30.03.1978
Neðri deild: 68. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2959 í B-deild Alþingistíðinda. (2195)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Virðulegi forseti. Á fundi ríkisstj. 16. þ. m. var rædd grg. frá iðnrn. um fjármál Rafmagnsveitna ríkisins. Á þeim fundi þótti rétt að fela n. manna að gera till. um lausn fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins, eins og honum var lýst í grg. iðnrn. Til þessa starfs voru nefndir Helgi Bergs, fyrrv. form. stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins, Gísli Blöndal hagsýslustjóri, og Páll Flygenring ráðuneytisstjóri iðnrn. Þeir skiluðu síðan hugmyndum um lausn fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins til ríkisstj. sem hún tók til umr. á fundi sínum 21. mars og aftur nú í morgun, og skal ég í eins stuttu máli og mér er kleift fara yfir þær tillögur.
Það er e. t. v. rétt fyrst að greina frá í hverju fjárhagsvandi Rafmagnsveitna ríkisins er fólginn. Til þess að einfalda það mál má segja að hann sé fólginn í fyrsta lagi í rekstrarhalla 1977, 140 millj. kr., í öðru lagi áætluðum rekstrarhalla 1978, 285 millj. kr., eða samtals í rekstrarhalla þessara tveggja ára 425 millj. kr. Þá er enn fremur um það að ræða, að framkvæmdakostnaður s. l. árs, 1977, fór umfram áætlanir að upphæð 446 millj. kr., og sundurliðaðist það þannig, að framkvæmdakostnaður Norðurlínu, til þess að unnt væri að taka hana í notkun fyrir þennan vetur, varð 100 millj. kr., framkvæmdakostnaður vegna skemmda, sem urðu á Vestmannaeyjastreng, 100 millj. kr., kostnaður við aðveitustöðvar 140 millj. kr., kostnaður við dísilstöðvar 40 millj. kr., og umframkostnaður við sveitarafvæðingu 66 millj. eða samtals þessar 446 millj. kr. Þá liggur nú ljóst fyrir, að framkvæmdakostnaður á þessu ári, annars vegar við Norðurlínu og hins vegar við Austurlínu, mun fara fram úr áætlun um 325 millj. kr., og er sú grein gerð fyrir því, að upphaflegar áætlanir hafi verið byggðar á kostnaðartölum frá maí 1977. Samtals er því framkvæmdakostnaður umfram fyrri áætlanir 771 millj. kr. og fjárhagsvandinn þannig í heild 1196 millj. kr.
Þær hugmyndir, sem þremenningarnir báru fram og ríkisstj. hefur rætt á tveimur fundum, eru í fyrsta lagi að hækka hitunartaxta frá 1. maí n. k. um 25%, og sú skýring er gefin á því, að lengst af hafi taxtinn verið látinn fylgja olíuverði, en nokkur vanhöld hafa verið á því að undanförnu, þannig að hitunartaxtinn hefur nú dregist aftur úr sem nemur þessum 25%. Hækkun þessi gæfi 110 millj. kr. tekjuauka á þessu ári og 220 millj. kr. á heilu ári. Það skal fram tekið, að ríkisstj. féllst á þessa till. þremenninganna á fundi sínum í morgun.
Í öðru lagi er lagt til að verðjöfnunargjald raforku verði hækkað úr 13% í 20% frá 1. maí n. k. Tekjuauki yrði 235 millj. kr. á þessu ári og 470 millj. kr. á heilu ári. Ríkisstj. féllst ekki á þessa hugmynd á fundi sínum í morgun, og ég vil láta það koma fram, að ég tel ekki unnt að hækka verðjöfnunargjald raforku úr þeim 13% sem það nú stendur i. Hins vegar taldi ríkisstj. rétt að taka alla taxta Rafmagnsveitna ríkisins til endurskoðunar og kanna með hvaða hætti unnt væri að endurskoða þá þannig að tekjuöflun Rafmagnsveitna ríkisins yrði meiri en að óbreyttum töxtum. Hér hefur verið nefnt m. a. af hv. 2. þm. Austurl., að dæmi væru til þess, að raforkutaxtar RARIK væru 80% hærri en Raforkutaxtar Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Ég skal ekki draga það í efa, að unnt sé að finna þessari staðhæfingu stað að svo komnu máli, en vara þó við því að taka einstaka taxta til samanburðar milli þessara rafveitna. Það gefur ekki heildarmynd af raforkukostnaði annars vegar viðskiptavina RARIK og hins vegar viðskiptavina t. d. Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Annars er rétt að það komi fram, svo að skýrt sé, að hér er ekki fyrst og fremst um að ræða samanburð á raforkutöxtum Rafmagnsveitu Reykjavíkur annars vegar og töxtum á raforkuverði Rafmagnsveitna ríkisins hins vegar. Margar rafmagnsveitur í landsbyggðinni, þ. á m. margra kaupstaða hvarvetna um landið og kauptúna hafa sambærilega rafmagnstaxta og Reykjavík og jafnvel lægri, En það, sem í mínum huga útilokar það að hækka að svo stöddu verðjöfnunargjald rafmagns, er það, að ef við tökum meðalverð seldrar raforku Rafmagnsveitna ríkisins miðað við kwst. annars vegar og meðalverð raforku á selda kwst. hjá Rafmagnsveitum ríkisins hins vegar, þá kemur fram, að meðalverðið er lægra hjá Rafmagnsveitum ríkisins heldur en hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Hér er um flókið mál að ræða, sem ég treysti mér ekki til, hreinskilnislega sagt, að skýra í stuttu máli. En þó er skýringin m. a. fólgin í því, að svokallaðir marktaxtar, þ. á m. hitunartaxtar, vega langtum þyngra í raforkusölu Rafmagnsveitna ríkisins en t. d. hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og það ber auðvitað að hafa í huga, að þarna kemur inn vandamál þeirra sem búa við rafhitun og eru á svæði Rafmagnsveitna ríkisins. Sú stefna var löngum að auka mjög rafmagnshitun með beinni tengingu notenda við rafmagnskerfið. Þetta hefur reynst mjög óhagkvæmt fyrir Rafmagnsveitur ríkisins, og hefur ekki, því miður, verið snúið frá þeirri stefnu nægilega snemma. Hins vegar hafa Rafmagnsveitur ríkisins nú uppi áætlanir um það í samráði við ýmis sveitarfélög, m. a. á Austurlandi, að kanna möguleika á fjarvarmaveitum sem geta stuðst við raforku þegar svo býður við að horfa, en þegar mest álag er á raforkukerfinu, þá notast við svartolíu, t. d. að svo miklu leyti sem jarðhiti er ekki fyrir hendi. Þessi stefna, að auka rafhitun með þessum hætti, sem hefur verið uppi hér áður og fyrr meir, hefur sem sagt leitt til þess ásamt öðru, hvernig komið er fjárhagsmálum Rafmagnsveitna ríkisins.
Ég tók eftir því, að hv. 2. þm. Austurl. sagðist vera andvígur hækkun á tekjum Rafmagnsveitna ríkisins með hækkun rafmagnstaxta og hann sagðist enn fremur vera andvígur því að hækka verðjöfnunargjaldið. Hvorugt vildi hann gera. En hvert var hans ráð? Það getur ekki verið annað en að auka lántökur og skuldabyrði og vaxtabyrði Rafmagnsveitna ríkisins og stefna í enn meira óefni. Að vísu sagði hann að ríkissjóður sem eigandi Rafmagnsveitna ríkisins yrði að taka að sér skuldir Rafmagnsveitnanna og fjármagnskostnað. En ef ríkissjóður á að taka þessa byrði á sínar herðar, þá er óhjákvæmilegt að sjá ríkissjóði fyrir auknum tekjum, og það verður ekki gert nema með því að hækka skatta á alla landsmenn. Það hlýtur því að vera úrræði hv. 2. þm. Austurl. að krefjast tafarlausrar skattahækkunar á alla landsmenn til þess að afla Rafmagnsveitum ríkisins fjár og leysa þennan fjárhagsvanda.
Vissulega er um þessar þrjár leiðir að ræða. Við getum ekki skotíð þessum vanda frá okkur með neinum hætti og við getum ekki leyst hann með öðru móti. Við hv. 2. þm. Austurl. erum sammála um það, að hækkun á verðjöfnunargjaldi sé ekki réttlætanleg. Hann telur hækkun á raforkutöxtum ekki réttlætanlega. Ég tel aftur á móti réttlætanlegt að hækka hitunartaxta Rafmagnsveitna ríkisins að því marki sem hugmyndir þremenninganna benda til og ríkisstj. hefur samþ., þ. e. a. s. að hitunarkostnaður fari ekki fram úr kostnaði olíukyndingar. Þessu til viðbótar vil ég að fari fram og ríkisstj. hefur talið eðlilegt að fari fram könnun á taxtauppbyggingu Rafmagnsveitna ríkisins og með hvaða hætti unnt er á rökréttan hátt að afla fyrirtækinu tekna á þann hátt. Ákvörðun hefur engin verið tekin um það, hvort eða að hve miklu leyti hækkanir muni leiða í kjölfar þeirrar athugunar. En á þessu ári vil ég alveg sérstaklega taka fram, að ég tel eðlilegt að athugun fari fram, um leið og ákvörðun verði tekin, hvernig háttað verði rekstri byggðalína og hvernig fjármagnskostnaður byggðalína verði uppi borinn á þessu ári.
Við munum það öll, að mörg orð hafa verið um það höfð, hvílíkt hagræði það væri fjárhagslega fyrir rafmagnsnotendur og þjóðarbúið í heild að koma byggðalínum í notkun, hvort heldur er Norðurlínu eða Austurlínu. Norðurlína hefur gert sitt gagn að vissu marki á liðnum vetri og sparað áreiðanlega stórfé í olíunotkun. Mig minnir að á sínum tíma hafi verið talað um að hver kwst., ef framleidd væri með olíu, kostaði um eða yfir 20 kr. kwst. Nú fram að áramótum hafa þær kwst., sem fluttar hafa verið norður í land, verið seldar á 5 kr. kwst., þ. e. a. s. 4 kr. heildsöluverð til Landsvirkjunar, 1 kr. í flutningsgjald. Af þessari 1 kr. fara 70 aurar í orkutap, viðhalds- og rekstrarkostnað línunnar, en aðeins 30 aurar eru upp í fjármagnskostnað, vexti og afborganir af línunni eða til þess, meðan Rafmagnsveitur ríkisins sjá um þennan rekstur, að bæta fjárhagsstöðu Rafmagnsveitna ríkisins. Ég tel eðlilegt að það sé mörkuð stefna í þeim efnum, hver skuli bera uppi fjármagnskostnað byggðalínunnar norður í tengslum við vanda þann sem við erum nú að ræða sérstaklega hjá Rafmagnsveitum ríkisins.
Við höfum hér líka, alþm., heyrt um hagræði það sem hlytist af Austurlínu. Háar tölur hafa einnig verið nefndar um þann sparnað í olíueyðslu og kostnaði sem sú tenging hefur í för með sér. Ég tel eðlilegt að við gerum okkur um leið grein fyrir því, að hve miklu leyti notendur eiga að njóta góðs af þessum sparnaði og að hve miklu leyti þessi sparnaður á að ganga upp í fjármagnskostnað, afborganir og vexti af kostnaði við byggðalínurnar. Og brátt kemur að því einnig, að sömu ákvörðun verður að taka í tengslum við Vesturlínu. Með þessu er ég ekki að segja að það verði lagt á notendurna að greiða fjármagnskostnaðinn að fullu. Ég er ekki einu sinni að slá því föstu, að hve miklu leyti notendur eiga að borga eða að hve miklu leyti sagt verður að hér sé um einhvers konar vegakostnað í rafmagnsmálum að ræða sem greiða verði að hluta til úr ríkissjóði. En ég legg áherslu á það, að við verðum að marka stefnu og taka ákvörðun í þessum efnum sem sanngjörn sé. Ég vek aðeins athygli á því, að fyrir fjármagnskostnaði vegna Norðurlínu og Austurlínu á þessu ári er séð í lánsfjáráætlun með því að taka lán að fullu og öllu leyti bæði fyrir afborgunum og vöxtum. Ég tel eðlilegt að til bráðabirgða verði að einhverju leyti um meira gjald og bærra raforkuverð að ræða fyrir þá raforku sem fer um þessar byggðalínur, þannig að með þeim hætti ætti á þessu ári, ásamt endurskoðun taxta Rafmagnsveitna ríkisins, að vera unnt að bæta nokkuð þann vanda sem við blasir.
Í þriðja lagi var það hugmynd þeirra þremenninganna, að það, sem þá vantaði á að rekstrarhalla væri mætt, en það voru 80 millj. kr. ef tekjuaukinn af fyrirhugaðri hækkun verðjöfnunargjalds kæmi til á árinu, væri framlengt eða réttara sagt rekstrarlán fengið til þess að standa undir þeirri fjárvöntun og gert ráð fyrir greiðslu þeirrar upphæðar á árinu 1979. Og það er ljóst mál, að að svo miklu leyti sem auknar tekjur Rafmagnsveitna ríkisins í einu eða öðru formi koma ekki til greina, þá verður að skjóta þeim vanda fram á árið 1979 eða þar til fyrir auknum tekjum er séð.
Í fjórða lagi var það till. þeirra þremenninga, að framlengt verði rekstrarlán sem átti að koma til greiðslu í sept. 1978, að upphæð 250 millj. kr., og mundi lækka samsvarandi þann rekstrarvanda í heild sem við er að glíma, að upphæð tæpar 1200 millj. kr.
Þá voru eftir rúmlega 500 millj. kr. og þá voru tvær hugmyndir uppi hjá þremenningunum,: annaðhvort að fresta Vesturlínu og nokkrum öðrum framkvæmdum samtals að þeirri upphæð eða að afla lánsfjár til þessara framkvæmda. Ríkisstj. taldi ekki unnt að fresta að byrja á Vesturlínu og telur auðvitað æskilegt, ef unnt er, að draga úr framkvæmdum Rafmagnsveitna ríkisins að einhverju leyti, en telur þó rétt að líta raunsæjum augum á það mál, þannig að gera verður ráð fyrir því, að þarna verði að afla lánsfjár á innlendum markaði eða með vörukaupalánum að upphæð milli 450 og 520 millj. kr.
Ég hygg að ég hafi með þessum orðum mínum í höfuðatriðum svarað hv. 2. þm. Austurl., en vil þó til öryggis draga það saman, sem hann spurði um, á þann hátt, að ríkisstj. hefur að hluta til samþykkt tillögur um aukna tekjuöflun Rafmagnsveina ríkisins og hefur í athugun frekari tekjuöflun fyrirtækinu til handa. Ríkisstj. telur nauðsynlegt að nú á þessu ári séu teknar ákvarðanir um fjármálalega uppbyggingu, ekki eingöngu Rafmagnsveitna ríkisins, heldur og rafmagnskerfisins í heild í landinu. Í þriðja lagi mun verða lokið Austurlínu. Í fjórða lagi munu vera hafnar framkvæmdir við Vesturlínu. Í fimmta lagi var spurt um, hvort ráðstafanir yrðu gerðar til að jafna raforkuverð. Það er ekki unnt að gera, ef menn vilja ekki hækka verðjöfnunargjald, eins og mér skildist vera skoðun hv. 2. þm. Austurl. jafnt og mín, með öðru en hækkuðum sköttum og ríkissjóður tæki á sig þessar byrðar. Af því tilefni er rétt að það komi hér fram, að frá ríkissjóði eru lagðir töluverðir fjármunir til orkumála. Núverandi verðjöfnunargjald, 13%, gefur samkv. fjárlagatölum 875 millj. kr„ sem skiptast á milli Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða, en jafnframt er kostnaði Orkubús Vestfjarða létt af Rafmagnveitum ríkisins. Þessi upphæð mun samkv. nýjustu áætlunum væntanlega verða í heild yfir milljarð kr. Þessi upphæð er auðvitað til þess fallin að jafna orkuverð í landinu og einmitt réttlætt með því. Þá er og í fjárl. nú á þessu ári annars vegar um að ræða um 1200 millj. kr. framlag til Orkusjóðs umfram jöfnunargjaldið og hins vegar milli 800 og 900 millj. kr. framlag til jöfnunar á kyndingarkostnaði í landinu eða um 2 milljarðar kr. Þetta er einnig til jöfnunar á orkukostnaði landsmanna. Það verður auðvitað að vera ákvörðun Alþingis og fjárveitingavaldsins, hve langt er unnt að ganga í þessu efni, hvort unnt er með almennum sköttum eða jöfnunargjaldi að jafna metin meira en þessar tölur segja til um. Ég tel nauðsynlegt að hv. Alþ. geri sér grein fyrir því og um leið fyrir fjármálum Rafmagnsveitna ríkisins til nokkurra ára, þannig að fjármagnskostnaður þess fyrirtækis og kröfur til þess fyrirtækis, m. a. af hálfu hv. alþm., miðist við fjárhagsgetu þess á hverjum tíma. Ég vil þó segja það sem mína skoðun, að æskilegt tel ég að í þessu efni settu menn sér þau mörk, að 13% verðjöfnunargjald á selda raforku og framlag úr ríkissjóði, er miðist við allt að einu prósentustigi söluskatts — en við það hefur nú síðustu árin verið miðað — verði látið nægja sem heildarframlag í þessu efni. Ef sú fjárhæð leysir ekki vandann og óeðlilegt misræmi eða misvægi er á milli landsmanna hvað orkukostnað snertir, þá mætti benda á að það sýnist ekki óeðlilegt hlutverk Byggðasjóðs að fjármagna að einhverju leyti félagslegar framkvæmdir á sviði orkumála. Rafmagnsveitustjóri hefur tjáð mér, að hann hefði hug á því við gerð fjárhagsáætlana og framkvæmdaáætlana fyrirtækisins að greina á milli félagslegra framkvæmda annars vegar og arðbærra framkvæmda hins vegar. Ég tel það mjög mikið spor í rétta átt og þá geta alþm. — fjárveitingavaldið — gert það upp við sig, hvernig leysa eigi vandamálin og hvaða framkvæmdir eigi að hafa forgang fyrir öðrum og menn horfast þá í augu við þau félagslegu vandamál sem bundin eru strjálbýli í okkar landi. En hver rekstrareining verður auðvitað að bera ábyrgð á sjálfri sér. Stjórnendur hennar verða að vita það, að þeir starfa innan ákveðinna marka og hafa ekki óútfyllt ávísanahefti undir höndum. Eftirlitsaðili hlýtur fjárveitingavaldið að vera, og því er auðvitað ekki óeðlilegt að þessi mál séu tekin hér til meðferðar. Ég get því sagt það, að það er stefna ríkisstj. að þjónusta á þessu sviði, orkusviðinu, sé sem öruggust öllum landsmönnum til handa, um leið og við verðum þó að gera okkur grein fyrir því, hvað sú þjónusta kostar og hvernig hún skuli fjármögnuð á hverjum tíma.
Ég verð svo að segja það eins og er, að ég hef ekki orðið var við neina misklið innan ríkisstj. varðandi lausn þess vanda sem fyrir hendi er. Ég vil láta það koma hér fram, að þessi vandamál hafa fyrr og frekar komið fram í fjölmiðlum, vegna þess að fjmrn. hefur nú mun meira og strangara eftirlit með útborgunum heldur en nokkru sinni áður, til þess að skapa hverri rekstrareiningu nauðsynlegt aðhald og til þess að menn horfist í augu við vandann nægilega snemma. Það verður þó að segjast eins og er, að verðbreytingar og verðbólgan skapa hér út af fyrir sig vanda á þessu sviði sem öðrum, og þetta er eitt dæmi um það, að nauðsynlegast af öllu er að ráða niðurlögum hennar.
Greiðslur til Rafmagnsveitna ríkisins hafa farið fram — eins og greiðslur til annarra ríkisstofnana og ráðuneyta — samkv. greiðsluáætlun sem gerð er í tengslum við fjárlagagerð, eftir því sem talið er að greiðslur muni til falla. Nú hefur með tilfærslum innan þessarar greiðsluáætlunar verið gengið frá greiðslum til olíufélaganna er vildu ekki una því að eiga inni hjá Rafmagnsveitum ríkisins svo háa upphæð sem 55 millj. kr. námu og birtu þá tilkynningu sem kom í Ríkisútvarpinu í gær um lokun á afgreiðslu til dísilstöðva á Austurlandi. Sömuleiðis hefur með tilfærslum innan greiðsluáætlunar verið séð fyrir því, að efni til Austurlínu er leyst út. Og loks var ákveðið á fundi ríkisstj. í morgun að fela fulltrúum fjárlaga- og hagsýslustofnunar eða fjmrn. annars vegar og iðnrn. hins vegar að endurskoða greiðsluáætlanir varðandi Rafmagnsveitur ríkisins með tilliti til þess, að rekstur þeirra gæti gengið með eðlilegum hætti. En það er enn fremur rétt, að hér sé skýrt frá því, að greiðsluvandræði Rafmagnsveitna ríkisins eru meiri en ella einnig af þeim sökum, að Rafmagnsveiturnar tóku upp nýtt innheimtufyrirkomulag sem átti að horfa til bóta. En því miður hafa byrjunarörðugleikar við framkvæmd þess orðið til þess, að tekjur stofnunarinnar hafa komið inn seinna en áætlað var, og nemur fjárþörfin eða fjárvöntunin af þeim sökum um það bil 300 millj. kr. En vonir standa til að þeir fjármunir komi inn á næstu vikum og mánuðum.
Ég þykist með þessu hafa gert grein fyrir því, hvernig mál þessi standa og hver afstaða og stefna ríkisstj. er, og hef í leiðinni látið í ljós eigin skoðanir á ýmsum höfuðþáttum þessara mála.