30.03.1978
Neðri deild: 68. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Hv. forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár í tilefni af þeim umr. sem fram hafa farið nú síðustu daga um fjárhagsvandamál Rafmagnsveitna ríkisins og það alvarlega ástand sem upp hefur komið víða hjá viðskiptamönnum þess fyrirtækis. Hér er um að ræða, að mér sýnist mjög stórt mál — mál sem snertir fjölda landsmanna, því þannig er ástatt, eins og hv. alþm. er kunnugt, að jafnvel heilir landshlutar fá alla sína raforku frá Rafmagnsveitum ríkisins og þær reka allumfangsmikla starfsemi í öllum landsfjórðungum. Ég tel því, að þegar slíkt ástand kemur upp eins og það sem hér um ræðir nú, þá sé í rauninni skylt af hálfu hæstv. ríkisstj. að gera Alþ. grein fyrir slíku stórmáli og landsmönnum öllum, sem málið varðar, og þá ekki síður þegar svo er komið, að það er farið að gripa til neyðarráðstafana, að þýðingarmikil framleiðslufyrirtæki eru beinlínis stöðvuð og við sjálft liggur að heil byggðarlög verði raforkulaus vegna þessara rekstrarvandamála fyrirtækisins. Ég hef kosið að beina þessu máli mínu til hæstv. ríkisstj. sem heildar og þá auðvitað einkum og sérstaklega til hæstv. forsrh., fremur en að beina máli mínu til hæstv. iðnrh. sem Rafmagnsveitur ríkisins heyra þó undir, af því að mér sýnist af öllum upplýsingum, sem fyrir liggja, að hér sé um ríkisstjórnarmál , að ræða — mál sem fer a. m. k. í vissum greinum út fyrir venjulegt framkvæmdasvið á vegum eins ráðuneytis. Að sjálfsögðu met ég jafngildar góðar upplýsingar, sem kynnu að koma fram í málinu frá hæstv. iðnrh. sem hverjum öðrum. Ég er hér fyrst og fremst að leita eftir ákveðnum upplýsing um um það, hvernig málið stendur og hvernig horfurnar eru.

Ég sé nú ekki þörf á því að rekja þetta mál í löngu eða ítarlegu máli, en nokkur atriði, sem fram hafa komið tel ég rétt að minnast hér á, sem sýna nokkuð hvers eðlis málið er.

Þar er þá fyrst af að taka, að fram hefur komið að meiri hluti stjórnar þessa fyrirtækis hefur sagt af sér og birt grg. með afsögn sinni. Það er alveg ljóst af þeirri grg., að þessi meiri hluti stjórnarinnar segist vilja vekja athygli á því alvarlega fjármálaástandi, sem komið sé upp hjá þessu fyrirtæki, og segist ekki una því lengur að vera við stjórn fyrirtækisins við þessar aðstæður. Að vísu kemur fram, að upp úr hafi soðið í þessum efnum þegar hæstv. iðnrh. gaf fyrirmæli fyrst til stjórnarinnar að kaupa efni í svonefnda Vestfjarðalínu, og þegar stjórnin vildi ekki verða við því vegna þess alvarlega ástands, sem komið var upp í fjárhag fyrirtækisins, þá fyrirskipaði hæstv. iðnrh. rafmagnsveitustjóra ríkisins að kaupa það efni sem um var rætt. Þessi meiri hl. stjórnar fyrirtækisins segir að þegar þetta gerðist, þá hafi mælirinn verið fullur, en tekur þó fram, að hann hafi út af fyrir sig ekki verið andvígur því, að þessi vesturlína yrði lögð, enda sýnist mér alveg augljóst af þeim upplýsingum, sem fyrir liggja í málinu, að hér er fyrst og fremst um ágreining að ræða varðandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins í heild. Það kann að vera uppi einhver ágreiningur um einstaka þætti í framkvæmdamálum, en það er greinilega ekki aðalatriði málsins. Það hefur einnig komið fram, m. a. í blöðunum í morgun, að rafmagnsveitustjóri ríkisins hafi verið að hugsa um að segja af sér einnig vegna þessa ástands.

Upplýst hefur verið, að þetta fyrirtæki skortir nú um 1200 millj. kr. til þess að geta staðið við eðlilegan rekstur á þessu ári og við þær framkvæmdir sem ráðgerðar hafa verið, miðað við þá kostnaðaráætlun sem nú liggur væntanlega fyrir. Hér er auðvitað um býsna háa fjárhæð að raða og hún er að sjálfsögðu ekki til komin nú á stuttum tíma. Það fer auðvitað ekki á milli mála, að hæstv. ríkisstj. og þá auðvitað alveg sérstaklega hæstv. iðnrh. hafa vitað í langan tíma hvernig ástatt var hjá þessu fyrirtæki, að hér var um verulegan rekstrarfjárskort að ræða og skort á framkvæmdafé, miðað við þær ákvarðanir sem þegar höfðu verið teknar um framkvæmdir.

Það er einnig upplýst, að skuldir þessa fyrirtækis séu nú orðnar um 13.8 milljarðar króna, séu þær skuldir taldar með Rafmagnsveitum ríkisins sem tilheyra að vísu Orkubúi Vestfjarða, en hefur ekki verið skipt formlega, að mér skilst, frá Rafmagnsveitum ríkisins. Einnig er upplýst, að svo sé komið að skuldbindingar um vaxta- og afborganagreiðslur fyrirtækisins séu komnar í það að nema 1804 millj. kr. á þessu ári. Þá eru að vísu einnig talin með vextir og afborganir af þeim hluta þessara lána sem tilheyrir Orkubúi Vestfjarða. Hér er um gífurlega háa fjárhæð að ræða, og kemur auðvitað engum á óvart að venjulegur rekstur kunni að eiga erfitt með að bera slík fastaútgjöld eins og þessi.

Um þessar upplýsingar er það sama að segja og um hinar sem ég minntist á, að auðvitað hefur ekkert af þessu komið mönnum á óvart. Þetta hefur ekki verið að skella á nú á síðustu dögum. Það hefur legið fyrir í langan tíma hverjar voru skuldir þessa fyrirtækis og skuldbindingar og hver útgjöldin yrðu, og auðvitað hefur þurft að gera tilheyrandi ráðstafanir í sambandi við þessi vandamál. Það er einnig upplýst, að Rafmagnsveitur ríkisins skuldi Landsvirkjun nú um 730 millj. kr. og mörgum aðilum allháar fjárhæðir, þar með talið olíufélögum.

Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað aflað mér, hefur það gengið svo til, að þetta fyrirtæki, Rafmagnsveitur ríkisins, voru reknar með talsvert verulegum halla, þ. e. hinn beini rekstur, á s. l. ári, eða hartnær 300 millj. kr. halla á rekstrinum. Hins vegar var ekki um halla að ræða á beinum rekstri fyrirtækisins árin tvö á undan, 1975 og 1976. Auk þess að hér hefur verið um hallarekstur að ræða, sem hefði ekki átt að koma neinum á óvart, hefur fyrirtækið orðið að taka á sig allmikil óvænt útgjöld eða útgjöld sem ekki hafði beinlínis verið reiknað með, eins og í sambandi við stofnlínur sem ríkisstj. hefur tvímælalaust staðið að að ákveða, eins og það að tengja sjálfa byggðalínuna á milli Suður- og Norðurlands, þ. e. a. s. að leggja línu á milli Grundartanga og Vatnshamra, en þar var um aukaútgjöld að ræða, einnig í sambandi við rafmagnsstrenginn til Vestmannaeyja. Sú endurnýjun, umbætur og viðgerðir, sem þar fór fram, og ýmislegt fleira hefur þarna komið til. Og eins og ég segi, þetta hefur verið að gerast á alllöngum tíma og vandinn hefur lengi verið fyrir hendi.

Upplýst hefur verið, að ein af meiri háttar framkvæmdum á vegum þessa fyrirtækis, þ. e. a. s. lagning svonefndrar Austurlínu frá Norðurlandsveitusvæðinu til Austurlands, hafi stöðvast vegna þess að það hafi ekki verið hægt að leysa út efni í þessa línulögn upp á 170 millj. kr. Þó er gert ráð fyrir því við fjárlagaafgreiðslu fyrir þetta ár og á lánsfjáráætlun, að tekið verði lán til þessara framkvæmda sem nemur 1 milljarði 121 millj. kr., og auðvitað er ekki búið að eyða þessari fjárhæð, síður en svo. Þrátt fyrir þessa háu fjárhæð, sem samþ. var af Alþ. nokkru fyrir áramót, þar sem gert var ráð fyrir að lokið yrði við þessa framkvæmd á árinu, stöðvast framkvæmdin strax í upphafi árs af því það er ekki hægt að leysa út efni upp á 170 millj. kr. til framkvæmdarinnar. Hafa þó verið færð að því rök, að það hafi verið mjög nauðsynlegt í sambandi við framkvæmdakostnað að leysa þetta efni út nú strax og koma því á réttan stað á hagkvæmum tíma á árinu. Mér sýnist alveg augljóst, að stöðvun af þessu tagi getur ekki byggst á því, að ekki hafi verið til fjármagn heldur hafa hér einhverjir aðilar tekið ákvörðun um að vinna ekki að verkinu. Upplýsingar hafa að vísu legið fyrir um það, að ráðgerð fjárhæð til að ljúka þessari línulagningu muni ekki reynast nægilega há eða ekki duga í heildarkostnað eins og hann er áætlaður, Það er auðvitað málefni út af fyrir sig, hvort það þarf að útvega viðbótarfjármagn til að ljúka öllu verkinu, en stöðva verkið strax í upphafi árs á þennan hátt, það er auðvitað alveg furðuleg ákvörðun. Síðan gerist það, að upp kemur greinilega deila um, hvort eigi að fara eftir ákvörðun Alþingis og verja 408 millj. kr. til Vestfjarðalínunnar, og þá bent á aðra fjárhagserfiðleika þessa fyrirtækis.

Ég vil strax segja það í sambandi við þetta atriði, að ég tel að bæði þessi fjárveiting til Vestfjarðalínu sé skuldbundin og ákveðin af Alþ. og það þurfi að gera sérstakar ráðstafanir af hálfu ríkisstj. til að kippa þessari fjárveitingu til baka. Ég tel einnig að ákvörðun Alþ. sé bindandi um lagningu Austurlínunnar. Það er auðvitað ekkert nýtt, þó áætlanir, sem gerðar eru í íslenskum krónum, gangi nokkuð á misvíxl við staðreyndir, og ég hef ekki heyrt að neitt það hafi komið upp í sambandi við kostnaðaráætlun varðandi Austurlínu sem réttlæti að ætla að stöðva verkið, þrátt fyrir ákvarðanir Alþingis, á þann hátt sem gert hefur verið. Ég tel blátt áfram vitavert að fara ekki eftir ákvörðunum Alþingis í þessum efnum.

Þá hefur einnig komið fram varðandi þessi mál, að skipuð hafi verið sérstök n. til að huga að því, hvernig mætti komast út úr fjárhagserfiðleikum Rafmagnsveitna ríkisins, og þessi n. hafi gert till. sem gengið hafi til ríkisstj. í þessum efnum. Það hefur komið fram, að þar hafi verið bent á nokkra möguleika. Ég hef ekki séð þessar till. nákvæmlega, en hef þó heyrt frá þeim sagt, að þar hafi verið bent á þann möguleika að styrkja fjárhagsstöðu Rafmagnsveitna ríkisins með því að hækka verðjöfnunargjald á rafmagni úr 13% í 20%. Ég vil strax segja það sem mína skoðun, að ég tel þessa till., miðað við allar aðstæður alveg fráleitar.

Þá mun einnig hafa verið bent á þann möguleika að auka við tekjur Rafmagnsveitna ríkisins með því að hækka rafmagnstaxta til húsahitunar frá því sem nú er. Þetta tel ég líka alveg fráleita till. miðað við aðstæður. Í þessum efnum er rétt að það komi hér fram, hvernig verðlagning er á rafmagni frá þessu stóra ríkisfyrirtæki, Rafmagnsveitna ríkisins, í samanburði við raforkuverð annars staðar á landinu, eins og t. d. hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur sem kaupir rafmagn í heildsölu frá Landsvirkjun. Ég fékk upplýsingar um þetta atriði beint frá Rafmagnsveitum ríkisins nú í morgun, og þessar upplýsingar fékk ég: Verð á svonefndum heimilistaxta hjá Rafmagnsveitum ríkisins er 86% hærra en hliðstæður taxti er hér í Reykjavík nú. Rafmagnstaxti hjá Rafmagnsveitum ríkisins, þar sem orka er seld á stærri vélar, t. d. í frystihúsum og verksmiðjum og til stærri iðnaðar, er einnig 86% hærri nú hjá Rafmagnsveitum ríkisins heldur en hér í Reykjavík. Húshitunartaxtinn er nú hjá Rafmagnsveitum ríkisins 84% hærri en hliðstæður taxti er hér í Reykjavík. Og raforka, sem seld er til ljósa, er nokkuð yfir 100% hærri hjá Rafmagnsveitum ríkisins en hér í Reykjavík. Ég vil taka það fram að þessar upplýsingar fékk ég hjá fjármálastjóra Rafmagnsveitna ríkisins nú í morgun. Vissulega geta svona rafmagnstaxtar alltaf gengið nokkuð á misvíxl, þar sem það hefur komið fyrir að Rafmagnsveitur ríkisins hækka verðtaxta sína á dálítið öðrum tíma en Rafmagnsveitan í Reykjavík eða aðrar rafmagnsveitur. Það getur verið, þegar litið er á árið sem heild, að þá sé meðaltalsverðmunurinn ekki alveg svona mikill, en það breytir engu um það, að raforkuverð frá Rafmagnsveitum ríkisins, sem fjöldamargir landsbúar verða að búa við, er miklum mun hærra en t. d. hér á Reykjavíkursvæðinu og hjá þeim sem yfirleitt skipta við Landsvirkjun. Till., sem fara í þá átt að ætla að auka þennan mismun, t. d. með því að hækka sérstaklega hitunartaxtann, eru fráleitar. Ég veit hvernig því er háttað t. d. í mínu kjördæmi, Austurlandi, sem skiptir einvörðungu við Rafmagnsveitur ríkisins, að þar er auðvitað talsvert um húsarafhitun, af því að menn hafa ekki átt möguleika á því að fá hús sín hituð upp með jarðvarma. Það er því talsvert um það þar, að hús séu hituð upp með raforku, en auðvitað verða langflestir á því svæði að búa við að kaupa olíu til kyndingar á sínum húsum.

Það er enginn vafi á því, að þeir í mínu umdæmi, sem hita hús sín upp með rafmagni, verða að borga í hitunarkostnað margfalt hærra verð en þekkist hjá þeim sem hafa aðstöðu hér í Reykjavík og geta notið hitaveitutaxtans, svo ég tel að það væri auðvitað alveg fráleitt miðað við núverandi aðstæður að ætla að leysa fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins á þann hátt að knýja fram hækkun á húsahitunartaxtanum eða yfirleitt á raforkuverðinu hjá þessu fyrirtæki.

Þá vil ég einnig í sambandi við þessi mál benda á það, að Rafmagnsveitur ríkisins hafa tekið á sig skuldbindingu um að þjóna tilteknum svæðum í sambandi við raforkumál og á sínum tíma lögðu þær mikla áherslu á það, að maður noti nú ekki sterkari orð, að fá í sínar hendur í heilum landshlutum framkvæmd þessara mála að fullu og öllu, m. a. af hagkvæmnisástæðum sem talað var um, þar mætti enginn skerast úr leik. En ástandið hefur verið þannig, t. d. á Austurlandi, að þar hafa menn verið í látlausu stríði í mörg ár í sambandi við það, að knýja það fram, að Rafmagnsveitur ríkisins gætu afhent næga raforku og að þeir gætu tryggt með sæmilegum hætti afhendingu á raforkunni. Og ástandið á Austurlandi í þessum efnum er hið bágasta. Mér er því kunnugt um það, að einstök framleiðslufyrirtæki hafa leitað eftir því nú ítrekað að fá að setja upp eigin rafstöðvar sér til öryggis af þessum ástæðum, en hins vegar ekki fengið til þess leyfi. Það er auðvitað ekki atriði sem neinn óskar eftir því að eðlilegast virðist vera að reyna að leysa þessi mál í heild.

Mér sýnist einnig á þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, að ekki sé nóg að hér sé um gífurlega mikið fjárhagsvandamál að ræða, sem er þegar farið að bitna á fólki og fyrirtækjum víða um land, heldur sé margt sem bendir til þess, að þessi vandi eigi að einhverju leyti rót sína að rekja til misklíðar eða baráttu, sem á sér stað innan stjórnarflokkanna og í ríkisstj. sjálfri. Maður skyldi halda að t. d. stjórnarblað eins og dagblaðið Vísir vissi eitthvað um þessi mál, þó ég taki það með nokkrum afslætti, sem þar er sagt, ég trúi því sem sagt ekki öllu, en í leiðara þess blaðs í gær var beinlínis fullyrt, að hér væri um stórágreiningsmál að ræða innan ríkisstj. Og þar var m. a. sagt, að þegar fjmrh. og forsrh. gæfu yfirlýsingar um það, að ætlast væri til þess, að hér yrði ríkjandi aðhaldsstefna í fjármálum, þá brygðust aðrir ráðh. þveröfugt við og tækju ákvarðanir í allt aðra átt og vildu efna til mikilla útgjalda og framkvæmda, eins og t. d. Vesturlínu. Ég skal að vísu ekkert segja um það, hvað stóran þátt hæstv. iðnrh., sem er yfirmaður Rafmagnsveitna ríkisins, á í því ástandi sem upp er komið hjá því fyrirtæki. Í rauninni sýnist mér það á þessu stigi ekki aðalatriði málsins. En hitt er alveg ljóst, að fjárhagsvandinn er þannig að ríkisstj. ber skylda til að fjalla um þetta vandamál. Og hún hefur haft málið til meðferðar. Af þeim ástæðum vil ég nú leggja fyrir hæstv. forsrh. nokkrar spurningar sem ég vil vænta að hann geti svarað hér, ásamt svo með þeirri beiðni minni, að hann gefi hér almennar upplýsingar um stöðu málsins og horfur.

Ég spyr þá í fyrsta lagi: Hvað hefur ríkisstj. gert til þess að leysa fjárhagsvandamál Rafmagnsveitna ríkisins? Það hefur verið sagt frá því opinberlega, að hæstv. ríkisstj. hafi verið á fundum um málið í morgun. E. t. v. hefur hún þá þegar tekið einhverjar ákvarðanir varðandi málið sem ég vil þá fá upplýsingar um.

Í öðru lagi spyr ég: Hvað ráðgerir ríkisstj. að gera í fjárhagsvandamálum Rafmagnsveitna ríkisins á þessu ári? Hvaða ákvarðanir hefur hún tekið sem snerta vandamál ársins í heild? Eða hefur ríkisstj. þar uppi ráðagerðir sem hægt er að skýra frá, þó að jafnvel beinar ákvarðanir hafi ekki enn þá verið teknar?

Í þriðja lagi spyr ég: Er ekki ætlunin að framkvæma þá ákvörðun Alþ. að ljúka við lagningu og tengingu á Austurlínunni á milli Norður- og Austurlandsins á þessu ári, og hefur fjármagn til þeirrar framkvæmdar verið tryggt? Af því, sem ég hef þegar greint frá, sýnist mér vera brýn þörf á að það komi skýr svör við því frá hæstv. ríkisstj., hvort ekki sé meiningin að ljúka þessu verki, leggja línuna og tengja hana á þessu ári, og hvort þá hafi verið tryggt fjármagn til þessara framkvæmda.

Í fjórða lagi spyr ég: Verður ekki staðið við þegar ákveðna fjárveitingu, 408 millj. kr., til Vesturlínu? Er eitthvert hik á hæstv. ríkisstj. að standa við þessa áætlun, sem ég tel að hafi verið samþ. hér við fjárlagaafgreiðslu fyrir jólin með þeirri lánsfjáráætlun og grg. sem þar fylgdi með við afgreiðslu fjárlaga?

Sem sagt, ég spurði: Verður ekki staðið við þessa ákvörðun Alþ. um að leggja fram þessar 408 millj. kr. til Vesturlínu á þessu ári?

Í fimmta lagi spyr ég: Hefur ríkisstj. hugsað sér að gera ráðstafanir til þess að jafna raforkuverð frá Rafmagnsveitum ríkisins til samræmis við raforkuverð annarra, eins og t. d. Rafmagnsveitu Reykjavíkur? Ég tel að mismunurinn á raforkuverði sé orðinn svo hróplegur að við það verði ekki unað lengur, því hér dregur sífellt í sundur. Ég spyr því um það, hvort ríkisstj. hafi ekki hugsað sér að gera ráðstafanir til þess að jafna þarna á milli með einhverjum hætti. Ég tel allar hugmyndir um það, að Rafmagnsveitur ríkisins, í þeirri stöðu sem þær eru, geti sem beint rekstrarfyrirtæki velt kostnaði sínum í formi raforkuverðs yfir á viðskiptamenn sína, alveg fráleitar. Að mínum dómi er ekki um annað að ræða en eigandi þessa stóra fyrirtækis verði að leggja fram um lengri eða skemmri tíma fjármagn til fyrirtækisins sem fyrirtækið sjálft þarf ekki að standa undir, annaðhvort sem óafturkræft framlag eða þá að ríkið taki á sig greiðslur á afborgunum og vöxtum af slíku fjármagni á nokkru tímabili. Það er augljóst mál, að það er útilokað með öllu, að Rafmagnsveitur ríkisins geti lagt allan þennan fjármagnskostnað, eins og hann fer hratt vaxandi, á viðskiptamenn sína. Ég vil einnig í sambandi við þessa fsp. mína benda á það, að auðvitað er fráleitt að ætla að skilja hér algjörlega í sundur landsvirkjunarsvæðið annars vegar og svæði Rafmagnsveitna ríkisins hins vegar. Auðvitað hefur Landsvirkjun aldrei getað komist neitt áfram í sínum raforkumálum nema með því að ríkisheildin hefur staðið þar á bak við og útvegað það fjármagn, sem útvega hefur þurft, og aðstoða það fyrirtæki til þess að geta það sem það getur í dag. Hins vegar er alveg ljóst að staða Rafmagnsveitna ríkisins er þannig, að þar eru rekstraraðstæður allt aðrar en á því úrvalssvæði sem Landsvirkjun hefur fengið í sinn hlut.

Í sjötta lagi spyr ég: Vill ríkisstj. ekki lýsa því yfir, að hún muni tryggja að Rafmagnsveitur ríkisins geti af fjárhagslegum ástæðum annast eðlilega orkusölu til sinna viðskiptaaðila? Þetta er í beinu framhaldi af því sem ég ræddi um áður. Það er alveg óbúandi við það og það fyrir heila landshluta að eiga yfir höfði sér svo að segja frá viku til viku, að það komi tilkynning um að af fjárhagsástæðum geti Rafmagnsveitur ríkisins ekki gert nauðsynlegustu aðgerðir til þess að tryggja afhendingu á raforku eða til þess að afla raforku eða koma henni yfirleitt til fyrirtækjanna. Ég tel því, að það sé mjög þýðingarmikið og það sé í eðli sínu sanngjarnt og eðlilegt, að hæstv. ríkisstj. gefi yfirlýsingu um það, að hún, sem stendur á bak við þetta stóra ríkisfyrirtæki, Rafmagnsveitur ríkisins, muni sjá um að þetta fyrirtæki geti selt raforku til viðskiptaaðila sinna með eðlilegum hætti, a. m. k. að því leyti til sem fjárhagsaðstöðuna varðar, — að séð verði um það, að af fjárhagslegum ástæðum geti þetta fyrirtæki staðið undir þessari skyldu sinni. Ef yfirlýsingar um þetta liggja ekki fyrir, þá er í rauninni ekki um annað að ræða fyrir þá, sem hér eiga hlut að máli, en að þeir verða með einhverjum hætti að brjótast hér út úr. Það er ekki hægt að láta loka fyrir sér öllum sundum þannig.

Ég minntist hér örlítið á ástandið á Austurlandi í raforkumálum, en það er í sannleika sagt óskaplegt. Ber að hafa það í huga í sambandi við þessi mál, að t. d. þar — og er eflaust eitthvað svipað ástatt annars staðar — þar eru heil byggðarlög sem fá alla sína raforku frá Rafmagnsveitum ríkisins framleidda í dísilstöðvum. Þannig er t. d. ástatt í Vopnafirði. Ef fyrirtækið getur ekki keypt olíu eða staðið undir rekstri, þá er lokað þar fyrir alla raforkusölu, ekki bara til eins fyrirtækis, heldur staðarins í heild. Svipað má í rauninni segja um ástandið í þessum efnum á Hornafjarðarsvæðinu. Þar er mikill meirihluti af raforkunni framleiddur í dísilstöðvum og í langan tíma af árinu er raforkan einvörðungu framleidd í dísilstöðvum. Gefist því þetta fyrirtæki upp af fjárhagslegum ástæðum, þá er auðvitað algjört öngþveiti fyrir á þessum stað.

Ástandið er einnig þannig í flestum byggðarlögum á Austurlandi, að þar væri um mjög litla raforku að ræða ef ekki nyti við rekstrar á dísilstöðvum, svo það er eðlilegt að fólkið á þessum stöðum vilji fá yfirlýsingu um það frá hæstv. ríkisstj., að hún sem bakhjarl þessa fyrirtækis, Rafmagnsveitna. ríkisins, skuldbindi sig til að sjá svo um, að fyrirtækið geti gegnt skyldum sínum með eðlilegum hætti.

Það, sem ég hef hér sagt, snertir í rauninni aðeins þennan hluta þessa stóra vandamáls, þ. e. a. s. fjárhagsvandamál Rafmagnsveitna ríkisins, eins og sá vandi blasir við í dag, þ. e. a. s. rekstrarskuldirnar og rekstrarfjárskorturinn og fjárskortur til ráðgerðra framkvæmda. Það er þessi fjárvöntun upp á 1200 millj. á þessu ári. En svo koma auðvitað aðrir þættir inn í þetta mál, sem eru auðvitað nátengdir þessu og ég skal ekki ræða hér um, a. m. k. ekki í bráð, en snerta það, hvernig Rafmagnsveitur ríkisins standa sig við að afla raforku með eðlilegum hætti, t. d. á Austurlandi, þar sem beðið hefur verið árum saman eftir því að fá ákvörðun um framkvæmdir. Ég skil mætavel að það geti staðið í þeim, sem hafa með stjórn fyrirtækisins að gera eða framkvæmdastjórn þar, að ráðast í framkvæmdir eða taka stórar ákvarðanir, ef fjárhagsmálin eru skilin eftir í slíku reiðileysi ár eftir ár eins og hér virðist vera.

Ég ítreka það svo, að ég beini þessu máli mínu til ríkisstj. í heild og vænti svars hæstv. forsrh. En ég vil líka fá fram í þessum umr. afstöðu beggja stjórnarflokkanna. Það er kunnugt af upplýsingum, að hæstv. iðnrh. hefur lagt fyrir ríkisstj. tilteknar till. og gert ýmsar till. og m. a. till. varðandi framkvæmdir á sviði raforkumála. Það er því alveg augljóst mál, að Framsfl. með helming ráðh. í ríkisstj. getur auðvitað ráðið hér úrslitum líka. Ég tel að hann geti ekki orðið „stikkfrí“ í þessum efnum. Hann verður vitanlega að segja hver afstaða hans er, hvernig hann hefur brugðist við þeim till. sem fram hafa komið. Eða getur það verið, að málið standi þannig, að í ríkisstj. fáist ekkert fram, jafnvel þó að meiri hl. sé fyrir einhverri tiltekinni afstöðu.

Ég læt máli mínu lokið að sinni, en vil vænta þess, að hæstv. forsrh. verði við óskum mínum um að gefa hér upplýsingar um ástandið í þessum málum, ákvarðanir ríkisstj. og horfur, við hverju megi búast á næstunni í þessum efnum.