04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3092 í B-deild Alþingistíðinda. (2269)
351. mál, gjaldtaka á fjölsóttum stöðum í umsjá ríkisins
Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Ég skildi ráðh. þannig, að ferðaskrifstofur hefðu staðið fyrir innheimtu. Það er alveg öfugt. (Landbrh.: Ef það hefði verið, sagði ég.) Já, ferðaskrifstofur hafa verið látnar borga eða þeir, sem hafa staðið fyrir ferðamannahópum, og fengið kvittanir, sem ég ætla ekki að segja hvernig líta út hér úr ræðustól. En ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að láta athugun fara fram. Ég tók skýrt fram, að ég væri ekki að væna rn. um eitt eða neitt í þessu sambandi. En hverjir veittu sjálfum sér eða öðrum heimild til að innheimta talsverðar fjárhæðir á viðkomandi stöðum? Það vil ég fá að vita.