeim tilfellum þar sem um andlega fötlun verður að ræða. Það er svo, að andlegur vanþroski getur oft stafað af því að móðir hefur fengið rauða hunda. Nú er hægt að bólusetja við slíkum sjúkdómi. Sagt er að slæmir mislingar geti oft haft andlega rýrnun og vanhæfni í för með sér. Einnig er komin ónæmisaðgerð gegn mislingum. Þetta ásamt ýmsu fleira á sviði ónæmislækninga gefur von og fyrirheit um það, að í framtíðinni verði hægt að fækka þeim tilfellum, þar sem andleg vanheilindi eru meðfædd, og einnig gefa lækningar með lyfjum á ýmsum heilasjúkdómum vonir um það, að einnig megi lækna marga þá sem hafa verið andlega vanheilir af þeim orsökum.