13.04.1978
Neðri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3414 í B-deild Alþingistíðinda. (2585)

215. mál, Fasteignaþjónusta ríkisins

Gunnlaugur Finnsson:

Hæstv. forseti. Í fjarveru fyrsta flm. þessa frv. mun ég lesa stutta framsöguræðu, sem flm. skildi eftir þegar hún hvarf af þingi, en hún hefur þess vegna ekki tækifæri til þess að mæla fyrir frv. Ræðan er svo hljóðandi:

Eins og fram kemur í grg. þessa frv. er markmiðið með Fasteignaþjónustu ríkisins, að þar ráði ekki önnur sjónarmið en að viðskiptavinir fái sem öruggasta, ódýrasta og auðveldasta þjónustu á kostnaðarverði. Flestir Íslendingar búa í eigin húsnæði. Fjölskyldur byrja venjulega smátt og stækka síðan við sig, er þeim vex fiskur um hrygg. Má gera ráð fyrir að fjölskyldur skipti um íbúð á 5–10 ára fresti fyrstu 50 ár búskaparins. Milliliðakostnaðurinn nemur 2% af söluverði eignar, en það eru 300 þús. kr. fyrir hverja 15 millj. kr. sölu. Þegar hugleitt er, að greiða verður ríflega mánaðarlaun hátekjumanns fyrir hverja slíka sölu, hlýtur sú spurning að vakna, hvort ekki megi spara.

Í Reykjavík og nágrenni eru skráðar samkv. símaskrá a. m. k. 50–60 fasteignasölur og hefur þeim farið fjölgandi. Fjöldi þeirra bendir til að atvinnuvegurinn þyki gróðavænlegur. Eitthvað hlýtur allt þetta skrifstofuhald að kosta. En hverjir standa undir því? Í Reykjavíkurborg einni hefur undanfarin 3 ár verið þinglýst að meðaltali rúmlega 2500 afsölum. Ef gert er ráð fyrir að meðalverð sé 15 millj. fyrir hverja selda eign, þá er um að ræða sölu fyrir 37.5 milljarða kr. Af þessari upphæð nemur söluþóknun 750 millj. kr. Samkeppni á þessu sviði er hörð og stuðlar beint eða óbeint að hækkun fasteignaverðs, án þess þó að hún leiði til lækkunar á milliliðaþóknun, og eykur þannig á verðbólguna. Mikilsvert væri ef Fasteignaþjónusta ríkisins gæti haft áhrif í þá átt að halda verðhækkunum fasteigna í skefjum.

Meginhluti þess fólks, sem selur fasteignir, kaupir aðrar í staðinn. Verðbólga á fasteignamarkaði kemur því báðum til fjárhagslegs ávinnings, en hefur ómæld áhrif til örvunar almennrar þenslu í þjóðfélaginu. Má í framhaldi af þessu benda á, að verðhækkanir koma fasteignaeigendum lítt til góða, en það fólk, sem kaupir sínar fyrstu fasteignir, þarf að greiða fyrir þær verð sem er umfram kostnaðarverð. Markmiðið er að viðskiptavinir eigi kost á lögfræðilegum upplýsingum, aðstoð varðandi viðskiptin, sem þeir ákveða þó sjálfir, og vill hver sé réttur þeirra, kaupendur eigi aðgang að fasteignamati, teikningum og öðrum upplýsingum varðandi viðkomandi fasteign. Ef vel tekst til öðlast menn meiri vernd og hagkvæmari viðskipti en mögulegt virðist í hinni hörðu samkeppni og nánast óheilbrigðu viðskiptaháttum sem nú ríkja á þessum vettvangi.

Hér lýkur framsögu hv. 1. flm. þessa frv.. Guðrúnar Benediktsdóttur, og ég hef raunar litlu við þessi orð hennar að bæta. Ég bendi á að ekki er hugmyndin með þessum tillöguflutningi, að lagðar verði hömlur á slíka starfsemi almennt. Það er ekki heldur meiningin að setja niður íbúðarverð beinlínis með því að ætlast til að þeir, sem selja hjá Fasteignamiðlun ríkisins, fái lægra verð fyrir eignir sínar en aðrir. Hins vegar mætti með skipulagðri fasteignasölu af hálfu ríkisins ætla að seljendur þyrftu að greiða minna fyrir þá þjónustu en ella, miðað við ríkjandi form.

Ég vil svo, hæstv. forseti, leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og til félmn.