04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3110 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)

356. mál, markaðsmál landbúnaðarins

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Það er aðeins örstutt aths. Mér heyrðist það, þegar ég hlustaði á hæstv. ráðh. áðan, að hann hefði það á orði, að verðábyrgð á útfluttar landbúnaðarafurðir hefði ekki náð hámarki, þ. e. a. s. 10% af samanlögðu heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslu hvers verðlagsárs, nema mjög sjaldan frá 1970–1971. Mig minnir að það hafi verið eitthvað á þá leið sem hæstv. ráðh. talaði hér áðan.

Ég vil aðeins láta það koma fram í þessu sambandi, að á þskj. 117 er frv. til l. um breyt. á l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl., en flm. þessa frv. eru ég og hv. þm. Benedikt Gröndal. Á bls. 6 í þessu þskj. koma fram einmitt um þetta upplýsingar sem unnar eru af starfsmanni í Hagstofu Íslands. Þessar upplýsingar stangast talsvert á við þær upplýsingar sem mér heyrðist að hæstv. ráðh. gæfi hér áðan. Þær ná frá verðlagsálinu 1963–1964 til verðlagsársins 1976–1977, en þó er um bráðabirgðatölur að ræða á verðlagsárunum 1975–1977. Aðeins til upplýsinga vil ég geta þess, að verðlagsárið 1963–1964 var greidd verðábyrgð 100%, verðlagsárið 1964–1965 nam greidd verðábyrgð 96% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsárið 1965–1966 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsárið 1966–1967 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsárið 1967–1968 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsárið 1968–1969 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsárið 1969–1970 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsár 1970–1971 99% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsár 1971–1972 7.9% af leyfilegri ábyrgð, verðlagsár 1972–1973 7% af leyfilegri ábyrgð, verðlagsárið 1973–1974 nam verðábyrgðin 100% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsár 1974–1975 86% af leyfilegri verðábyrgð, verðlagsár 1975–1976 90% af leyfilegri verðábyrgð og verðlagsárið 1976–1977 100% af leyfilegri verðábyrgð.

Á þessu árabili, frá verðlagsárinu 1963–1964 til verðlagsárs 1976–1977 hafa greiddar útflutningsuppbætur numið leyfilegri hámarksupphæð, 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar, alls átta sinnum.

Þetta vildi ég, herra forseti, að fram kæmi í þessum umr.