12.04.1978
Efri deild: 77. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3337 í B-deild Alþingistíðinda. (2487)
265. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit
Flm. (Albert Guðmundsson) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 512 frv. til l. um breyt. á l. nr. 12 17. mars 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Aftan við 17. gr. laganna bætist ný mgr., svo hljóðandi:
„Heimilt er að taka leigu eftir sorpílát, sem sveitarstjórn leggur húseigendum til. Leigugjald skal ákveða í reglugerð og er gjaldið tryggt með lögveðsrétti í húseign leigutaka í tvö ár eftir gjalddaga.“
Herra forseti. Frv. þetta er eins og frv. um breyt. á lögum um ákvörðun leigumála og söluverðs lóða og landa Reykjavíkurkaupstaðar, flutt að beiðni Reykjavíkurborgar eða borgarstjórnar Reykjavíkur. Tilgangur þess er að tryggja lögveð fyrir leigu eftir sorptunnur, en leigan er innheimt sameiginlega með öðrum gjöldum á fasteignagjaldaseðli. Um efnisrök að öðru leyti vil ég vísa til framsögu minnar fyrir frv. til l. um breyt. á lögum um ákvörðun leigumála og söluverðs lóða og landa Reykjavíkurkaupstaðar, en vil aðeins nefna til upplýsingar, að leigugjald fyrir sorptunnur er á þessu ári 1200 kr. Er því um að ræða mjög óverulegan hluta fasteignagjaldainnheimtunnar, en vegna sameiginlegrar innheimtu er nauðsynlegt að samræma innheimtureglur og endurbæta innheimtumeðferð. Á sama hátt og um frv. um leigumála og söluverð lóða og landa Reykjavíkurkaupstaðar er það ósk borgarstjórnar og borgarstjóra, að frv. þetta fái fljóta afgreiðslu, á þessu þingi ef mögulegt er.