05.04.1978
Neðri deild: 72. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3201 í B-deild Alþingistíðinda. (2375)

101. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Hér hafa orðið miklar umr. um frv. þetta til l. um breyt. á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins, sem flutt er á þskj. 117. Ég mælti örfá orð um þetta frv. fyrir nokkrum vikum, þegar 1. umr. hófst, og ég leit svo á, að þær aths. mínar væru ekki fluttar í miklum áreitistón. Ég var ekki viðstaddur þegar hv. flm. þessa frv. hóf ræðu sína í annarri umferð umr., en þá mun hann hafa flutt langa ræðu sem mestmegnis var aths. við þau fáu orð mín sem ég flutti er umr. hófst.

Það hefur komið fram, að hann sagði í þeirri ræðu sinni, sem ég heyrði ekki því miður og hef aðeins lítillega séð á borði hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, að ég hafi komið upp í þennan ræðustól, flutt langa ræðu fullur vandlætingar, án þess að hafa svo mikið sem hirt um að lesa þetta frv. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson telur sig geta fært fram röksemdir þessum fullyrðingum til stuðnings í þeirri ræðu sinni, en þar skjátlast honum hrapalega. Í þeirri ræðu minni vek ég athygli á því, að megintilgangur þessa frv. sé sá fyrst og fremst að skerða útflutningsbótafé, sem nú er veitt til landbúnaðarins, og það væri fundin upp sérstök aðferð til þeirrar skerðingar, þ. e. að greina í sundur útflutningsbótaréttinn eftir búgreinum og lækka hann síðan í áföngum. Ég sagði eitthvað á þá leið, að ef frv. þetta hefði verið samþykkt fyrir fáum árum, þá mundi útflutningsbótaféð lækka á þessu verðlagsári um 1 milljarð kr., eða úr 3000 millj. kr., eins og gert er ráð fyrir að það verði á árinu 1978, niður í 2000 millj. kr. eða því sem næst. Þessi orð mín tók hv. þm. sem dæmi þess, að ég hefði ekki hirt um að lesa frv. áður en ég fór upp í þennan ræðustól. Mér verður á að hugsa, að hv. þm. gleymi því í öðru orðinu sem hann sjálfur setur á blað og flytur, ýmist í frv.- formi eða sem grg. með frv., eða þá að hann átti sig ekkert á því, hvað hann er að segja, því að hver sem les þetta frv. getur sannfærst um að þarna er nákvæmlega rétt með farið. Á bls. 5 í grg. þessa frv. segir hv. þm. t. d., með leyfi hæstv. forseta:

„Flm. er ljóst, að hér er um að ræða talsvert stórt skref í átt til eðlilegrar skipunar á þessum málum, sem m. a. mundi hafa haft það í för með sér að greiðslur vegna verðábyrgðar verðlagsárið 1976–1977 mundu lækka um 1 milljarð kr. frá því sem nú er ef ekkert annað kæmi til.“ (SighB: Ef ekkert annað kæmi til.) Ef ekkert annað kæmi til. Þetta „annað“, sem hv. þm. segir að komi til, er að þetta skuli gerast í áföngum. Það sagði ég einnig í ræðu minni um daginn, að ef þetta frv. hefði verið samþykkt fyrir fáum árum, þá væri niðurstaðan sú, að útflutningsbæturnar lækkuðu nú um 1 milljarð kr. (SighB: Þm. sagði: ef frv. yrði samþ.) Við skulum ekki deila um það, þetta er til allt saman vélritað og væntanlega hefur segulbandið numið það rétt. Þessu hygg ég að sé þar með fullsvarað. Þessu hefur einnig verið svarað af hv. þm. Stefáni Valgeirssyni, sem hefur rakið þetta enn fremur.

Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson leggur enn í það að segja í þessum ræðustól, í þessari síðustu ræðu sinni, að rangt sé að megintilgangur frv. sé að lækka útflutningsbótafé. Hann leggur enn í það. Samt segir hann í hinni tilvitnuðu grein, sem ég las áðan, að með þessu sé stigið talsvert stórt skref í átt til eðlilegrar skipunar á þessum málum, með því að lækka á fáum árum útflutningsbótaféð um 1 milljarð kr. Það er talsvert stórt skref. Væntanlega vill hann taka fleiri skref. Hann þarf ekki að taka nema tvö skref til viðbótar til þess að eyða útflutningsbótafénu, ef þau skref væru jafnstór. Ég hygg að ef hv. þm. fengi að ráða, þá þyrfti ekki að efa að hann tæki þau tvö skref til viðbótar, og þar með er tilgangur frv. og tilgangur hv. þm. ljós, sem sé að leggja niður þessa verðtryggingu landbúnaðarins. Þarf engum að koma það á óvart, því að það er í samræmi við allt tal þeirra forustumanna Alþfl. bæði fyrr og síðar, í garð landbúnaðarins.

Að öðru leyti held ég að ekki sé ástæða til þess að fara mörgum orðum um ræður hv. þm. um þetta mál. Það, sem ég hef heyrt af þeim, og ég hef heyrt tvær, er ærið nóg. Þessi síðasta ræða hans hér áðan var í rauninni á þann veg, að í henni voru engar röksemdir með þessu máli, heldur einungis að mínum dómi hringiða orðaflaums og bollaleggingar, sem byggðar voru á útúrsnúningum á því sem aðrir höfðu sagt, t. d. því að gera mér og öðrum ræðumönnum, sem tala um þetta mál, það upp, að við vildum binda útflutningsbótaféð sem hlutfall af fjárlögum. Þetta fullyrti þessi hv. þm., þótt engum hafi þetta til hugar komið, þótt bæði ég og aðrir þm. hafi látið þess getið, að útflutningsbótaféð, sem og ýmis önnur framlög til atvinnuvega í landinu, hafi farið lækkandi miðað við útgjöld ríkisins í heild á síðustu árum, og það er allt annað.

Það má einnig bæta því við að það er ekki allt bölvun sem af því hlýst að við flytjum út afurðir landbúnaðarins. Á árinu 1977 voru fluttar út landbúnaðarafurðir fyrir 2398 millj., enn fremur unnar landbúnaðarvörur: loðsútuð skinn og húðir fyrir 1250 millj. og ullarvörur fyrir 3276 millj., eða tæpa 7 milljarða kr. samtals. Þetta er ekki einskis virði, þó að svo megi virðast sem hv. þm. Sighvati Björgvinssyni komi það í hug. Ef dregin væri stórlega saman framleiðsla landbúnaðarins, ekki síst sauðfjárframleiðslan, mundi draga úr þessum útflutningi. Það mundi einnig stórkostlaga draga úr vinnu margra iðnfyrirtækja og raunar kippa algerlega grundvellinum undan þeim að verulegu leyti. Og það mundi kippa burt grundvelli fyrir atvinnu fjölda fólks í þéttbýli allt í kringum landið. Þessum þætti vill þessi hv. þm. gleyma og þessum þætti gera forustumenn Alþfl. gjarnan lítið úr þegar þeir ræða landbúnaðarmálin.

Ég ætla ekki að fara út í það að telja upp þá þéttbýlisstaði hringinn í kringum landið sem að verulegu leyti byggja afkomu sína á úrvinnslu og þjónustu við landbúnaðarhéruð, en þeir þéttbýlisstaðir eru margir, eins og allir vita. En því er gleymt oft, þegar harðast er vegið að landbúnaðinum, að um leið og ætti að skerða hann og draga úr framleiðslu hans og fækka því fólki sem þann atvinnuveg stundar, þá væri kippt grundvellinum undan afkomu margra þéttbýlisstaða hringinn í kringum landið.

Ég held, að þó að nokkrir erfiðleikar fylgi mikilli framleiðslu búvara um þessar mundir ættum við ekki að mikla þá erfiðleika fyrir okkur um of. Á síðasta framleiðsluári var góðæri í landbúnaðinum og góðæri fylgir mikil framleiðsla. Það fylgir því þá kannske jafnframt, miðað við gildandi reglur, að ekki næst fullt verð fyrir alla framleiðsluna. En því kann samt að fylgja betri afkoma en ef verulegur afturkippur yrði í framleiðslunni, þó svo að fullt verð fengist fyrir þá litlu framleiðslu sem yrði. Þetta er auðvitað algerlega ofvaxið skilningi hv. þm. Sighvats Björgvinssonar og má nota hans eigin orð: Þetta mundi sjálfsagt ofbjóða hans heilabúi og hans reikningslist.

En það sem veldur þessum vandræðum í landbúnaðinum fyrst og fremst, og það hefur raunar þegar komið fram hér, er auðvitað verðbólguþróunin, efnahagsþróunin í þessu þjóðfélagi, því að á engri stétt hygg ég að verðbólguþróunin hafi bitnað eins harkalega og bændastétt.inni. Ég tel að síst allra stétta beri bændastéttin og landbúnaðurinn ábyrgð á þeirri þróun. Við vitum að þegar að kreppir í sumum öðrum atvinnugreinum, svo sem í sjávarútvegi og fiskvinnslu, og verð á framleiðslu þeirra atvinnugreina ber ekki lengur uppi með sæmilegum hætti rekstrarkostnað fyrirtækjanna, þá er gjarnan gripið til þess ráðs að fella gengi íslensku krónunnar. Þær ráðstafanir hafa aldrei orðið landbúnaðinum til bjargar. Þær hafa jafnan orðið til þess að auka á vanda landbúnaðarins, en að því er ekki alltaf gætt sem skyldi þegar svo fer, að efnahags- og verðlagsþróun innanlands gerir nauðsynlegt að breyta gengi gjaldmiðilsins. Þá eru margir sem þurfa að blæða fyrir það og meðal þeirra er landbúnaðurinn.

Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég tel að það frv., sem hv. flm. lýsir sjálfur að sé aðeins eitt skref í átt til þess sem hann kallar eðlilegt ástand, sé flutt með hugarfari sem beri vitni litlum skilningi í garð landbúnaðarins og feli í sér tilræði við afkomu bændastéttarinnar. Ég tel í sjálfu sér ekki óeðlilegt, að þetta frv. fái þinglega meðferð, sé því með þinglegum hætti vísað til réttrar þn., og mun greiða því atkv. við 1. umr., sé því vísað til réttrar áttar. En eigi að fara með það með afbrigðilegum hætti, þá væri mér ósárt um þó að það félli þegar við 1. umr. Hitt er ljóst, að þessi mál eiga erindi inn á Alþ. Við þurfum að ræða vandamál landbúnaðarins og við þurfum að móta úrræði, sem geta orðið til þess að mæta þeim vandamálum á þann hátt, að hagsmunir bændastéttarinnar og landbúnaðarins séu tryggðir, því að svo best mun farsæld þjóðfélagsins blómgast, að landbúnaðurinn og aðrar höfuðatvinnugreinar þjóðarinnar fái staðist í þjóðfélagi okkar.