01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

311. mál, sjónvarp

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Vegna þess að það hefur nokkuð verið gagnrýnt að öllu meira fé hefur verið varið til litasjónvarpsins á þessu ári en áættað var, þá finnst mér rétt að gefa á því skýringar. Þær eru tvíþættar. Önnur er sú, að það var ákveðið að taka upp hækkað afnotagjald fyrir sjónvarpstæki og til þess að koma á móts við þá, sem áttu tækin, þótti rétt að bæta aðstöðuna til útsendingar og láta menn þannig fá nokkuð fyrir aukagjaldið. Hitt var það, að mönnum þótti hyggilegt, fyrst byrjað væri á litasjónvarpi á annað borð, að reynt væri að senda út sem mest af íslensku efni í lit. Áður var þetta þannig, að það var aðallega útlent efni sem var sent út í lit. En með þeim tækjum, sem nú hefur verið aflað, verður hægt að senda mjög mikið af íslensku efni út í lit, t.d. allt það sem fer fram í sjónvarpssal. Hefði þetta ekki verið gert, þá hefðu hv. alþm. aðeins verið sendir út í svarthvítu fyrir næstu kosningar, en nú verða þeir allir sendir út í lit. Ég vona að það verði litadýrð sem þeir vilja ekki missa af.