10.04.1978
Neðri deild: 74. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3253 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

145. mál, viðskiptabankar

Þórarinn Þórarinsson:

Hæstv. forseti. Liðinn er nokkuð langur tími síðan þetta mál var síðast til umr. Frsm. þess flutti þá allítarlega ræðu og kom víða við í máli sínu. Ýmislegt af því, sem hann sagði, gaf ástæðu til frekari umr. um þetta mál, en ég verð nú að játa að ég skrifaði það ekki svo nákvæmlega hjá mér, að sennilega mun ég minnast á fá atriði af þeim sem ég hefði gert að umtalsefni ef ég hefði flutt mál mitt strax að ræðu hans lokinni.

Á því frv., sem hér liggur fyrir, er skoðun mín óbreytt frá þeim tíma þegar það var fyrst flutt. Ég tel hyggilegt að stuðlað sé að því að fækka lánastofnunum frá því sem nú er, m. a. á þann veg að sameina viðskiptabanka ríkisins — þeir eru þrír núna, — en þar getur verið um ýmsar leiðir að ræða. Komið getur til greina að sameina þá í tvo, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., og jafnvel gæti komið til greina að ríkið hefði ekki nema einn viðskiptabanka, ef einkabankarnir tækju við því hlutverki, sem hinir ríkisbankarnir hafa gegnt til þessa.

Ástæðan til þess, að ríkisbankarnir eru þrír, mun vera sú, að ekki þótti heppilegt að hafa einn eða tvo banka á vegum ríkisins, en einkabankar voru þá ekki starfræktir hér. Þeir komu ekki til sögunnar fyrr en seinna. Það var mjög mikið álitamál, þegar Íslandsbanki varð gjaldþrota, hvort ekki ætti að leggja hann niður og láta Landsbankann vera einan aðalviðskiptabanka þjóðarinnar. Að vísu var þá búið að efna til Búnaðarbankans, en honum var þá ætlað algert sérverkefni og allt annað en hefur orðið í reynd. Heppilegt þótti að halda Íslandsbanka áfram til þess að tryggja að Landsbankinn hefði nokkra samkeppni, m. a. af þeirri ástæðu, þó að fleiri ástæður kæmu þar til. En þessi þörf fyrir tvo eða þrjá viðskiptabanka ríkisins er orðin miklu minni eftir að einkabankarnir komu til sögunnar.

Það er mikið álitamál og hefur oft borið á góma í umr. á Alþ., hvort einkabankarnir séu ekki líka orðnir of margir og þar gæti með eðlilegum hætti átt sér stað nokkur sameining, t. d. með þeim hætti, að Verslunarbankinn og Iðnaðarbankinn væru sameinaðir og Samvinnubankinn og Alþýðubankinn. Mér finnst þess vegna að þessi mál séu öll komin á það stig, að ekki sé aðeins nauðsynlegt að taka þau til athugunar, löggjöfina um viðskiptabanka ríkisins, heldur eigi að taka til athugunar alla bankastarfsemi í heild, viðskiptabanka ríkisins, einkabankana og líka aðalbanka landsins, Seðlabankann. Seðlabankalögin eru nú orðin að stofni til um 20 ára gömul eða jafnvel eldri. Ég hygg að þessi stofnun hafi þróast að ýmsu leyti á annan veg en menn bjuggust við í upphafi og þess vegna sé fullkomin ástæða til þess að athuga þá löggjöf, sem um hann hefur verið sett, samhliða athugun á öðru bankakerfi landsins, þ. e. athugun á starfsemi viðskiptabankanna. Inn í þá athugun ætti líka að koma athugun á ýmsum stofnlánasjóðum sem nú eru starfræktir. Ég held að sameining viðskiptabanka ríkisins í tvo banka, eins og hér er talað um, sé ekki nema einn þáttur af þessu máli og nauðsynlegt sé að íhuga þetta allt í heild, alla bankastarfsemina.

Út af fyrir sig virtist mér sú vera aðalröksemd hv. flm., að því mundi geta fylgt nokkur sparnaður, ef bankarnir yrðu sameinaðir, þ. e. Útvegsbankinn og Búnaðarbankinn, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Ég er ekki svo sannfærður um að því mundi fylgja verulegur sparnaður. Eins og hefur verið upplýst á Alþ. er starfsmannafjöldi þessara tveggja banka mun minni en Landsbankans, og gefur það ekki til kynna að sameiningu bankanna fylgi sérstakur sparnaður. Hins vegar er það nokkurn veginn augljóst, að bankakerfið verður styrkara ef viðskiptabankar ríkisins verða tveir, eins og hér er gert ráð fyrir, en ekki þrír, því að þá er alltaf minni hætta á því, að einn bankinn eða jafnvel tveir bankarnir verði of veikir eða kannske allir. Það er meiri von um styrkara bankakerfi með því að hafa bankana fáa en marga. Sú finnst mér vera aðalröksemdin fyrir því sem gert er ráð fyrir í þessu frv. En það mál, að spara í bankastarfseminni, koma við sparnaði í bankastarfseminni held ég að þurfi að taka fyrir í miklu víðara samhengi en kemur fram í þessu frv. Starfsmannafjöldinn hjá Seðlabankanum er orðinn ótrúlega mikill. Mér er sagt, að fyrir nokkrum árum hafi verið eins margir starfsmenn hjá Seðlabankanum og voru í öllu Stjórnarráðinu á þeim tíma. Þetta hefur haldist síðan, að þó að fjölgað hafi í Stjórnarráðinu hefur fjölgað tilsvarandi í Seðlabankanum. Þetta finnst manni dálítið furðulegt, ef litið er svo sem 30 ár aftur í tímann. Þá var Seðlabankinn ekki kominn til sögunnar. Þá var seðlaútgáfan lítil deild í Landsbankanum með tiltölulega fáa starfsmenn, og stjórnin á peningamálunum virtist samt nokkuð örugg og traust, áreiðanlega ekki síðri en hún er í dag. Svo hefur það gerst eftir að Seðlabankinn var stofnaður, að hér hefur með alls konar skrifstofuaðgerðum vaxið upp risastofnun, sem er orðin álíka stór og stjórnarráðið, eða var það a. m. k. fyrir nokkrum árum. Ég hygg að það hafi haldist óbreytt. Það er áreiðanlega ástæða til þess að athuga starfsemi Seðlabankans frá þessu sjónarmiði, hvort ekki sé hægt að koma við verulegum sparnaði, kannske ekki minni sparnaði en með því fengist að sameina þá tvo banka sem rætt er um að sameina í þessu frv.

Það er líka ástæða til þess að gefa því gaum, hvernig starfsmannahaldi Landsþankans er háttað, þar sem það liggur fyrir, eins og ég áðan sagði, að Landsbankinn hefur talsvert fleiri starfsmenn en Búnaðarbankinn og Útvegsbankinn samanlagt. Hann hefur kannske eitthvað meiri starfrækslu en þessir tveir bankar samanlagt, en ekki svo mikla að hún gefi tilefni til þess að sá munur sé á starfsmannahaldi hans annars vegar og hinna bankanna hins vegar sem raun ber vitni um og tölur hafa verið birtar um fyrir nokkru. Þetta hygg ég að gefi fulla ástæðu til þess, að öll þessi mál séu athuguð í heild, að allt bankakerfið sé tekið til gaumgæfilegrar athugunar og rannsóknar og þess vegna eigi sér stað miklu viðtækari aðgerðir í þessum efnum en sú sem gert er ráð fyrir í þessu frv.

Ég aðhyllist þess vegna þá till., sem tveir hv. þm. lögðu fram fyrr í vetur, þó hún væri að ýmsu leyti óheppilega orðuð — ég á þar við þá hv. 4. þm. Norðurl. v. og hv. 8. þm. Reykv. Till. þeirra var á þá leið, að allt bankakerfið og lánakerfið yrði tekið til athugunar með það fyrir augum að koma við verulegum sparnaði. Ég held að fara ætti fram heildarathugun á þessum málum og hafa ætti róttækar ráðstafanir í huga. Þess vegna dreg ég í efa hvort tímabært sé að afgreiða þau frv. um viðskiptabankana, sem hafa verið lögð fram, þetta frv. í Nd. og frv. ríkisstj. í Ed. Ég held að mjög komi til greina að láta bæði þessi frv. biða, en taka bankakerfið til athugunar í heild.

Eitt er það í báðum þessum frv., sem mér finnst að ekki sé nægilega tryggilega frá gengið, hvernig á að hátta eftirliti Alþingis. Fyrirkomulagið, sem nú er á eftirliti Alþ., er orðið mjög gamalt og löngu úrelt. Það er frá þeim tíma þegar Landsbankinn var settur á stofn, en þá var hann tiltölulega lítil stofnun og þeir endurskoðendur, sem Alþ. kaus, gátu nokkurn veginn gert sér grein fyrir störfum þessarar stofnunar og fylgst með þeim. Nú er þetta fyrirkomulag allt orðið löngu úrelt og ekkert gagn að þessu eftirliti lengur. Ég held að Alþ. þurfi að taka þetta mál til rækilegrar athugunar og sá atburður, sem gerðist í Landsbankanum nú í vetur og öllum þm. er kunnugt um, sé áminning um að koma þurfi við traustara eftirliti, en það eftirlit þurfi að vera í höndum aðila utan bankans, ætti að vera þess vegna í höndum Alþingis.

Nú liggur fyrir frv. í hv. Ed., þar sem gert er ráð fyrir því að ríkisendurskoðunin verði lögð undir Alþ. og hún annist m. a. eftirlit og endurskoðun hjá ríkisbönkunum. Ég held að með þessu frv. sé stefnt í rétta átt og þetta sé eitt af því sem þarf að koma ef á að vera nægilega traust eftirlit með þessum stofnunum. Það eftirlit af hálfu Alþ., sem gert er ráð fyrir í þessum tveimur frv., er allt of veikt að mínum dómi. Þarf að athuga alveg sérstaklega, hvernig þeim málum er fyrir komið, og eins og ég áðan sagði kemur mjög til athugunar að fara þá leið sem er gert ráð fyrir í því frv., sem Halldór Ásgrímsson hefur flutt í Ed. um ríkisendurskoðunina.

Ég ætla svo ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni. Niðurstaða mín er sú, að þörf sé á að endurskoða allt bankakerfið, endurskoða þurfi lögin um Seðlabankann og breyta þeim verulega með tilliti til þeirrar reynslu sem þar hefur fengist. Ég álit að mjög komi til athugunar að taka upp fyrirkomulag eins og er t. d. í Bandaríkjunum, þó að seðlaútgáfunni sé að ýmsu leyti öðruvísi háttað þar en hér, þ. e. að þeir menn, sem hafa hana með höndum, eru ekki valdir til þess lengur en til 4–6 ára í senn. Það er ekki heppilegt fyrirkomulag, að í stöðu bankastjóra Seðlabankans veljist menn kannske rétt tvítugir eða þrítugir og sitji svo þar í 40 ár, þar sé um æviráðningu að ræða. Án þess að ég sé nokkuð að gagnrýna þá menn sem skipa þessi embætti nú — ég tel að þeir hafi gegnt sínum störfum sæmilega — held ég samt að sú reynsla sé þegar fengin, að heppilegt sé að þarna geti átt sér stað mannaskipti a. m. k. öðru hverju og því sé það fyrirkomulag, sem er á þessum málum í Bandaríkjunum, að ýmsu leyti til eftirbreytni eða vert að athuga, hvort það muni ekki líka eiga við hér á landi. Vinna þarf að sparnaði í bankakerfinu, ekki aðeins með því að sameina banka, heldur með því að athuga allan rekstur þeirra og gera sér grein fyrir því, hvort þar sé ekki hægt að koma við auknum sparnaði og draga úr því gífurlega mannahaldi sem hefur þróast í þeim, sérstaklega síðustu árin. Inn í þessa athugun á að sjálfsögðu að taka ýmsar sérstofnanir ríkisins og sérsjóði, stofnlánasjóði, Framkvæmdastofnun o. fl. aðila. Mér sýnist að ýmsar ríkisstofnanir séu nú að vinna nokkurn veginn sama verkefnið. Við fáum mjög svipaða skýrslu t. d. frá Seðlabankanum og frá Efnahagsstofnuninni og jafnvel Framkvæmdastofnuninni. Á ýmsum sviðum virðast því þessar stofnanir, sérstaklega í sambandi við rannsóknir og skýrslugerð, vera að vinna að sömu verkefnunum. Þetta held ég að mætti gera einfaldara og koma við þó nokkrum sparnaði með þeim hætti.

Ég held sem sagt að meginatriðið í þessu máli sé að láta fara fram ákveðna endurskoðun á öllu banka- og lánakerfinu með það fyrir augum að gera það einfaldara, og ódýrara og virkara en það er nú.