13.04.1978
Neðri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3390 í B-deild Alþingistíðinda. (2559)

189. mál, búnaðarfræðsla

Frsm. (Stefán Valgeirsson) :

Virðulegi forseti. Frv. til laga um búnaðarfræðslu, sem er á þskj. 367 og er til 2. umr. í hv. Nd., hefur verið í mörg ár til umfjöllunar hjá ýmsum aðilum, er sýnir að reynt hefur verið að vanda allan undirbúning að þessari lagasetningu eftir því sem tök eru á.

Það mun hafa verið á Búnaðarþingi 1971 sem kjörin var milliþinganefnd til þess að gera till. um, hvernig að því megi stuðla, að sem flestir, er hefla búskap í lok næsta áratugs, eins og þar segir, hafi fengið vissa lágmarksbúfræðimenntun. Mþn. skilaði ítarlegu áliti til Búnaðarþings 1972 og var það álit samþ. á því þingi shlj. í febrúarmánuði 1971 skipaði hæstv. landbrh. 5 manna nefnd til að endurskoða lög og reglur um búnaðarmenntun í landinu og gera till. um tilhögun búnaðarmenntunar í framtíðinni. Till. skyldu miða að því, að í náinni framtíð hafi sem allra flestir bændur landsins hlotið búnaðarmenntun, og í öðru lagi að háskólamenntun í búfræði verði efld og gerð svo fullkomin sem tök eru á. Í nefndina voru skipaðir skólastjórarnir Haraldur Árnason og Magnús B. Jónsson, en auk þeirra Hjörtur E. Þórarinsson bóndi á Tjörn, eftir tilnefningu Búnaðarfélags Íslands, Jón Helgason bóndi í Seglbúðum, eftir tilnefningu Stéttarsambands bænda. Jónas Jónsson, þá aðstoðarmaður landbrh., var skipaður form. nefndarinnar.

Lög um bændaskóla eru frá 1963 og eru ekki stór í sniðum, t. d. segir svo í 17. gr., með leyfi forseta: „Við bændaskólann á Hvanneyri skal starfrækja framhaldsdeild í búfræði. Um fyrirkomulag þessarar deildar skal ákveðið í reglugerð, sem ráðh. setur.“ Þetta er það eina í lögunum sem lýtur að framhaldsdeildinni á Hvanneyri, sem þó hefur nú starfað um 30 ára skeið. Í þessu frv. er III. kaflinn um þessa deild, sem nefnist búvísindadeild og útskrifar kandídata eftir þriggja ára nám. Auk þess gefst þessum kandídötum kostur á fjórða námsárinu og er það í sérhæfðu námi og rannsóknarþjálfun. Búvísindadeildinni er ákveðinn staður á Hvanneyri og á að reka hana í tengslum við bændaskólann. Þarna er um að ræða einu háskóladeildina sem starfar utan Reykjavíkur, en við skulum vona að í náinni framtíð komi fleiri háskóladeildir utan höfuðborgarinnar.

Nefndin, sem samdi frv., aflaði sér gagna um tilhögun landbúnaðarnáms á öllum Norðurlöndum og mun hafa sniðið þetta frv. eftir löggjöf þar að einhverju leyti. Frv. þetta er í fimm köflum.

I. kafli er um hlutverk, skipulag og stjórn. Í fyrsta lagi er ákveðið samkv. 3. gr., að landbrh. skipi búfræðslunefnd, sem skal marka stefnu í búfræðslumálum og samræma störf þeirra sem við þau fást. Er þetta nýmæli.

II. kaflinn er um búnaðarnám, bútæknanám og námskeiðahald. Í 6. gr. er sagt að starfrækja skuli a. m. k. þrjá búnaðarskóla. Er það óbreytt frá því sem er í lögum að öðru leyti en því, að sagt er þar að einn skólinn skuli vera á Suðurlandi, þ. e. a. s. í lögunum, en í þessu frv. er staðurinn tilgreindur: Oddi á Rangárvöllum. Bændaskólanefnd Suðurlands, sem starfað hefur um margra ára skeið, hefur verið með í ráðum við þessa frumvarpsgerð og mun staðarvalið á skólanum á Suðurlandi vera fyrst og fremst verk hennar. Þegar landbn. hv. Nd. fjallaði um þetta mál, kom fram það sjónarmið, hvort ekki væri varhugavert að ákveða þessum skóla stað nú, þar sem ekki væri ljóst orðið hvaða framtíð t. d. héraðsskólarnir mundu hafa eftir að grunnskólalögin komast alveg til framkvæmda og þar sem farið væri að sýna sig, að úr aðsókn að þeim hefur dregið þegar. Ef t. d. Skógaskóli fengi ekki verkefni við sitt hæfi í hinu nýja fræðslukerfi, þá kæmi fyllilega til greina að setja bændaskólann þar niður til að nýta þær byggingar, sem þar eru fyrir hendi, og e. t. v. gæti þróunin orðið sú í þessum málum að fleiri staðir kæmu fyllilega til greina.

Oddi á Rangárvöllum er einn af sögufrægustu stöðum á Suðurlandi. Þar var fyrsti íslenski skólinn stofnaður. Ekkert hefur verið gert til þess að hefja þennan stað til þess vegs sem áður var. Mun það hafa ráðið m. a. staðarvalinu. Í umr. um þetta mál kom fram, að ekki væri líklegt að byggingarframkvæmdir mundu hefjast á næstunni í Odda, þar sem verið er að byggja upp á Hvanneyri og mjög brýnt er að fara í verulegar framkvæmdir á Hólum, sem eðlilega mundu sitja fyrir með framkvæmdafé. Ef málin færu á þann veg, að húsnæði yrði fyrir hendi fyrir bændaskóla á Suðurlandi á hentugum stað fyrir slíkan skóla, væri alltaf hægt að breyta lögunum, ef menn yrðu þá þess sinnis.

Bútækninám er einnig nýmæli. Gert er ráð fyrir eins vetrar framhaldsnámi í búfræði eftir bú fræðipróf, en þetta er í heimildarformi í frv. Í grg. með frv. kemur fram að nefndin, sem samdi það, telur eðlilegt að ef af slíkri kennslu verður verði hún fyrst tekin upp á Hólum, enda er mikilvægt að efla þann skóla, sem er að dómi nefndarinnar of lítill. Landbn. ræddi einnig þetta atriði og var sammála því sjónarmiði, að ef úr slíku námi yrði, sem eflaust væri nauðsynlegt, ættu Hólar að verða fyrst fyrir valinu.

8. gr. er um það, að við hvern skóla starfi ráðgefandi skólanefnd, tilnefnd af stjórnum búnaðarsambanda viðkomandi landshluta til fjögurra ára í senn. Skólanefnd þessi á að efla tengsl skóla við bændurna og búnaðarsamböndin á svæðinu og vera skólastjórninni til fulltingis við uppbyggingu skólasetursins. Ég held að þetta nýmæli sé mjög mikilvægt til þess að koma á sem nánustu sambandi við skólann og það umhverfi, þau héruð sem þessir skólar fyrst og fremst þjóna hver á sínum stað.

12. gr. fjallar um lengd námsins og er lagt til að nám til búfræðiprófs verði tveir vetur. Frá þessu verður þó undantekning, að þeir, sem stundað hafa nám við aðra framhaldsskóla, geta fengið metið til eininga það af því námi sem nýtist til búfræðiprófs. Samkv. ákvæði til bráðabirgða skal þetta ákvæði koma til framkvæmda ekki síðar en að fjórum árum liðnum eftir gildistöku þessara laga, en frv. miðar við það að lögin taki gildi 1. sept. 1978.

III. kafli frv. er, eins og áður segir, um búvísindanám. Hann er allur nýr. IV. kaflinn er um embættisbústaði og V. kaflinn ýmis ákvæði.

Landbn. sendi Búnaðarþingi þetta frv. til umsagnar og mælti Búnaðarþing með samþ. frv. óbreytts. Landbn. stendur öll að því, að frv. verði samþykkt óbreytt, sbr. þskj. 507. Hv. þm. Benedikt Gröndal var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Skrifstofa Alþ. er beðin að leiðrétta eitt orð í lok 8. gr. Þar stendur „skólanefndir séu ólaunaðir“, en á auðvitað að vera: ólaunaðar.