13.04.1978
Efri deild: 78. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3376 í B-deild Alþingistíðinda. (2519)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hef hlýtt á mál manna um réttlæti, og það leiðir hugann að því, hvort það eina réttlæti, sem sé að slást um, sé atkvæðisréttur á Íslandi eða hvort lýðræðisleg réttindi beri að skoða í víðara samhengi. Ég persónulega tel, að lýðræðisleg réttindi beri að skoða í víðara samhengi, skoða beri allt kerfið, samskipti þings og þjóðar og stjórnar og þjóðar.

Mér virðist að sú þróun, sem átt hefur sér stað hér á Íslandi, að við þróumst mjög ört frá landi hinna dreifðu byggða til borgríkis, leiði hugann að því, hvort á undanförnum árum hafi verið gætt fulls réttlætis á öðrum sviðum. Ég held líka að hinar tíðu umr. um það, hvort veita beri þessu sveitarfélaginu eða hinu kaupstaðarréttindi, leiði hugann að því, hvort ekki sé sanngjarnt og kannske með stærri réttlætismálum að öll sveitarfélög á Íslandi sitji við sama borð lagalega séð, en sumum sé ekki ætlað að vera forgangssveitarfélög — sveitarfélög sem eigi að ráða sínum eigin málum að miklu leyti sjálf, en svo séu önnur sem eigi að eiga það undir þinginu, hvernig mál þróast að mörgu leyti.

Ég tel að þær umr., sem hér eru hafnar, verði trúlega vegvísir á þeirri leið, að farið verði út í að breyta þeirri kjördæmaskipan, sem nú er, eða þeirri skipan uppbótarþingsæta. En mér fannst það athyglisvert, sem kom fram í ræðu 1. landsk. þm., að það er kannske þungamiðjan í því, þegar sú breyting verður framkvæmd, að þá verði ekki hugsað um hagsmuni einstakra manna eða einstakra flokka, eins og málin standa þá. Og mér þætti vænt um ef hliðsjón yrði höfð af þeirri þróun, sem átt hefur sér stað á Íslandi á því tímabili sem við höfum haft sjálfstæði, horft yrði á hana í heild og metið af félagsráðgjöfum eða öðrum þjóðfélagsfræðingum, hvort hlutur þéttbýlisins hefur verið fyrir borð borinn í stjórnunaraðstöðu á þessu landi.