05.04.1978
Neðri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3174 í B-deild Alþingistíðinda. (2364)

193. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Gunnlaugur Finnsson):

Herra forseti. Þetta frv. er fylgifrv. með því frv., sem umr. lauk um nú rétt áðan, og fjallar um breytingu, sem er afleiðing af þeirri breytingu sem kynni að verða gerð samkv. 2. gr. frv. um sveitarstjórnarlög. N. hefur einróma mælt með samþykkt þessa frv.