13.04.1978
Neðri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3395 í B-deild Alþingistíðinda. (2563)
184. mál, réttur til fiskveiða í landhelgi
Tómas Árnason:
Hæstvirti forseti. Þetta mál hefur verið til meðferðar í sjútvn. Nd. Ég á sæti í þeirri n. Ég var ekki viðstaddur þegar frv. var afgreitt þaðan, en ég vildi samt — og þá kannske þess vegna — gera grein fyrir skoðun minni í þessu máli. Vil ég gjarnan taka undir það, sem komið hefur fram hjá öðrum, að framkvæmd málsins, ef þetta frv. verður samþ., er ákaflega þýðingarmikil og nauðsynlegt að búa þannig um hnúta, að um verði að ræða algjör undantekningartilvik, en ekki viðbót við eða aukna sókn í fiskveiðar frá því sem verið hefur.
Fram kemur í frv., að þegar eru varnaglar við notkun heimildarinnar og sett eru skilyrði. Eitt af þýðingarmestu skilyrðunum er að leigutaka skips í samræmi við þetta lagafrv. er háð því, að hún vari um takmarkaðan tíma. Þetta þýðir að ekki er unnt að taka á leigu skip og framlengja síðan leigutímann eftir að það skip, sem hefur bilað, er komið í lag og hefur hafið veiðar að nýju. Það er alveg ljóst mál, að hér er um að ræða fyrst og fremst þau tilvik þar sem áföll verða sem ekki er hægt að bæta úr skyndilega og með öðrum ráðum en þeim að taka á leigu skip eða fá skip utan hins íslenska markaðar. M. ö. o.: heimildin er strangt tekið mjög tímabundin og verður að vera það.
Ég álít að e. t. v. sé mest þörf á því að setja slíka lagaheimild, eins og hér er lagt til, í þeim tilvikum þar sem um er að ræða verulega hagsmuni heilla byggðarlaga, þar sem atvinnulíf heils byggðarlags bókstaflega stendur og fellur með því, að hægt sé að afla hráefnis til staðarins, ella verði skyndilegt atvinnuleysi á staðnum og væri meðan veríð er að gera við skipið. Við höfum mörg dæmi um þetta, sérstaklega þó varðandi skuttogarana — mörg dæmi um að skuttogarar hafa bilað, vélar brotnað eða orðið hafi alvarlegar bilanir sem leiða til þess að það verður hráefnisskortur á staðnum, atvinnuleysi o. s. frv.
Ég vil því leggja á það áherslu, að í slíkum tilvikum sé sérstaklega brýn þörf á að hafa einhver tiltæk úrræði. Eins og er eru í raun og veru fá tiltæk úrræði. Oft er talað um að fiskiskipaflotinn sé stór. Sumir segja að hann sé of stór. Ég er ekki einn af þeim. Ástandið er þannig, að það er yfirleitt enga fleytu að fá á íslenska markaðnum til þess að bæta úr ef menn verða skyndilega fyrir áföllum með fiskiskip af því tagi sem þetta frv. fjallar um.
Ég mun fylgja þessu máli en ég vil leggja áherslu á að frv., ef að lögum verður, verði túlkað þröngt og heimildin aðeins notuð ef brýna nauðsyn ber til og þá alveg sérstaklega þegar um er að ræða hagsmuni heilla byggðarlaga. Jafnframt verði þess stranglega gætt, að ekki verði um að ræða viðbótarsókn vegna tilvika sem kunna að falla undir þetta lagafrv., ef að lögum verður. Þar álit ég að skilin liggi í þessu máli; liggi á mörkum þess að skip, sem tekið er á leigu vegna þess að annað hefur dottið úr leik í bili verði að hverfa á brott þegar það skip er komið í lag aftur og farið að nota það. M. ö. o.: ekki verði um viðbótarsókn að ræða, heldur sé um að ræða undantekningartilfelli, sem sé túlkað þröngt um takmarkaðan tíma, til þess að hlaupa í skarðið þegar um er að ræða áföll sem menn hafa ekki tiltæk úrræði til að mæta.