05.04.1978
Neðri deild: 70. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3161 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)

205. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Virðulegi forseti. Félmn. hv. Nd. hefur haft mál þetta til athugunar. Við 1. umr. málsins benti hv. 2. landsk. þm., Benedikt Gröndal, á að nauðsynlegt væri að athuga málið með hliðsjón af þeirri lagasetningu sem fram fór á Alþ. skömmu fyrir jólahlé þm. Var að sjálfsögðu orðið við því og málið athugað. Kom í ljós, þótt sú hefði máske ekki verið hin efnislega aths. þessa hv. þm., að nauðsynlegt þótti og sjálfsagt að gera nokkra breytingu á einum tölulið í lagafrv., á þá leið, að 4. tölul. orðist eins og segir í brtt. n., sem hún er sammála um að flytja, á þskj. 478. Þetta er sams konar breyting og við í félmn. leggjum jafnframt til að verði gerð við þau hin önnur tvö málin sem fjalla um sama efni, um aðra lögbundna lífeyrissjóði sem eru á dagskrá þingsins í dag, mál nr. 20 og 21.

Ég vil fyrir hönd n. mæla með því, að þessi brtt. verði samþykkt og að málið haldi áfram. Læt ég þessi orð nægja sem framsögu fyrir þessum þrem málum á dagskránni, nr. 1.9, 20 og 21.