31.10.1977
Efri deild: 10. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (224)

37. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ástæður til þess, að ekki lágu fyrir við gerð frv. nýrri tölur en frá 1975, voru einfaldlega þær, að Hagstofa Íslands, sem tekur saman tekjur sveitarfélaga af útsvörum, aðstöðugjaldi og fasteignaskatti, hefur ekki gefið út nýlegri upplýsingar en frá árinu 1975. Hv. þm. getur komið hér með lista yfir fyrirtæki sem greiða aðstöðugjöld til Reykjavíkur og hvað þeirra tekjutap yrði mikið. Það getum við allir gert, því skattskrá Reykjavíkur liggur að sjálfsögðu fyrir. En til þess að átta sig á aðstöðumun sveitarfélaganna verður að hafa meira heldur en skrá yfir aðstöðugjald. Það verður að hafa samanlagðar tekjur sveitarfélaganna af þessum þremur megintekjustofnum. Þó að þær upplýsingar kunni að liggja fyrir einhvern tíma á næstu vikum, þá hafa þær enn ekki verið tiltækar. T.d. eru ekki upplýsingar um þessar tölur birtar í Hagtíðindum fyrir árið 1975 fyrr en í febr. 1977, og ég geri ráð fyrir að Hagstofan sé nú u.þ.b. að ganga frá skýrslum um árið 1976.