05.04.1978
Neðri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3171 í B-deild Alþingistíðinda. (2361)
192. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Gunnlaugur Finnsson) :
Herra forseti. Ég vildi koma á framfæri örfáum aths. Í fyrsta lagi í sambandi við ræðu hv. 5. þm. Suðurl.
Hann talaði um hávaðasama stráka og stelpur úti í bæ, það væri fyrst og fremst að þeirra undirlagi að ég er 1. flm. að þessu frv. Ég vil gjarnan segja honum það, að varðandi sérstaklega 2. gr. frv. hafa fyrst og fremst haft samband við mig hógværir, hæglátir bændur um að einfalda þessi atriði og ekki neinir strákar eða stelpur. En það getur vel verið, að í hugarheimi hans blandist þessu einhver hávaði í strákum sem eru að reyna að nudda sér upp í efstu sæti, eins og hann orðaði það, og er það kannske eitthvað sem nærri honum kemur þessa dagana.
Ég vildi segja það í öðru lagi, að ég fyrir mitt leyti gæti vel hugsað mér að kosningadagur til sveitarstjórna yrði ákveðinn síðustu helgi í júní. Það er ekki að ástæðulausu að kosningar eru ákveðnar þá til Alþingis, á sama degi um land allt. Þá rekst þetta ekki á, hvorki á hvítasunnu né hátíðarhöld sjómanna. Ég veit hins vegar að andstaða er gegn því, að kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna fari fram sama dag. Ég geri ekki ráð fyrir því, að grundvöllur sé fyrir slíkri breytingu eins og málum er háttað nú. Ég vil þó sérstaklega benda á, ef menn líta til baka, að svo lengi sem ég man eftir hefur ekki farið saman kosningaár til sveitarstjórna og Alþingis fyrr en 1974 — eftir þingrofið þá — og svo aftur nú, vegna þess að nú hefur ekki átt sér stað þingrof, heldur er starfað að allt kjörtímabilið. Hins vegar þarf ekki nema eitt þingrof til þess að þarna sé kominn ruglingur á aftur og það fari ekki fram á sama ári kosningar til sveitarstjórna og til Alþingis. Ef síðasta helgi í júní yrði t. d. lögleidd væri alveg eins hugsanlegt, ef menn eru ekki reiðubúnir til þess að láta kosningar fara fram þá bæði til sveitarstjórnar og Alþ., sem ég sé út af fyrir sig ekkert athugavert við, þá væri alveg eins hugsanlegt að kjósa fyrst til þings, einfaldlega með því að rjúfa þing og kjósa í upphafi júní eins og fordæmi eru fyrir. Slíkar ákvarðanir væri því hægt að taka hverju sinni þegar málið bæri svo að.
Talað hefur verið um það alveg sérstaklega, að hagsmunir verkafólks væru bornir fyrir borð. Við þekkjum þennan tón. Það er varla talað hér um mál, a. m. k. af sumum mönnum, án þess að staða verkafólksins sé tekin sérstaklega fyrir. Ég vil benda hv. ræðumanni á að það er vissulega, t. d. í sveitum landsins, unnið um þetta leyti á vorin bæði laugardaga og sunnudaga. Fjölmargar starfsstéttir í þjóðfélaginu vinna líka á sunnudögum. Ég viðurkenni að fleiri vinna á laugardögum en sunnudögum, en eins og ég lét í ljós, þegar ég mælti fyrir þessu frv., þá tel ég að sá fjöldi sé ekki svo afgerandi, miklu stærri hópur, að ekki sé fyllilega stætt á því að kosið verði á laugardögum, miðað við þá kosti sem því fylgja — þá kosti að menn eru reiðubúnir og betur hvíldir til að taka til starfa í upphafi næstu vinnuviku, ef þarna er umþóttunartími á milli. Við vitum að kosningum fylgja alltaf miklar vökur. Ég held þess vegna að þróunin yrði sú, við skulum segja í útgerðarplássum þar sem oft er unnið á laugardögum, en mjög oft er líka frí á laugardögum, að atvinnurekendur í samráði við verkafólkið mundu hnika vinnunni þannig til, að það yrði ekki unnið á þeim laugardögum sem kjósa skal á, frekar helgina fyrir eða helgina eftir, því að víða er unnið aðra hverja eða þriðju hverja helgi, eftir því hve annríki er mikið. Og ég tel að það sé tryggt annars staðar í lögum og stjórnarskrá, að ekki sé á nokkurn hátt hægt að hindra fólk í að taka sér frí úr vinnu til þess að sækja kjörstað. Þetta er sem sagt matsatriði. Frv. gerir ráð fyrir fyrsta laugardegi í júní, sem er eins konar millitillaga, sem flm. gera ráð fyrir að hægt verði að sættast á.
Ef fram kynni að koma brtt. um það að flytja kosningadaginn fyrir allt landið fram á síðasta laugardag í maí mundi ég leggjast gegn slíkri breytingu. Ég leggst alveg eindregið gegn henni af þeim ástæðum sem hv. síðasti ræðumaður nefndi. Og ég vil sérstaklega vekja athygli á því, að þau vandkvæði, sem eru á því að kosningar fari fram t. d. síðasta laugardag fyrir hvítasunnu, eru miklum mun meiri síðustu daga í maí. Það er mun algengara að hvítasunna sé síðustu daga í maí en fyrstu daga í júní, t. d. ber það aðeins einu sinni við á kosningaárum fram til aldamótanna, að hún er fyrsta sunnudag í júní. Og það eru vissulega vandkvæði þarna á, bæði varðandi þau atriði, sem ég nefndi áðan, sem og úrvinnslu eftir kosningar, að hún fari fram þegar stórhátíð stendur. Ég tel þess vegna, að ýmsir kostir væru við það að miða við síðasta sunnudag í júní og er opinn fyrir hugmynd um slíkar breytingar.