31.03.1978
Sameinað þing: 60. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2986 í B-deild Alþingistíðinda. (2202)

147. mál, orkusparnaður

Flm. (Benedikt Gröndal) :

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 4. landsk. þm. leyft mér að endurflytja till. til þál. um orkusparnað. Till. fluttum við á síðasta þingi, og í umr., sem þá urðu, kom það fram að hv. 2. þm. Vestf., Steingrímur Hermannsson, hafði einnig hreyft þessu máli á þingi áður, og tel ég rétt að geta þess. Till. hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta gera úttekt á orkubúskap Íslendinga og hefja markvissar aðgerðir í því skyni að auka hagkvæmni í orkunotkun þjóðarinnar og draga úr henni þar sem þess er kostur.“

Það er mikið rætt um orkumálin á þessu þingi, og á þeim eru margar hliðar. Ég ætla ekki að blanda mér í neitt annað en það sem felst í þessari till., sem er að benda á þörfina fyrir beinar aðgerðir til að spara orku. Beinn orkusparnaður er veigamikill þáttur í framkvæmdum í orkumálum hjá öllum nágrannaþjóðum okkar og nálega öllum þjóðum sem ekki eru sjálfar útflytjendur á olíu eða kolum eða einhverjum öðrum orkugjöfum.

Enda þótt íslendingar séu svo gæfusamir að eiga í landinu miklar ónotaðar orkulindir mun það taka langan tíma og kosta mikið fé að hagnýta þær á þann hátt, að þjóðin hafi af þeim eins mikið gagn og hugsanlegt er. Jafnvel þegar því marki verður náð, ef nokkurn tíma er hægt að ná því alveg, mun enn verða rík þörf til að flytja inn feiknamikið af orku, sérstaklega olíu og olíuvörum, því að vafalaust verður nokkur bið á því, að tæknin geri okkur kleift að hagnýta vatnsorku eða jarðhitaorku til að knýja báta, flugvélar og bifreiðar.

Af þessu leiðir að þrátt fyrir mikinn sparnað, sem vissulega felst í hverju húsi sem við getum tengt við hitaveitu í landinu, og hafa verið gerð veruleg átök á því sviði nú undanfarið, þá var í hittiðfyrra flutt inn eldsneyti að verðmæti yfir 10 milljarða króna. Þetta er mikið fé. En þeir, sem búa hér í Reykjavík og leggja það í vana sinn að horfa út á sjóinn, hljóta að undrast hvílíka fjármuni það hljóti að kosta sem öll þessi olíuskip flytja hingað, en það má heita nálega stöðugur straumur af þeim, þannig að eitt komi þegar annað fer árið um kring.

Nú mætti spyrja hvar og hvernig sé hægt að spara eldsneyti eða eldsneytisnotkun. Ég mun ekki flytja um það langt mál, en nefna aðeins nokkra málaflokka.

Það er í fyrsta lagi hægt með því að gera auknar kröfur til orkunýtingar í sambandi við húsahitun og heimilishald. Þar geta bæði komið til kröfur varðandi einangrun húsa, gluggastæði, sjálfvirk stjórntæki og annað, ýmist með reglum um þau hús, sem verið er að byggja eða byggð verða, eða með aðstoð við að breyta húsum í þá átt að þau þurfi minni orku til hitunar. Slík aðstoð við húseigendur er nú þegar í framkvæmd í nokkrum löndum. Hér er um að ræða töluvert mikið svið, því safnast þegar saman kemur, þó ekki sé um stórupphæðir að ræða í hverju húsi. Þó er reynslan víða sú, að á þessu sviði eru menn reiðubúnir til að leggja í nokkurn kostnað við byggingu og breytingar húsa til að reyna að draga úr hitunarkostnaði, sérstaklega þar sem hitað er með olíu hér á landi.

Í öðru lagi vil ég nefna orkunýtingu í atvinnurekstri. Það er hægt að koma við verulegum orkusparnaði í ýmiss konar iðnaði og öðrum atvinnurekstri ef sérfróðir menn einbeita sér að því viðfangsefni. Ýmsir eru þeirrar skoðunar, að hér á landi hafi menn ekki hugsað nógu mikið um þá hlið málanna þegar byggt hefur verið eða komið upp ýmiss konar atvinnutækjum. Það eru t. d. komin á markað einföld tæki sem geta unnið varma úr útblásturslofti loftræstingar og nýtt það aftur við upphitun, svo að eitthvað sé nefnt. Með strangari reglum eða kröfum og í sumum tilfellum með beinni aðstoð í lánum eða á annan hátt ætti að vera hægt að greiða fyrir því, að atvinnurekstur landsmanna spari verulega aðkeypta orku.

Þriðja sviðið, sem ég nefni, eru sjálfar samgöngurnar. Nú er það svo, að við erum land einkabifreiðarinnar og bifreiðafloti landsmanna allur er orðinn tiltölulega stór og þarf á miklu eldsneyti að halda. Það er rík ástæða til þess, þegar eldsneytið er orðið svo dýrt sem raun ber vitni, að gera alvarlegar og nýjar samanburðarathuganir á orkunotkun sem mundi vera við vöruflutninga með bifreiðum annars vegar og með skipum hins vegar, ekki síst þegar ríkisskipin sigla meira eða minna tóm umhverfis landið árið um kring. Þau gætu flutt miklu meira magn en þau gera.

Þá vil ég benda á að Íslendingar eru ein af sárafáum þjóðum, a. m. k. á okkar hluta jarðarinnar, sem hefur engar ráðstafanir gert í sambandi við notkun einkabifreiða sem eru eldsneytisfrekar. Jafnvel Bandaríkin, sem eru mesta framleiðsluland og notkunarland bifreiða og þar að auki auðugasta land veraldar, hafa sett mjög strangar reglur til að takmarka framleiðslu og sölu á bifreiðum sem nota mikið eldsneyti og knýja það fram, að framleiddar verði og seldar bifreiðar, sem sérstaklega eru sparneytnar á bensin. Hér á landi hefur ekkert slíkt verið gert, og líður ekki svo vika að menn sjái ekki streyma inn í landið tryllitæki sem eru að verulegu leyti leikföng og gleypa olíu á við fjöldamarga atvinnubíla. Nú kann að vera, að þrátt fyrir allt væru þetta ekki upphæðir, sem munaði mikið um á þessu sviði einu. En við skulum minnast þess, að eingöngu aðhaldið, að knýja menn til að hugsa meira um þessa hlið málanna, mundi hafa verulegt áróðursgildi og hjálpa til að auka árvekni þjóðarinnar hvað snertir sparnað á hinum verðmætu orkuefnum sem við þurfum að flytja inn fyrir dýrmætan gjaldeyri og raunar gjaldeyri sem við oft og tíðum eigum ekki til.

Það mætti nefna margt fleira, en ég vil að lokum ítreka, að mér hefur fundist þennan lið vanta algerlega í alla viðleitni okkar í orkumálum undanfarið, og ég hygg að það væri án verulegs kostnaðar hægt að undirbúa aðgerðir á þessu sviði sem mundu á fáum árum skila þjóðinni verulegum sparnaði.

Herra forseti. Ég legg til að till. verði að lokinni umr. vísað til allshn.