13.04.1978
Neðri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3411 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)
49. mál, hlutafélög
Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það frv., sem nú er til 1. umr. í þessari hv. d., einfaldlega vegna þess, eins og hæstv. ráðh. sagði áðan, að við þm. höfðum fengið rúman tíma til þess að athuga það. Málið er vel unnið og grg. vel og ítarlega samin og við höfum fengið nægan tíma til þess að yfirfara frv. Ég vil fúslega lýsa því yfir, að flestöll atriði þess eru mjög til bóta, og get ég því að sjálfsögðu fallist á að afgreiða frv. með þeim hraða sem þarf á þeirri afgreiðslu að vera svo að meðferð málsins verði lokið áður en þing fer heim að þessu sinni og frv. geti orðið að lögum á þessu þingi.
Eitt merkilegt atriði í frv. er nýmæli, að tryggja réttindi minni hluta í hlutafélögum. Ég sakna hins vegar þess í frv., að ekki aðeins sé tryggður réttur minni hluta eigenda hlutafélags, heldur sé tryggður réttur þeirra sem eiga ekki síður þátt í að skapa verðmætin en þeir sem teljast eiga hlutafélagið, og það eru starfsmennirnir. Þetta frv. breytir því ekki, þó að lögum verði, að í atvinnu- og efnahagsmálum á Íslandi fá menn ekki atkvæðisrétt nema þeir séu nógu efnaðir til að kaupa sér hann.
Fyrir mörgum áratugum var sú venja á Íslandi, að almennur borgari hlaut ekki kosningarrétt og kjörgengi ef hann uppfyllti ekki ákveðin efnahagsleg skilyrði. Hann varð að eiga tilteknar eignir eða hafa ekki notið tiltekinnar félagslegrar aðstoðar til þess að geta beitt rétti sínum, þeim mannréttindum að greiða atkvæði og bjóða sig fram. Í stjórnmálum var ástandið þá þannig, að menn öðluðust ekki atkvæðisrétt til áhrifa í stjórnmálum nema kaupa hann gegn gjaldi. Aðeins þeir, sem þjóðfélagið samþykkti að væru nægilega efnaðir, máttu kjósa. Það er langt síðan þessi ákvæði voru numin úr gildi hvað varðar afskipti af stjórnmálum, en þetta er enn skipulagið sem ríkir í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar. Þar er meginþorri þjóðfélagsþegnanna atkvæðislaus. Þeir, sem ekki teljast eiga hlutafélög eða fyrirtæki, en eru starfsmenn við hlutafélög eða fyrirtæki, eru atkvæðislausir í efnahags- og atvinnumálum — þeim bætti efnahags- og atvinnumála sem lýtur að þeim ákvörðunum sem teknar eru varðandi vinnustaði og atvinnumál fyrirtækja. Með sama hætti og réttlátt er, að allir þjóðfélagsþegnar, sem komnir eru til þroska, hafi jafnan atkvæðisrétt í stjórnmálum og félagsmálum og taki á sig ábyrgð til þess að stjórna þjóðinni og þjóðarbúskapnum í heild, er það sanngirnis- og réttlætismál, að allir þegnar þjóðfélagsins, sem komnir eru til þroska, hljóti atkvæðisrétt í málefnum atvinnulífsins, fái rétt til þess að ráða sér sjálfir og vinnu sinni, vinnukjörum sínum og þeim ákvörðunum sem teknar eru á vinnustað. Ég sakna þess mjög, að þetta frv. felur ekki slíka réttindaveitingu í sér.
Við þm. Alþfl. í þessari hv. d. fluttum við upphaf þings í haust ýmis frv. þessu aðlútandi, m. a. á þskj. 7 frv. til l. um breyt. á lögum um hlutafélög, nr. 77 frá 27. júní 1921. með það að markmiði að fá starfsfólki hlutafélaga þennan atkvæðisrétt sem það hefur ekki nú. Þetta mál hefur legið hjá allshn. allar götur síðan það var flutt og ekki hlotið afgreiðslu. Nú mun sú n. væntanlega fá það stjfrv. til athugunar sem hér um ræðir en ég legg áherslu á að það er mjög til þurftar og ég mun styðja það. Ég mun leitast við að fá allshn. til þess að taka inn í frv. ákvæði um réttindi til handa starfsmönnum hlutafélaga, eins og ég hef lýst, og ég vona fastlega að hæstv. ráðh. Ólafur Jóhannesson vilji styðja þá málaleitan mína. Að vísu verð ég að segja eins og er, að það kom mér á óvart, þegar við fjölluðum um umrætt frv. um atvinnulýðræði, ef ég má nefna það svo, þegar við fengum umsögn frá Vinnumálasambandi Sambands ísl. samvinnufélaga við það mál. Ég stórefa að þeir menn, sem sitja í stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga og telja sig félagshyggjumenn, mundu hafa samþykkt þá umsögn ef þeir hefðu um hana vitað. En ef það er stefna Sambands ísl, samvinnufélaga sem í þeirri umsögn kemur fram — og ég hvet áhugamenn um samvinnumál að kynna sér efni þeirrar umsagnar — þá er samvinnuhreyfingin komin alllangt frá upphafi sínu, því bæði að efni og orðfæri var umsögn Vinnumálasambands samvinnufélaganna við hugmyndinni um atvinnulýðræði og slíkri réttindaveitingu til handa launþegum með þeim hætti, að engum hefði dottið annað í hug en hún kæmi úr herbúðum harðasta afturhalds og atvinnurekendavalds í þessu landi.