04.04.1978
Sameinað þing: 62. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3130 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

216. mál, þjónustu- og úrvinnsluiðnaður í sveitum

Flm (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Á þskj. 416 höfum við hv. þm. Ragnar Arnalds, Stefán Jónsson, Jónas Árnason og Garðar Sigurðsson leyft okkur að flytja svohljóðandi þáltill.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir sérstökum stuðningi opinberra aðila við stofnun þjónustu- og úrvinnsluiðnaðar í sveitum.

Byggðadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins skal falið að rannsaka möguleika smáiðnaðar í sveitahreppum, safna hugmyndum um hugsanlegar framleiðslugreinar, kanna viðhorf og áhuga heimamanna víðs vegar um land og gera áætlun um framkvæmdir. Við undirbúning þessa máls ber einnig að taka mið af þeirri allsherjarathugun og tillögugerð varðandi atvinnumöguleika aldraðra, sem samþykkt hefur verið á Alþingi.

Jafnframt skal lánadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins falið að veita heimaaðilum aðstoð við stofnun fyrirtækja, sem komið er á fót samkv. þessari áætlun, og skipuleggja fjármagnsöflun til framkvæmda. Sérstaklega ber að kanna möguleika á stofnun framleiðslusamvinnufélaga í sveitum og skal því rekstrarformi veittur sérstakur stuðningur. Stuðla ber að því, að veitt verði óafturkræf framlög úr Byggðasjóði eða ríkissjóði til stuðnings smáiðnaði í sveitum, allt að 15% stofnkostnaðar.

Þegar ár er liðið frá samþykkt þessarar till., skal ríkisstj. gefa Alþ. skýrslu um framkvæmd hennar.“

Sú till., sem hér er flutt, þarfnast ekki mjög langrar framsögu umfram það sem fram kemur í grg. Þar eru höfuðástæðurnar fyrir flutningi hennar raktar, þar með talin aðalkveikjan að till., vitnað í bréf frá fólki að austan sem telur að einhvers markviss átaks sé þörf umfram það sem beint snertir búskaparhliðina, ef búsetu eigi að tryggja í sveitum. Þau bréf verða ekki rakin ítarlega, en gefa engu að síður góða hugmynd um það, hvað veldur áhyggjum þessa fólks og fjölmargra annarra þeirra sem bera velferð sveitanna og framtíð þeirra fyrir brjósti.

Fyrst langar mig að lesa kafla úr sjálfri grg. okkar flm, en bæta svo við fáeinum orðum, bæði úr bréfum þessum svo og öðrum almennum hugleiðingum. Í grg. segir svo, með leyfi forseta:

„Það er vart þörf á að rekja byggðaþróun á Íslandi og þann mikla fólksflótta úr sveitunum síðustu áratugi, sem hefur sett mark sitt á alla þjóðlífsþróun okkar. Þrátt fyrir allan andróður misviturra manna er öllum þorra þjóðarinnar ljós sú höfuðnauðsyn sem felst í blómlegum landbúnaði, sem geri hvort tveggja í senn, að fullnægja þörf þjóðarinnar fyrir þá hollu og góðu fæðu, sem landbúnaðarafurðir okkar eru, og leggja til mikilvægt og dýrmætt hráefni til iðnaðar, sem veitir miklum fjölda atvinnu og eykur stórum útflutningsverðmæti okkar.

En búsetu í sveitum þarf að tryggja sem best, og skapa þarf því fólki, sem þar býr, fjölbreyttari möguleika en nú er varðandi atvinnu, þó tímabundin væri eða aðeins að hluta unnin, eða beina þjónustu varðandi landbúnaðinn sjálfan eða úrvinnslu honum tengda.

Hin mikla vélanotkun í sveitum kallar á nærtæka og trygga þjónustu á annatímum og hana er víða að finna, þó hún hafi í engu verið styrkt svo sem skyldi og sé enn mjög ófullkomin og hvergi nærri slík sem hún þyrfti að vera.

Íslenska ullin og gærurnar eru að verða sífellt stærri og verðmeiri þáttur í þjóðarframleiðslu og atvinnuþróun okkar og er það vel.

En leiðir þyrfti að finna að því marki, að sveitafólkið sjálft gæti þar í auknum mæli komið inn í vinnsluna með einhverjum hætti, jafnvel svo að þeir, sem þar byggja gætu haft þar af aðalatvinnu. Ein saumastofa mun nú rekin í sveit á landi hér og ekki annað vitað en að það hafi gefið góða raun.

Flm. þessarar till. telja það eðlilegast, enda á það sér lagastoð, að Framkvæmdastofnun ríkisins sé réttur aðili jafnt til athugunar og samráðs við heimamenn sem áætlunargerðar í framhaldi af því, og yrði þar um verkefni byggðadeildar stofnunarinnar að ræða. Hins vegar væri það svo lánadeildarinnar að sjá um fjármagnshliðina, svo sem till. gerir ráð fyrir.“

Ég vék hér áðan að nokkrum bréfum og skal vitna í nokkur þeirra. Í því fyrsta segir, með leyfi forseta:

„Það er ekki vansalaust, hve öll þjónusta er sótt í þéttbýlið, jafnvel nauðsynlegustu viðgerðir. Bein þjónusta við sveitirnar heim í sveitirnar mundi styrkja búsetuna og ætti að vera krafa okkar sveitafólks. En þar vantar leiðir og ráð.“

Í öðru bréfi segir: „Ég hef lengi hugleitt leiðir að því marki, að við tækjum virkari þátt í úrvinnslu afurða okkar en nú er. Við björgum því á haustin, að unnt sé að slátra búfé okkar, en síðan ekki söguna meir. Hér þyrfti að verða breyting á.“

Í þriðja bréfi segir: „Hvað um þá öldruðu í sveitinni? Satt er það, að þeir vinna lengi ýmis bústörf, en aukin vélarnotkun breytir þar miklu. En þeirra vandamál er ekki minna í raun en annarra aldraðra, sem verða að hverfa af almennum vinnumarkaði löngu áður en hæfilegt og sæmilegt er, af því að til þeirra eru gerðar sömu kröfur og annarra. Má ekki finna einhverja leið til lausnar atvinnuvanda aldraðra í sveitum, svo að gamla fólkið megi dvelja heima sem lengst?“

Ekki efa ég að ýmsum þykir till. af þessu tagi vera léttvægt framlag, þegar lítið er á vanda íslensks landbúnaðar og sveitanna okkar í heild. Eflaust þykir sumum sem hér sé öfugt að farið, að ætla að koma upp í sveitunum annars konar starfsemi en þeirri hefðbundnu sem þar á sér nú stað, starfsemi sem á í ærnum erfiðleikum, atvinnugrein sem vægast sagt stendur völtum fótum, ef ekki verður að gert og ný heildarstefna mótuð, sem tryggt geti lífvænleg kjör öllum þeim sem landbúnað stunda af alúð og kostgæfni, svo sem er um yfirgnæfandi hluta íslenskrar bændastéttar. Nokkrar leiðir út úr þeim vanda hafa flm. þessarar till. einnig reifað á Alþ. og gert grein fyrir þeim, svo að ekki skortir á það, að vandamál landbúnaðarins sérstaklega sem atvinnugreinar hafi verið til meðferðar tekin af okkur. Út í það skal ekki farið hér, því að þar er um miklu flóknara mál að ræða en svo, að hæfi í framsögu fyrir þessari afmörkuðu till. Till. lýtur að því að færa almenna þjónustu og vissa úrvinnslu afurðanna beint til þeirra sem við geta tekið og telja sig eiga að geta tekist á við viss viðbótarverkefni jafnhliða búskapnum, verkefni fyrir ungt fólk, verkefni fyrir aldraða og — eins og fram kemur í bréfi austan úr Breiðdal — viss verkefni fyrir bændakonur að vetri til, „sem áreiðanlega gætu stundað arðvænlegri störf en prjóna lopapeysur fyrir smánarverð til þess að láta aðra græða á því“, svo að vitnað sé beint til orða bréfsins. Sama kona minnir mig á það í öðru yngra bréfi, að rangt sé að aðeins ein saumastofa sé nú í sveit á landi hér, þær séu tvær, önnur í Víðidal nyrðra, hin á Barðaströnd vestra. Í bréfinu segir: „Ég hef kynnt mér báðar af allgóðri afspurn og veit að þær hafa einungis haft jákvæð áhrif fyrir búskap og búsetu og þær hafa ekki gengið lakar, nema síður sé, en saumastofur í kauptúnum.“

Vissulega væri ástæða til að fara nánar í það hér, hvernig hagur saumastofanna í landinu er og hve í raun er illa að þeim búið. Inn á þau mál var nokkuð komið hér í dag varðandi vandamál eins ákveðins fyrirtækis, Álafoss hf. En ég vík alveg sérstaklega að þeim smærri og veigaminni, sem þó hafa afgerandi þýðingu fyrir atvinnumál ýmissa staða. Það hljóta að vera maðkar í mysunni þegar í ljós kemur að söluverð fullbúinnar flíkur frá saumastofu til umboðsaðila hér heima nemur innan við 40% af söluverði hennar erlendis. Ég skal ekki hætta mér út í umr. af því tagi. Þó er mér af vissum ástæðum málið skylt, þar sem við nokkrir heima á Reyðarfirði höfum einmitt barist í bökkum við að halda uppi saumastofu þar, þar sem allur tilkostnaður hefur verið í lágmarki og þar sem atvinnunnar hefur verið knýjandi þörf. Athugun á þessum málum í heild, framleiðslu og sölu, væri áreiðanlega þörf og einhverjir milliliðir, aukaaðilar, sem koma inn í þessa mynd áreiðanlega meira og minna óþarfir. Á þetta er minnst sérstaklega vegna þess, að ég sá það í enn nýrri fréttum en þegar þessi till. var samin, að erfiðleikar saumastofanna t. d. á Norðurlandi væru gífurlegir, og vegna þess að í grg. okkar er vikið að saumastofum sérstaklega. Í þrem bréfum til mín hefur þetta verið nefnt sem æskilegasta tækifærið til þess að auka atvinnumöguleika í sveitum. Er það af ofureðlilegum ástæðum, þar sem um er að ræða úrvinnslu eða fremur fullvinnslu á landbúnaðarafurð.

Sá iðnaður, sem á landbúnaðarafurðum hyggist í dag og skapar hvort tveggja aukinn gjaldeyri og atvinnu mjög margra, gleymist oft í landbúnaðarumr. Því er sérstök ástæða til að minna hann á, ekki síst þegar jafnvel forustumenn í samtökum iðnverkafólks, sem byggja í verulegum mæli á þessu, hafa allt á hornum sér sem viðkemur íslenskum landbúnaði, svo sem um eru miður skemmtileg dæmi. Hins vegar er það mála sannast, að ef ekki verður betur að þessari iðngrein búið og þeim, sem hana stunda, þá þýðir litt fyrir okkur flm. að vera að benda á þessa leið sérstaklega, en öðru skal ekki trúað en þar verði á róttæk breyting, svo mikla möguleika sem við eigum í fullnýtingu enn meiri en nú er á ullinni okkar og gærunum einnig. Það væri a. m. k. sorglegt, ef þeir möguleikar væru látnir víkja, svo sem annar innlendur iðnaður, fyrir óráðstall misviturra stóriðjuþræla, svo sem þó er vaxandi hætta á.

Um þjónustuiðnaðinn í sveitum, viðgerðir búvéla og bifreiða m. a., hef ég fengið mjög ítarlega grg. frá oddvita austur á Héraði. Væri rétt að sú n., sem þetta mál fær til meðferðar, kynnti sér hana. Þar er að vísu að miklu víðara sviði víkið. Hann segir m. a., að hin eðlilega aðalþjónustumiðstöð alls Fljótsdalshéraðs sé á Egilsstöðum, en frá henni megi veita ýmiss konar þjónustu beint út í sveitirnar, til fólksins þar, í stað þess að það sæki hvað eina, smátt og stórt, til miðstöðvarinnar. Hann nefnir sem dæmi bónda einn þar í sveit sem blátt áfram bjargi bændum með búvélar sínar án allrar aðstoðar opinberra sjóða eða annarra við mjög ófullnægjandi aðstöðu, sem gæti nýst betur, orðið fullkomnari og enn fleirum til gagns, ef betur væri að staðið, en til þess þyrfti stuðning og skilning á mikilvægi þess í mikilli fjarlægð frá Egilsstöðum að hafa þar vissa lágmarksþjónustu, sem allra fullkomnasta að því marki sem þar væri unnt. Hann dregur hvergi í efa að hér væri um fullt ársstarf tveggja til þriggja manna að ræða, ef vel væri að staðið. Þar á hann auðvitað við, að um stærra svæði væri að ræða en þessa einu sveit sem hann er oddviti fyrir — þar væri um þrjár til fjórar sveitir eða sveitarfélög að ræða. Hér er aðeins dæmi tekið, en víðar mætti eflaust fleiri finna, e. t. v. enn róttækari, en allt það mundi könnun sú leiða í ljós, sem till. gerir ráð fyrir. Það skal líka undirstrikað alveg sérstaklega, að könnunarþátturinn er aðalforsenda allra athafna. Hér á ekki í neinu að rasa um ráð fram, því að nákvæm könnun á óskum og vilja heimamanna er hinn eðlilegi undanfari allra áætlana um þetta verkefni. Sú könnun leiðir í ljós hvort um óskir einstakra aðila er að ræða eða almennan og virkan vilja til athafna, ef viss aðstoð og skipulagning kæmi til. Um það fullyrðum við flm. ekkert. En eftir kynningu á þessari till. á bændafundi austur á Héraði kom í ljós meiri áhugi á þessu en ég jafnvel átti von á, og þar voru nýjar hugmyndir reifaðar, sem án alls efa eiga eftir að koma fram ef könnun þessi verður framkvæmd af fullri alúð, svo sem ráð er fyrir gert.

Hinn tiltölulega öflugi Byggðasjóður hefur ekki svo mjög komið við sögu varðandi landbúnaðarþáttinn, þó að reynt sé að nefna viss lán til vinnslustöðva landbúnaðarins og vinnuvéla ræktunarsambanda. Eflaust hefur einhver þjónustustarfsemi verið styrkt eða fengið lánsaðstoð einnig, en allt er það þó í mjög smáum stíl. Það er líka ljóst að bændur almennt eru á þeirri skoðun að Byggðasjóður eigi í ríkari mæli að koma til aðstoðar og uppbyggingar í vissum þáttum landbúnaðar, m. a. í því sem þessi till. snertir beint og óbeint. Flm. er ljóst, að ef könnunin verður unnin af þeim ágætu starfsmönnum, sem byggðadeildin hefur yfir að ráða, mun hún verða marktæk hið besta, og ekki erum við í efa um að hún leiði í ljós vilja miklu víðar en menn grunar, þó áreiðanlega muni raunsæi ráða og menn muni ekki vilja í neinar óráðsframkvæmdir ráðast. En jafnljóst er hitt, að aukaaðstoð þarf til að koma víðast hvar, ef ekki alls staðar, og okkur flm. þykir í hvívetna eðlilegt, að þar sé ráð fyrir því gert og lánadeildinni í Framkvæmdastofnuninni því falið að veita aðstoð og að því stuðlað, að allt að 15% stofnkostnaðar gæti orðið í formi óafturkræfra framlaga til þess að komast megi yfir byrjunarörðugleika sem líklegir hljóta að verða á veginum.

Varðandi eðlilegan þátt framleiðslusamvinnufélaga í þessum aðgerðum þarf vart að fjölyrða meira en gert er í grg. Það skal hins vegar undirstrikað af hálfu flm. að þeir hafa mikla trú á slíku formi á atvinnurekstri. Alþ. hefur staðfest gildi og þýðingu þessa rekstrarforms með sérstakri lagasetningu, og þar sem það hefur verið í alvöru reynt er árangurinn hinn ágætasti og hefur sannað áþreifanlega yfirburði sína, ef vel og rétt er að staðið. Ekki síst hafa flm. trú á því, að í sveitum landsins kæmi þetta rekstrarform sterklega til greina, því að samhugur, samhjálp og samvinna eru þar meir ríkjandi en víðast annars staðar.

Um lokaatriðið er það að segja, að eðlilegt hlýtur að teljast að Alþ. sé gefin um það skýrsla, hvernig til hafi tekist um framkvæmd till. sem þessarar, þar sem byggt er á lögum í veigamiklum greinum, en efndirnar, framkvæmd könnunar og aðgerðir í kjölfarið, skipta öllu, svo sem er um miklu fleiri till. á þingi, sem síðan kalla á fsp., stundum ár eftir ár, um framkvæmd og efndir á skýrum samþykktum Alþ. Stutt og greinargóð skýrsla væri um margt eðlilegri leið og gerði þá fsp. þar af leiðandi óþarfar um framkvæmd slíkra tillagna.

Þetta mál er seint fram komið og ég get vart verið bjartsýnn á afgreiðslu þess nú, þegar þess er gætt t. d., að till., sem mælt var fyrir í okt. s. l., hafa að því er virðist sofnað að fullu í n. En flm. munu áreiðanlega halda þessu máli vakandi og aflvaki till., viss vilji fólks úti í sveitunum til aukinna möguleika einnig þar til fjölbreytni í atvinnu, mun án efa verða áfram fyrir hendi. Mín trú er sú, að sú hreyfing, sem ýtt hefur þessu af stað, muni vaxandi og hana ber að virkja sem hest.

Ég vil svo að endingu, herra forseti, óska eftir því, að þessari till. verði að lokin