13.04.1978
Efri deild: 78. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3375 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Herra forseti. Ég ætla aðeins að láta það koma fram, að vera má að réttara hafi verið að skrifa þingflokkunum formlegt bréf og óska eftir útnefningu fulltrúa til þess samráðs sem ætlunin var að stofna til. Ég taldi eðlilegt, að við hér innan þingsala værum ekki með neina sérstaka skriffinnsku og þetta gæti gengið frá nm. til um. Það kom skýrt fram í viðtali við hv. 5. þm. Vesturl. fyrir allmörgum vikum um þessi nefndarstörf, að ætlunin væri að tveir fulltrúar frá hverjum flokki störfuðu að þessum viðræðum, og ég taldi mig þá hafa bent honum á leið til þess að þær viðræður ættu sér stað.
Varðandi það, hvernig á að standa að þessum málum í framtíðinni, þá er ég eindregið þeirrar skoðunar að endurnýja beri stjskrn. og ganga á eftir því, að hún skili áliti, fyrst og fremst að því er snertir kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulag og varðandi þær aðrar breytingar sem brýna nauðsyn ber til að gera á stjskr. Ég vil endurtaka og ítreka, að ég tel að slíkum breytingum verði að vera mjög í hóf stillt og þær verði að vera mjög vandaðar. Við eigum ekki að setja nýja stjórnarskrá, sem segir fyrir um öll möguleg og ómöguleg tilvik mannlegra samskipta, enda hefur sú stjórnarskrá sem við búum nú við, dugað okkur að mörgu leyti merkilega vel, ef undan eru skilin ákvæði hennar um kosningafyrirkomulag, sem eðli málsins samkv. hlýtur að verða að endurskoða með ákveðnum hætti og vissu millibili.
Hitt vil ég líka segja sem mína skoðun, að samhliða starfi stjskrn. er eðlilegt og sjálfsagt að viðræðunefnd flokkanna með tveimur fulltrúum frá hverjum flokki ræði málin. Úr því það hefur ekki tekist að koma þeim viðræðum af stað er ekkert á móti því af minni hálfu að það sé gert og því haldið áfram og það sé undirbúningur m. a. að því, að stjskrn. skili till. í þessum efnum.