04.04.1978
Sameinað þing: 62. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3124 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)
61. mál, hafnaáætlun 1977-1980
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að fara út í almennar umræður í þetta sinn, vegna þess að ég geri frekar ráð fyrir því, að það geti orðið þegar skýrsla um framkvæmdir á liðnu ári verður til meðferðar, eitthvað verði um almennar umræður í því sambandi. Ég ætla ekki einu sinni að fara að ræða um Grundartanga, þó að maður kunni öll atriði varðandi málið utanbókar og geti flutt þá ræðu fyrir viðkomandi aðila þegar það á við.
Það, sem ég ætlaði að segja, var það, að ástæðan til þess, að fyrir þessari áætlun var ekki talað í haust, var sú breyting sem raskaði samræmi fjárlagafrv. og áætlunarinnar. Þegar þessi áætlun var undirbúin í samráði við hagsýslustofnunina, var niðurstöðutala framkvæmdanna á árinu 1978 sú sem var reiknað með að yrði í fjárlagafrv. Þetta tókst því miður ekki og var því breytt í síðustu meðferð undirbúnings fjárlagafrv. Það gerði það að verkum, eins og hv. þm., sem hér hafa talað, hafa tekið fram, að þarna varð ekki samræmi á milli. Þetta er — ég tek undir það — mjög slæmt og gerði gildi áætlunarinnar rýrara en ætlast var til að það yrði. Ég vil bæta því við, að skoðun mín er sú, — ég vil staðfesta skoðun þeirra hv. tveggja þm. sem hér hafa talað, — að afskaplega mikil nauðsyn sé að reyna að gera þessar áætlanir sem raunhæfastar. Slíkt er afskaplega erfitt í þjóðfélagi okkar, þar sem verðbólga ríkir svo mikil sem raun ber vitni og þessar framkvæmdir eru svo mjög tengdar því verðlagi, sem er á hverjum tíma, og þar kemur það allt með fullum þunga — þess vegna er það mín skoðun, að betra sé að gæta hófs við afgreiðslu áætlunarinnar í upphafi en þurfa að breyta henni mikið eftir að hún er gerð.
Nú vil ég segja það, að ég hafði vonað að hv. fjvn. gæti afgreitt þessa áætlun núna, þannig að við fjárlagagerðina fyrir næsta ár væri hægt að taka mið af henni. Ég veit að áætlunin kemur seint fyrir hv. n., en ástæða til þess er m. a. sú, að n. hefur verið í annasömum störfum í sambandi við vegáætlunina, og yrði að taka þessa áætlun í framhaldi af því. En mig langar til þess að fara fram á það við hv. formann n. og nm. að afgreiða þessa áætlun sem ályktun Alþ. Þess vegna tók ég það fram í ræðu minni áðan, að miða skyldi það, sem búið er að gera, við raunveruleikann og framhaldið í samræmi við það. Ég held að við verðum að gera okkur fulla grein fyrir því, að betra er að gæta hófs í framkvæmdaröðuninni og draga úr hraðanum við framkvæmdir núna en þurfa að gera það síðar. Ég vil minna á, og skal samt ekki fara út í það að marki, að verulega hefur áunnist á þessum síðustu árum, en það skal ég ræða þegar skýrslan kemur fram.
Ég vil aðeins segja það, að mig langar til að þingið afgreiði áætlunina, svo að komið sé frá því formsatriði. Ég tek undir það, með hv. þm., að nauðsynlegt er að reyna að gera hafnaáætlun á svipuðu stigi og vegáætlun, þó að við yrðum þar einhverju smávegis að breyta, en þó er meira áríðandi að sýna ekki of mikla bjartsýni sem yrði svo óraunhæft í framkvæmd. — Þetta langaði mig til þess að segja.