12.04.1978
Neðri deild: 75. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3338 í B-deild Alþingistíðinda. (2490)
192. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Gunnlaugur Finnsson) :
Hæstv. forseti. Mér finnst ástæða til að segja örfá orð um þetta mál við 3. umr., sérstaklega í ljósi þeirrar afgreiðslu sem málið fékk við 2. umr. þar sem niður var felld 1. gr. frv.
Efnislega séð voru tvær breytingar í 1. gr. Önnur breytingin var sú að hverfa frá sunnudegi og kjósa á laugardegi. Um þetta voru skiptar skoðanir sem og hitt atriðið, hvenær kosið skyldi, ef fara átti þá leið að samræma kjördaga í þéttbýlissveitarfélögum og strjálbýlissveitarféfélögum, þar sem nú er gert ráð ráð fyrir í þéttbýli að kjósa síðasta sunnudag í maí og hins vegar í sveitum síðasta sunnudag í júní. Ég lýsti þeirri skoðun minni við 2. umr., að ég teldi út af fyrir sig eðlilegast að horfið yrði að því að hafa einn kjördag fyrir landið allt og hann yrði síðasta laugardag eða sunnudag í júní. Ég geri mér grein fyrir því, að enda þótt við vildum flytja brtt. til þess að ná þessu marki, að fá einn samræmdan kjördag um land allt þá er það hæpið miðað við að gildistakan verði á þessu vori þegar svo skammur tími er til kosninga. Vitað er að skiptar skoðanir eru um það, hvort sveitarstjórnarkosningar eiga að fara fram sama kjördag og þingkosningarnar.
Ég minnist á þessi atriði hér vegna þess að ekki er á ferðinni af okkar flm. hálfu brtt. að svo stöddu, þar sem þá, ef hún hefði komið, hefði verið gert ráð fyrir gildistöku síðar, en þá tel ég að málinu þurfi ekki að hraða á þessu þingi. En ég vildi lýsa því yfir, að ég tel að þetta atriði sé eitt af þeim atriðum sem beri að taka til athugunar samhliða öllum þeim fjölda frv. sem liggja nú fyrir Alþ. varðandi kosningalög almennt. Þess vegna er ekki á ferðinni nein brtt. nú af okkar hálfu, en ég vil hins vegar nota tækifærið til að þakka fyrir þær undirtektir sem 2. gr. fékk. Og skoðun mín er sú, að það eigi áfram að stefna að því að hafa einn kjördag en við þurfum að finna lausn á því máli í tengslum við þessi mál í heild.