03.04.1978
Neðri deild: 69. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3040 í B-deild Alþingistíðinda. (2249)

103. mál, gjaldþrotalög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Hæstv. forseti. Ég vil þakka allshn. fyrir vandlega athugun á frv. Ég get fallist á þær brtt. sem hún flytur við það. Þær eru að vísu nokkuð margar að tölunni til, en þær eru, eins og frsm. gat um, ekki að því er varðar mikilvæg efnisatriði, heldur til leiðréttingar og lagfæringar og eru því til bóta. Og það er áreiðanlega ekki ofmælt sem hann sagði um nauðsyn á nýrri löggjöf um þetta efni. Það hefur sjálfsagt með réttu sitthvað verið fundið að dómsmálameðferð hér á landi. Ég hygg þó að á engu sviði dómsmálanna hafi málum í raun og veru verið eins áfátt og á sviði skiptamála.

Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. En ég vonast til þess, einmitt með tilliti til þess sem hv. frsm. gat um, að n. beggja d. hafa unnið saman að frv., að von sé til þess að frv. nái fram að ganga á þessu þingi, þó að nokkuð sé nú liðið á þingtímann.