05.04.1978
Neðri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3198 í B-deild Alþingistíðinda. (2374)
101. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Þetta áttu nú, að ég hélt, að vera aths., sem hv. þm. mátti flytja, þar sem hann var áður búinn að tala tvisvar. En undir þessari ræðu kom þetta upp í hugann:
Ekki bregst hann Björgvinsson
bjartsýnustu vonum,
taka met í maraþon
málfærin í honum,
eflaust mun samt á því bið
að svo verði hann stæður,
að heilabúið hafi við
að hugsa þessar ræður.
Í ræðu minni áðan tók ég fyrir ræðu hv. þm. og las upp úr henni. En eins og ég sagði áðan, þá er auðvitað ekki von að hann átti sig á því hvað hann talar hér. Ég las skilmerkilega upp, hvernig hann reiknar þetta sjálfur út. Það fer ekkert milli mála, ég er hérna með ræðuna. Það getur hver fengið að lesa hana sem vill. Reikningskúnstin hjá honum var þessi, og hér er ræðan. Það getur hver séð hana sem vill.
Hann talar um 3 milljarða. Hann talar um, að það hafi verið rangt hjá hv. þm. Pálma Jónssyni að hann leggi til, að þetta lækki um milljarð, en síðan talar hann sjálfur um 3 milljarða ofan í 2. Síðan fer hann að reikna, og ég las þetta upp áðan. Hann segir 2070 millj. — hann tekur það fram — hann dregur frá 1750. Ég er náttúrlega að verða gamall, en ég fæ ekki út úr þessu 231 — 1740 frá 2070 — ég fæ 330. Mér var kennt að reikna svona í barnaskóla. (Gripið fram í.) Það hlýtur að vera. Þetta hefur farið í tölvu og líklega hefur hv. þm. ekki matað hana rétt. Það er sagt um þessar tölvur, að þær hafi þá náttúru, að það þurfi að mata þær rétt til þess að útkoman sé rétt. En hér er ræðan, og þetta kemur alveg greinilega fram. Ef ég dreg svo þessar 2070 millj. frá 3 milljörðum, þá fæ ég 930. Ég veit ekki hvað aðrir fá. Þetta eru bara tölurnar sem ég tek upp úr ræðu þm.
Svo segir hv. þm.: Hvaða vit er í því, að útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörur séu miðaðar við niðurgreiðslur fjárlaga? Hver var að tala um það? Hverjum hefur dottið það í hug nema hv. þm.? Hann var að tala um það að finna út raunverulegt verðmæti, hvernig það hefði breyst, og hann miðaði við framfærsluvísitölu. Ég sagði að það væri alveg eins hægt að miða þetta við t. d. fjárlög á hverjum tíma. Þar var ég alls ekki að segja, né hv. 1. þm. Suðurl., að miða ætti útflutningsuppbæturnar. Hverjum hefur dottið þetta í hug? En það er svona, þetta hefur farið eitthvað skakkt í tölvuna. Svo er þm. að tala um óunninn lopa, óunnið band, það sé fluttur út óunninn lopi og óunnið band. Ég veit nú ekki hvernig þessi óunni lopi eða band lítur út. Verst, af því að hann er búinn að tala sig dauðann, að hann getur sennilega ekki útskýrt þetta. Þetta fer ekki í kollinn á mér, hvernig hægt er að finna þetta út eða við hvað þm. á.
Ég ætla ekki að fara að tala í alla nótt. Annars væri gaman að því að ræða þessi mál, ef væri einhver til andsvara sem skildi eitthvað í þeim. En hv. þm. var að tala um Inn-djúpsáætlun og sagði að hún hefði verið miðuð við mjólkurframleiðslu. Mér er vel kunnugt um hvernig það var, því að Stofnlánadeildin setti það skilyrði, að ef hún ætti að hækka lánin, þá færi það til þess að auka mjólkurframleiðslu við Djúp. En hverju svöruðu þeir því? Það var alveg það sama og þeir hefðu sagt nei. Það voru yfirleitt ekki byggð fjós í sambandi við Inndjúpsáætlun. Ekkert þýðir að halda neinu slíku fram. Og ef þm. skilur ekki enn þá, að ef byggð eru stór fjárhús í heilum héruðum og þau fyllt af fé, hlýtur það að auka framleiðsluna. Geri hann það ekki veit ég ekki til hvers er verið að reyna að tala við þennan þm. Ég held það sé vonlaust. En hvernig er það með áætlunina um Árneshrepp? Ætlar þm. að halda því fram, að það hafi átt að byggja fjós þar og framleiða mjólk? Nei. sannleikurinn er sá, að það var sett upp af stjórn Stofnlánadeildarinnar til að byrja með, en strandaði alveg á þeim við Inndjúp. Þetta veit náttúrlega hv. þm. Pálmi Jónsson, því að um þetta hefur hann fjallað eins og ég.
Enn er þm. að tyggja það upp, að umframframleiðslan hafi verið 40–50%. Hann var kominn yfir 50% í ræðunni 8. mars. Nú er hann farinn að tala um 40–50%. Þó eru hér margskonar skýrslur, sem eru teknar á mismunandi hátt. Skýrslan, sem hann les upp úr, er miðuð við almanaksár, eins og ég sagði áðan en skýrslan, sem framleiðsluráð gerir, er miðuð við verðlagsgrundvallarár. Svo er hann að tala um heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar! Ég sagði áðan í fyrri ræðu minni: að flytja út 35%, eins og var gert á þessu ári, 1976, af kindakjötsframleiðslunni samsvarar 27.8% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Og ég get lofað þm. að sjá þessa skýrslu. Ef menn eru læsir, þá hljóta þeir að geta komist fram úr því, nema þá kannske hv. þm. Sighvatur Björgvinsson. Ég sýndi fram á það og las það upp áðan, hvernig þessi þróun hefur verið, m. a. s. á árinu 1960 var flutt út yfir 21% af kjötmagninu, og aldrei meira en 1969. Það hefur verið minna síðan.
Þm. er að tala um sjálfskipaða fulltrúa. Hverjir eru hér sjálfskipaðir? Eru ekki þm. kosnir af þjóðinni? Hvað á þetta að þýða? (SighB: Það eru sjálfskipaðir talsmenn ... ) Þú sagðir sjálfskipaðir þm. Síðan er hann að tala um þinglega meðferð. Ef fyrri flm. og frsm. hefði ekki lagt til að vísa þessu máli til annarrar n. en nokkurn tíma hefur verið venja með slík mál og þannig í raun og veru verið að leggja til að brjóta venju sem hér er, þá hefði mér ekki dottið í hug að leggja til að þetta frv. færi ekki til 2. umr. Það var af þeirri ástæðu, en ekki út af efni frv. Mér er víst sama þó að það fari til umfjöllunar hvert sem er. En það á bara að mínu mati að taka á svona málflutningi á þann veg sem til er stofnað. Ef þm. leggur til, og tekur sig á, að þessu sé vísað samkv. reglum þingsins til landbn., því þetta er landbúnaðarmál og á að fara til landbn„ þá er það allt annað mál.
Náttúrlega væri, eins og ég sagði áðan. hægt að standa hér í alla nótt og ræða þessi mál. En það er ekki ástæða fyrir mig að ræða meira við hv. þm. Í þessari þriðju maraþonræðu sinni endurtók hann ekki, eins og í hinum tveimur, að það væru Sjálfstfl. og Framsfl. sem bæru alla ábyrgð á því sem hefur gerst síðan 1960. Kannske er það einhver tilviljun. en ég a. m. k. tók eftir því. Hann hefur áttað sig á því, að erfitt yrði að halda því fram oftar.
Ég vil svo að endingu endurtaka það að þm. yfirleitt hafa stuðlað að því með ýmsu móti. að framleiðsla landbúnaðarvara hefur aukist. þó að hún hafi ekki aukist til jafns við fólksfjölgunina í landinu á undanförnum 10 árum. Ég man ekki til þess, að nokkur þingflokkur hafi t. d. greitt atkv. á móti þeim byggðaáætlunum. sem lagðar hafa verið fram, hvorki Hólsfjallaáætlun, áætlun um Inndjúp né áætlun um Árneshrepp. Þar af leiðandi hlutu slíkar áætlanir að auka framleiðsluna. en ekki draga úr henni. Mér var þetta a. m. k. ljóst og tek ábyrgð að mínum hluta. Enginn getur því skotið sér undan því að bera ekki ábyrgð á þeirri þróun sem orðið hefur. Það, sem ég vil endurtaka, er þetta: Það er verðlagsþróunin í landinu sem veldur því. í hvaða vanda bændastéttin er nú. Engum hefur. t. d. þó að hafi orðið verðfall á fiski. Dottið í hug að hætta að veiða fisk, — er það? Ég man ekki betur en verðið á fiski hafi sexfaldast á erlendum mörkuðum, eða allt að því sexfaldast, á sama tíma sem verð á landbúnaðarvörum hefur ekki nálægt því tvöfaldast. Ég heyri ekki betur en það sé vandi hjá þessum atvinnuvegi fyrir því. Ég held að menn verði að horfast í augu víð hvernig þetta er, og lögum samkv. á bændastéttin að bera úr býtum svipað og aðrar stéttir. Í sjálfu sér ber Alþ. að leysa þessi mál. Það þýðir ekkert, hvorki fyrir hv. þm. Sighvat Björgvinsson né aðra að halda langar ræður á Alþ. og segja: Við berum ekki ábyrgðina. Ég ber ekki ábyrgðina, minn flokkur ber ekki ábyrgðina. Það er alveg þýðingarlaust. Það bera nefnilega allir flokkar ábyrgð á því, hvernig þetta er. En síst ber bændastéttin ábyrgð á þeirri verðlagsþróun sem hefur orðið í landinu — síst hún.
Ég geri ráð fyrir því, að það verði rætt á næstu vikum víða í landinu, á Alþ. og annars staðar, hvernig staðið hefur verið að þessum málum, hverjir settu brbl. 1959, hverjir samþykktu þau lög, hverjir bera ábyrgð á þeirri landbúnaðarstefnu sem hefur verið. Þar getur enginn skotið sér undan. En auðvitað er karlmannlegt að reyna að hlaupa frá og segja: Ég ber ekki neina ábyrgð.
Herra forseti. Ég sé nú ekki ástæðu til að ræða þessi mál meira að sinni. Það gefst tækifæri síðar. Læt ég því máli mínu lokið.