01.11.1977
Sameinað þing: 11. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (265)
312. mál, bifreiðahlunnindi ráðherra
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda var sérmeðferð á bifreiðum ráðh. að því er tekur til greiðslu aðflutningsgjalda ákveðin með lögum, sbr. 14. tölul. 3. gr. tollskrárlaga. Þessi ákvæði voru fyrst sett með tollskrárlögunum á árinu 1970, en hafa verið endursett síðan, síðast í árslok 1976.
Efnislega byggjast þessi ákvæði á bifreiðareglum frá 1970, sem settar voru þegar verið var að afnema bílaeign ýmissa ríkisstofnana til einkaafnota fyrir forstjóra stofnananna. Þá var ákveðið að ráðh. gætu fengið ríkisbifreiðar til afnota, en þá eingöngu opinberra nota. Kysu þeir það ekki ættu þeir kost á að fá keypta bifreið í upphafi ráðherraferils án greiðslu aðflutningsgjalda og söluskatts, en sú hefð hafði þá lengi gilt um bifreiðakaup ráðh. þegar þeir létu af embætti. Bifreiðin yrði þá notuð sem embættisbifreið ráðh. Jafnframt var gert ráð fyrir láni að tiltekinni fjárhæð til 10 ára með 5% vöxtum til bifreiðakaupanna. Frá upphafi var gert ráð fyrir að ríkið greiddi að fullu rekstrarkostnað ráðherrabifreiða. Í tíð fyrrv. ríkisstj. var ákveðið að ráðh. skuli heimilt að endurnýja bifreiðar sínar með sama hætti að því er varðar aðflutningsgjöld eftir þriggja ára samfellt starf og að sú heimild standi allt að einu ári eftir að ráðherradómi lýkur.
Svar við 2. lið fyrirspurnarinnar: Árið 1976 voru greidd laun til 8 bifreiðastjóra ráðh, auk afleysinga sem samtals námu 16 927 352 kr. Launin voru mjög mismunandi vegna mismikillar yfirvinnu, frá 1 567 000 kr. upp í 2 607 000 kr.
Svar við 3. lið: Starf bifreiðastjóranna felst í akstri og umsjón með bifreiðum ráðh. Að auki sinna þeir ýmsum sérstörfum og útréttingum í þágu rn. eftir því sem þörf krefur.
Ég vonast til að þessi svör mín megi verða til þess að upplýsa þá sem e.t.v. hafa haft um þessa hluti óljósar hugmyndir.