31.10.1977
Neðri deild: 10. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (243)
40. mál, skólakostnaður
Flm. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem fram hefur komið. — Ég hygg að það sé ekkert nýtt hjá hv. þm. Ellert B. Schram að heyra skilning af hálfu okkar, mín og hv. þm. Jónasar Árnasonar, á mikilvægi íþrótta. Ég veit ekki betur en í hvert skipti sem íþróttamál hefur borið á góma hér á Alþ., þá höfum við talað vinsamlega og af mikilli ábyrgðartilfinningu varðandi stuðning við íþróttahreyfinguna í landinu. Og ég vil aðeins minna þennan hv. þm. á það, hafi hann gleymt því, að í tíð fyrrv. ríkisstj. var gert meira átak fyrir íþróttahreyfinguna í landinu heldur en ég hygg að hafi verið gert um árabil, og það var ekki fyrr en núv. hæstv. ríkisstj. tók við að aftur fór að halla undan fæti og safnast upp skuldahali hjá íþróttahreyfingunni, vegna þess að ríkisvaldið stóð ekki og stendur ekki enn við nema lítinn hluta af skuldbindingum sínum sem það á lögum samkv. að greiða og inna af hendi, þannig að það er ekkert nýtt að heyra mig og hv. þm. Jónas Árnason tala á þann veg, að íþróttahreyfingin njóti fullkomlega skilnings af okkar hálfu og stuðnings við hana.
Það kom mér ekki á óvart að hv. þm. Ellert Schram hefði ýmislegt við ákvæði eða efnisatriði þessa frv. að athuga. En það kom mér á óvart þegar hann lét í ljós að ágreiningur væri af tæknilegum ástæðum. Hvaða tæknilegar ástæður liggja því til grundvallar að ágreiningur er um þetta? Hvaða tæknileg atriði geta valdið ágreiningi um framkvæmd þessa frv.? Ég vissi skoðun hans á því, að hann vill að þessi aukna þátttaka ríkissjóðs í kostnaði nái til alls landsins, sem í raun og veru þýðir, um leið og menn segja þetta, að það er verið að drepa málið. Menn verða að gera sér grein fyrir því, það er a.m.k. svo að mínu áliti — og kannske ég tali nú sem allt of ábyrgur stjórnarandstæðingur — að með því að segja í þessu tilfelli: Við erum á móti því að auka þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við byggingu sundlauga í sjávarplássum með 4000 íbúum eða færri, — um leið og menn segja: Við erum á móti því, við viljum að það nái til alls landsins, — þá eru menn að segja: Við erum á móti málinu. — Þeir vita það ósköp vel að þetta verður ekki látið gilda yfir allt landið í heild, þannig að þetta er dulbúin neikvæð afstaða varðandi málið sjálft. Þetta bið ég menn að athuga. Og það nálgast það að vera hrein sýndarmennska þegar menn tala svona.
Það er að mínu viti ekkert vinsamlega tekið á málinu af hálfu hv. menntmrn. með því að leggja til að því verði vísað til ríkisstj. Við vitum ósköp vel hvað það þýðir að vísa málum til ríkisstj. Þau eru söltuð, flest fyrir fullt og allt. Tiltölulega fá mál, a.m.k. þann tíma sem ég þekki til hér á Alþ., sem vísað hefur verið til ríkisstj., hafa náð fram að ganga. Þetta er hægur dauðdagi yfirleitt á málum sem lagt er til að vísað sé til ríkisstj. Það er því ekki vinsamlega á máli tekið í þessu tilfelli að leggja til að ríkisstj. fái að sofa á því í áraraðir.
Hv. þm. Ellert B. Schram sagði: Ég vara við því að styðja ákveðna staði til aukinna fjárveitinga, í þessu tilfelli sjávarplássin úti á landi fyrst og fremst. — Menn vara við því að auka stuðning við þessa staði — en af hverju? Á þessari forsendu, sem menn telja sér trú um að sé nauðsynlegt að hið sama gildi yfir allt landið, vitandi vits að um leið og menn segja það eru þeir að gera tilraun til þess að drepa málið, hversu gott sem það er.
Nei, ég held að þeir hv. þm., sem eru sömu skoðunar og Ellert B. Schram, ættu að hugleiða þetta betur. Það liggur ljóst fyrir hvað hér er um að ræða. Hér er um það að ræða að breyta lögum á þann veg að ríkið taki meiri þátt í kostnaði við byggingu sundlauga í sjávarplássum en það hefur gert, byggt á því að þar er þörfin og nauðsynin miklu meiri en víða annars staðar, þó að hún sé víða tilfinnanlega mikil. Og þetta mál þarf engrar sérstakrar athugunar við. Það liggur fyrir hvaða staði hér er um að ræða, hversu margir staðir í heild mundu falla undir þetta ákvæði frv., hversu margir hafa sundaðstöðu og hversu margir eru án hennar. Málið liggur ljóst fyrir. Það, sem á vantar, er spurningin um hvort Alþ. vill taka á málinu jákvætt eða neikvætt. Allt til þessa hefur skort vilja a.m.k. meiri hl. Alþ. — þess meiri hluta sem hér ræður ríkjum, og það sem verra er: þeir hv. þm., sem eru frá sjávarplássum sem þarna eiga hlut að máli, eru jafnblindir og aðrir í þeim efnum að vera neikvæðir gagnvart frv..
Hér þarf því ekkert að athuga. Spurningin er um vilja, hvort menn vilja eða vilja ekki. Ég vænti þess, að hæði hv. þm. Ellert B. Schram og aðrir, sem eru svipaðs sinnis og hann, láti nú segjast, þeir skoði þetta raunhæft, og ég er viss um að fái eigin sannfæring þeirra og tilfinning fyrir réttlæti að njóta sín, þá verða þeir sömu skoðunar og ég og hv. þm. Jónas Árnason og væntanlega miklu fleiri um það, að hér er verulegt réttlætismál á ferðinni. Hér er, eins og bent hefur verið á, um það að ræða að bæta aðstöðu fyrst og fremst þeirra manna sem hafa gert að lífsstarfi sínu sjósókn og þurfa því allra manna frekast á því að halda að læra sund og geta haldið sundkunnáttu við. Hér getur því verið og er í mörgum tilfellum um að ræða spurningu um líf eða dauða. Það verður því að telja að neiti Alþ. breytingu í þá átt sem hér er lagt til, þá er Alþ. að taka á sig mikla ábyrgð með því að hafna svo sjálfsagðri leiðréttingu sem þetta frv. gerir ráð fyrir fyrst og fremst handa sjómannastéttinni í landinu.