30.03.1978
Neðri deild: 68. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2951 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 30. mars 1978.
Þar sem Jóhann Hafstein, 6. þm. Reykv., er sjúkur og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varam. Sjálfstfl. í Reykjavík, Geirþrúður Hildur Bernhöft ellimálafulltrúi, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.
Gunnar Thoroddsen,
form. þingfl. sjálfstæðismanna.
Til forseta Nd.“
Ég býð Geirþrúði Hildi Bernhöft velkomna til starfa í deildinni.