04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3105 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

229. mál, lausaskuldir bænda

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Í þessu sem öðru hef ég kosið að skýra frá málinu eins og það stendur, en ekki að gylla það með einhverjum hæpnum vonum. Það var nú svo á síðari hluta síðasta árs, að þá var eitt af verkefnum, sem landbrn. varð að fást við, að útvega lán vegna óþurrkanna hér á Suður- og Vesturlandi. Það varð að finna þá peninga, því að þeir lágu hvergi á lausu. Þetta tókst þó að leysa eins og þá þurfti með og jafnvel svo, að það reyndust ekki eins margar umsóknir um þessi lán og gert var ráð fyrir.

Samhliða því og þó frekar í framhaldi var unnið að þessu máli af þeim manni, sem mest hefur unnið að og besta þekkingu hefur á þessu og ég heyri að allir treysta. Og ég vil nú bæta því við, að ég tel að það megi treysta öllum þremenningunum sem vinna að þessu máli. Formaður nefndarinnar hefur tjáð mér, að það hafi orðið allveruleg breyting á þessu á milli áranna 1975 og 1976, þannig að þeim fækkaði sem eftir aðstoð óskuðu. Mat hans er það, að þeim muni fækka ekki síður á milli áranna 1976 og 1977. Kemur síðar í ljós, hvort svo reynist. En hann vinnur nú af fullum krafti að þeirri athugun, og jafnhliða er svo verið að vinna að því, hvaða leiðir eru hugsanlegar til úrlausnar þessu máli.

Það hefur áður fallið í minn hlut að reyna að leysa úr slíku. Ég er enginn töframaður að finna fjármagn, en það er nú svo, að það verður gert sem hægt er að leysa úr þessu og mér er það fullkomlega ljóst, að það verða fleiri en einn að koma þar til.