05.04.1978
Neðri deild: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3157 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)

Umræður utan dagskrár

Ólafur G. Einarsson:

Hæstv. forseti. Vegna þessarar ræðu hv. þm. Karvels Pálmasonar vil ég segja aðeins örfá orð: Í fyrsta lagi það, að ekki þarf atbeina hæstv. forseta til þess að fundur verði haldinn í fjh: og viðskn. Ég veit ekki hvort margar þn. hafa haldið fleiri fundi á þessu þingi en fjh.- og viðskn. Ég undanskil þó að sjálfsögðu fjvn. Hins vegar er rétt, að þetta mál, sem hv. þm. gerði hér að umtalsefni, þ. e. frv. til l. um sjónvarpssendingar á fiskimiðin við landið, sem hann er fyrsti flm. að, hefur ekki fengið sérstaka umfjöllun í n. þrátt fyrir að hún hafi haldið marga fundi á þessu þingi. Hv. þm. Lúðvík Jósepsson er annar flm. þessa frv. og hann á sæti í fjh.- og viðskn. Ég verð að segja, að þó hann hafi minnst á þetta mál öðru hverju, þá hefur hann ekki rekið á eftir því með miklum þunga.

Ég hef reynt að koma á fundi í n. í þessari viku, en það hefur ekki tekist. Ég mun boða fund í n. í fyrramálið og láta slag standa, hvort nm. geta komið því við að mæta. Ég mun taka þetta mál fyrir á þeim fundi, en get ekki lofað því, hvort það hlýtur afgreiðslu þá. — Þetta vildi ég láta koma fram.