01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

311. mál, sjónvarp

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni með, að þetta mál skuli hafa borið hér á góma, og þakka fyrirspyrjanda, hv. 2. þm. Vestf., fyrir frumkvæði hans í því máli. Jafnframt vil ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þau svör, sem hann gaf, og þau fyrirheit, sem ég taldi felast í þeim varðandi framkvæmdir í framtíðinni. En það bar til í fyrravetur að skoðanir voru ofurlítið skiptar um hvar megináherslan ætti að verða. Sumir lögðu mikið kapp á að hraða litvæðingu sjónvarps. Ég og sumir aðrir þm. lögðu aftur á það þunga áherslu, að heppilegra væri að koma sjónvarpinu um allt land áður en gengið yrði af fullum krafti í litvæðingu. Það eru 100 sveitabæir á Íslandi sem njóta ekki sjónvarps í dag, og því miður hefur þetta ár liðið án þess að þar hafi orðið verulegar úrbætur. Það er gleðiefni að hæstv. ráðh. skuli gefa fyrirheit um úrbætur á næsta ári, og það er þakkarvert. En ég hefði fremur kosið að nokkur litur hefði verið sýndur á því að byggja þessar dreifistöðvar og koma sjónvarpi til fleiri notenda nú í ár en raun ber vitni.

Herra forseti. Ég er að ljúka máli mínu, en ég get þó ekki farið héðan án þess að vitna til skýrslu þeirrar sem hér hefur verið gerð að umræðuefni. Gert var ráð fyrir í þessari skýrslu sjónvarpsdreifingarnefndar, sem heitir: Sjónvarp til allra landsmanna, að á árinu 1977 yrði varið til nýrra stöðva, sem þjónuðu fleiri en 8 notendum, 70 millj. kr. og færri en 8 notendum 50 millj. kr. Þetta hefur ekki verið gert á þessu ári, nema þá lítillega kannske hafinn undirbúningur. Hins vegar var ekki gert ráð fyrir að vegna litasjónvarps yrði fjárfest á árinu nema 17.5 millj. í 1. áfanga og í 2. áfanga 32.5 millj., en þetta hefur samtals orðið 80 millj. svo að þarna skeikar nokkru um hraðann á vinnubrögðum.

Að lokum vil ég leyfa mér að treysta því, að árið 1978 líði ekki þannig að ekki verði undinn bráður bugur að því að koma sjónvarpi til sem flestra þeirra sem ekki hafa átt kost á að sjá það hingað til.