06.04.1978
Neðri deild: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3224 í B-deild Alþingistíðinda. (2394)
253. mál, Samábyrgð Íslands á fiskiskipum
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :
Virðulegi forseti. Þróun tækninnar á liðnum árum hefur svo að segja útrýmt svonefndum bráðafúa í skipum, og er nú svo komið að bráðafúadeild Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum hefur safnað sjóðum sem um s. l. áramót námu alls 218 millj. kr.
Gildandi lög um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum eru lög nr. 19/1976, en með þeim lögum voru felld saman lög nr. 47/1967, nr. 92/1975 og sérstakur kafli um bráðafúatryggingu. Upphaflega var stofnað til bráðafúatryggingar á vegum Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum með lögum nr. 24/1958. Það hafði verið mikið áhugamál meðal útvegsmanna, að stofnaður yrði sjóður sem hefði það hlutverk að greiða fyrir því með bótagreiðslum að gömul og óhentug tréskip væru tekin úr notkun og eyðilögð eða bætur greiddar, ef um minni háttar skaða var að ræða. Lögin frá 1958 voru fyrsta viðleitni löggjafarvaldsins til þess að mæta þeirri ósk. Með lögum nr. 55/1975, um ráðstöfun gengismunar, var sjónarmið Alþ. í þessum efnum staðfest, enn fremur með því að ráðstafa 50 millj. kr. til að „bæta eigendum fiskiskipa það tjón, sem þeir verða fyrir, er skip þeirra eru dæmd ónýt, enda sé tjónið ekki bætt með öðrum hætti.“ Hér voru bætur sem sagt ekki miðaðar við bráðafúa, heldur við annars konar tjón, þ. e. a. s. væri ekki um aðrar bætur að ræða.
Með hliðsjón af framangreindu skipaði ég 11. nóv. 1976 nefnd til þess að endurskoða lög um bráðafúadeild Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Í nefndina voru skipaðir þeir Einar B. Ingvarsson aðstoðarmaður ráðh., og var hann jafnframt formaður hennar, Kristján Ragnarsson formaður Landssambands ísl. útvegsmanna og Páll Sigurðsson forstjóri Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Hlutverk nefndarinnar var að athuga og gera till. um breytingar á lögunum á þann hátt, að bráðafúadeildin yrði jafnframt gerð að almennri ellitryggingardeild fyrir allar tegundir fiskiskipa, sem eigendur þeirra væru skyldir að kaupa tryggingu hjá. Áttu bætur úr deildinni að greiðast þegar skip væru dæmd óhæf til fiskveiðaúthalds að dómi þeirra aðila, sem skipaskoðun annast, eða ekki svaraði kostnaði að endurbæta skipin. Nefndinni var jafnframt falið að gera till. um ákvæði um lágmarksaldur skips til að fá bætur samkv. lögum.
Í byrjun mars s. l. skilaði nefndin áliti í formi frv. til laga. Lagði nefndin til, að II. kafla gildandi laga, þ. e. a. s. kaflanum um bráðafúatryggingar, svo og öðrum viðeigandi ákvæðum yrði breytt. Nefndin vann að þessu verkefni í samráði við tvo tryggingafræðinga. Frv.-drög nefndarinnar voru til umræðu í stjórnum Landssambands ísl. útvegsmanna og Samábyrgðir Íslands á fiskiskipum og jafnframt í sjútvrn. Framangreindir þrír aðilar hafa lýst sig a öllu leyti meðmælta frv.- drögum þeim sem nefndin skilaði af sér. Á það skal bent, að í stjórn Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum eiga sæti tveir fulltrúar bátaábyrgðarfélaganna í landinu og voru þeir hlynntir áliti nefndarinnar, en í stjórn Samábyrgðarinnar eiga auk þess sæti tveir fulltrúar Landssambands ísl. útvegsmanna og einn fulltrúi sem er skipaður af rn. án tilnefningar. Þannig er full samstaða viðkomandi aðila um þær breytingar sem fram koma í þessu frv.
Nú ber þess að geta, að við breytingar þær, sem n. leggur til að gerðar verði á lögunum, koma lögin til með að breyta mjög um svip, þar sem meira en helmingur greina gildandi laga breytist. Þess vegna ákváðum við í heilbr.- og trn. að leggja fram frv. til nýrra laga, þ e. a s. frv. til heildarlaga. Aðrar greinar frv. en þær, sem snerta brtt. nefndarinnar, eru óbreyttar frá gildandi lögum. Varla þarf að taka það fram, að hér er fyrst og fremst um hagkvæmnisverk að ræða til þess að lögin séu í einni heild, en slíkt er til hægðarauka þeim, sem eftir lögunum þurfa að starfa.
Með frv. þessu er lagt til, að Samábyrgð Íslands taki að sér að annast rekstur Aldurslagasjóðs fiskiskipa í stað bráðafúatryggingar. Tilgangur Aldurslagasjóðs fiskiskipa er aðallega að greiða fyrir því með bótagreiðslum, að gömul óhentug fiskiskip verði tekin úr notkun og eyðilögð. Tilgangur bráðafúatryggingar samkv. gildandi lögum var að bæta eigendum tréskipa með þilfari skemmdir af bráðafúa af völdum viss sveppagróðurs, er slíkan fúa getur orsakað að dómi gerlafræðings við rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Nú er sem sagt gert ráð fyrir því, að sérstakur Aldurslagasjóður fiskiskipa verði stofnaður, þar sem bráðafúatryggingar er ekki lengur þörf. Aldurlagasjóður fiskiskipa nær til allra fiskiskipa, sem skylda er að tryggja hjá Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, og skiptir ekki máli hvort um er að ræða tréskip eða stálskip. Þrátt fyrir þessar breytingar yrðu bætur vegna bráðafúa með líku sniði og áður hefur verið, ef þær koma upp.
Í 11. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að ráðh. geti ákveðið, að Tryggingasjóður fiskiskipa leggi Aldurslagasjóði til fé, að fengnu till. stjórnarnefndar Tryggingasjóðs. Hér er auðvitað um að ræða, að ef afgangur verður af tekjum sjóðsins, þá sé þessi heimild fyrir hendi til þess að tryggja þennan Aldurslagasjóð.
Þá er enn fremur í 14. gr. gert ráð fyrir að fjárhæðum, sem greindar eru í II. kafla laganna, getur ráðh. breytt með reglugerð, að fengum till. stjórnar Samábyrgðarinnar. Á sama hátt getur ráðh. sett nánari reglur um starfsemi sjóðsins.
Það er helst um II. kafla að segja, auk þess sem ég hef áður sagt, að samkv. 10. gr. eru árgjöld ákveðin miðað við rúmlestatölu skipa, þ. e. a. s. 3000 kr. á rúmlest af tréskipum og 1000 kr. á rúmlest af stálskipum. Samkv. þessu verða iðgjöldin lægri en þau hafa verið til bráðafúadeildarinnar, ef um nýleg tréskip er að ræða, en aðeins hærri þegar um eldri tréskip er að ræða. Tekjur þessa sjóðs samkv. þessu yrðu um 104 millj. kr. á ári, miðað við rúmlestatölu fiskiskipa í árslok 1977, eða tæpar 42 millj. kr. af tréskipum og um 62 millj. kr. af stálskipum.
Ég sé ekki ástæðu til að fjalla nánar um einstakar greinar þessa frv., enda tel ég að þær skýri sig að verulegu leyti sjálfar. Ég held að menn geti verið sammála um að þær breytingar, sem lagt er til með þessu frv. að gerðar verði, séu til mikilla bóta og þær séu í samræmi við raunveruleikann. Að öðru leyti vísa ég til frv. sjálfs og aths. við það.
Legg ég þá til, hæstv. forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr: og trn.