03.04.1978
Efri deild: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3019 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)

241. mál, manneldisráð

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Til manneldisráðs var upphaflega stofnað árið 1939, en þá fól dóms- og kirkjumálarn. 7 manna n. að rannsaka mataræði landsmanna. Ráðið skilaði af sér störfum árið 1944, en þá lágu fyrir niðurstöður rannsókna í sérstakri bók sem framkvæmdastjóri ráðsins, dr. Júlíus Sigurjónsson, síðar prófessor, hafði tekið saman og bar titilinn Mataræði og heilsufar á Íslandi. Kom í ljós að mataræði landsmanna var á margan hátt, mjög ábótavant, sérstaklega skorti vítamín í fæðuna.

Manneldisráð gerði það að till. sinni, að sett yrði á laggirnar sérstakt ráð kunnáttumanna til þess að vera heilbrigðisstjórninni til ráðuneytis um ýmis mál er vörðuðu manneldi. Var landlækni falið að semja frv. til l. um þetta efni í samráði við læknadeild Háskóla Íslands. Varð frv. þetta að lögum á öndverðu ári 1945 og eru þau lög enn í gildi.

Samkvæmt gildandi lögum eiga sæti í manneldisráði auk landlæknis, sem er lögskipaður forseti ráðsins, 4 læknar er ráðh. skipar til 5 ára í senn. Á þessum tíma voru það einkum læknar sem skiptu sér að manneldismálum, og mátti því þetta heita eðlileg ráðstöfun og réttmæt, þó að hún eigi alls ekki við í dag. Skipað var í ráðið 1945, síðan ekki fyrr en 1974, þannig að óskipað var í ráðið í nær aldarfjórðung. Hvað valdið hefur þessu er erfitt að segja um, en ekki er ólíklegt að sú þörf, sem menn álitu vera fyrir manneldisráð á stríðsárunum og í lok styrjaldarinnar, hafi ekki verið eins mikil þegar fyrna tók yfir hörmungarnar og öll framleiðsla komst í eðlilegt horf og framfarir jukust á þessu sviði.

Eins og kunnugt er fylgja oft styrjöldum hörgulsjúkdómar og herja þeir ekki eingöngu á styrjaldaraðila, heldur og á alla sem á einhvern hátt tengjast slíkum ófriði. Þetta gilti jafnt um Íslendinga sem næstu nágrannaþjóðir. Á þessum tíma var matvælaframleiðsla fremur einföld í sniðum og algengustu neyslumatvæli skiptu tugum frekar en hundruðum. Nú er þessum málum á annan hátt farið. Framleiðsluhættir á matvælasviðinu er miklu flóknari nú en þeir voru fyrir 30 árum. Skipta algengustu neyslumatvæli hundruðum og eiga þar innfluttar vörur stóran hlut að máli. Tekin hefur verið upp kennsla í ýmsum æðri skólum í manneldis- og matvælafræðum. Í landinu starfa nú þegar nokkrir sérfræðingar á sviði manneldisfræði og matvælafræði, matreiðslu o. s. frv. Á læknasviðinu hafa einnig orðið umtalsverðar breytingar með aukinni áherslu á manneldisfræði og skyld fræði innan læknadeildar Háskóla Íslands og reyndar annarra háskóla á þessu sviði í nágrannalöndum okkar.

Nú er það svo, að æ verður ljósara að milli mataræðis og heilsufars eru mikil tengsl. Góð heilsa er dýrmætasta eign hvers manns, og undirstaða hennar eru hollar lífsvenjur og þá ekki síst sú fæða sem maður velur sér. Er því nauðsynlegt að heilbrigðisyfirvöld geti tryggt að tekið sé tillit til hollustuháttasjónarmiða við ákvarðanir er geta haft áhrif á neysluvenjur fólks. Til að sinna þessu verkefni þurfa heilbrigðisyfirvöld að hafa sér til ráðuneytis fólk með sérþekkingu á matvælum, manneldi og þeim sviðum læknisfræði sem tengjast næringarfræðinni. Með hliðsjón af þessu telur heilbrigðis- og trmrn. nauðsyn á áframhaldandi starfi manneldisráðs, en að taka beri tillit til breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og þess vegna þurfi að breyta lögum um manneldisráð og færa þau í raunhæfara form. Vegna þessa skipaði heilbr.- og trmrh. á öndverðu s.l. sumri n., er í áttu sæti dr. Jón Óttar Ragnarsson matvælaefnafræðingur, Ólafur Ólafsson landlæknir og Vigdís Jónsdóttir skólastjóri, til þess að endurskoða gildandi lög um manneldisráð. N. skilaði áliti í jan. s.l., og er frv. það, sem hér er flutt, að mörgu leyti byggt á till. nefndarinnar.

Ég ætla mér ekki að fjalla nánar hér um einstakar greinar þessa frv., en legg áherslu á það, að endurskipað var í manneldisráð árið 1974 og að í dag er kominn vísir að slíkri stofnun. Vinnur þar sem stendur einn starfsmaður á skrifstofu. Að öðru leyti vísa ég til frv. og allítarlegra athugasemda við það og legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.