01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

311. mál, sjónvarp

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Við höfum nú hlýtt á vonbrigði og óánægju hv. stjórnarþm. með framkvæmdir í sjónvarpsmálum. Ég tek undir óánægjuna. En ég hlýt að láta í ljós vonbrigði yfir því, að þessir hv. þm. með sína góðu stjórnaraðstöðu skuli láta vonbrigðin og óánægjuna duga ár eftir ár.

Það fer hins vegar ekki á milli mála samkvæmt því sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að höfuðáherslan virðist hafa verið lögð á þessu ári á litvæðinguna á kostnað dreifingarinnar og nýrra sjónvarpsstöðva fyrir þá sem hafa ekki sjónvarp nú. Þetta var einmitt það sem við óttuðumst. Þetta ber að harma, og ég trúi því tæpast að hér hafi á tæknideildinni einni strandað, þó að það kunni að vera ein ástæðan fyrir þessu.

Erindi mitt var annars að fá nánari upplýsingar hjá hæstv. ráðh. um það, hvenær örbylgjukerfið kæmist í gagnið á Gagnheiði eystra. Sömuleiðis vil ég benda á það, að enn eru víða ófullnægjandi bráðabirgðastöðvar í rekstri heimamanna. Svo er um minn heimastað, og þar er ástandið, að ég held, það alvarlegt að við megum búast við því á hverri stundu að þar verði stöðvuð á sjónvarpssendingum til okkar.