17.04.1978
Neðri deild: 77. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3513 í B-deild Alþingistíðinda. (2680)

246. mál, Seðlabanki Íslands

Guðlaugur Gíslason:

Virðulegi forseti. Ég tel mjög eðlilegt að frv. eins og hér liggur fyrir sé flutt hér á Alþ. og einnig að um það verði nokkrar umr., sérstaklega miðað við þá þróun sem orðið hefur í vaxtamálum að undanförnu undir handleiðslu Seðlabanka Íslands. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, hv. 4. þm. Reykn., fullyrti við umr., þegar þetta frv. var síðast rætt, að Seðlabankinn tæki aldrei svona ákvarðanir um vexti, eins og ég tel að hann hafi gert að undanförnu, án beins samráðs við ríkisstj. á hverjum tíma. Ég vil benda hv. formanni bankaráðs á að kynna sér umr. sem urðu á sumarþinginu 1974, þegar til umr. var frv. til laga um viðnám gegn verðbólgu. Þá komu þessi mál mjög til umræðu. Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir, að sú vaxtastefna, sem nú ríkir, er einvörðungu og einhliða tekin af stjórn Seðlabanka Íslands. Ég benti á það við þessar umr., að ég óttaðist mjög að sú vaxtabreyting og vaxtahækkun, sem gerð var um miðjan júlí 1974, mundi leiða til þess, að vextir á atvinnuvegina mundu vera orðnir mjög þungbærir þegar fram í sækti ef þeirri stefnu, sem þá var mörkuð, yrði framfylgt. Því miður hef ég orðið sannspár og kannske allt of sannspár um þetta efni, því að ég tel að þeir vextir, sem nú gilda hjá atvinnuvegunum og þá ekki síður hjá aðalútflutningsatvinnuvegi okkar, sjávarútveginum, séu á þá lund, að þannig verði ekki áfram haldið. Vextir eru nú, hinir almennustu vextir sem hjá mörgum fyrirtækjum eru yfirdráttarvextir af bankareikningum, komnir um og yfir 30%. Stofnvextirnir munu vera ákveðnir 25% af Seðlabanka, en þeir eru reiknaðir út í bankakerfinu miðað við hæsta flokk, eins og hann er í hverjum mánuði, og mun það yfirleitt vera um eða yfir 30%, sem sjávarútvegurinn og aðrir, sem á yfirdrætti þurfa að halda í bankakerfinu, verða að greiða fyrir það fjármagn. Ég held að það fari ekkert á milli mála, að slík vaxtabyrði hlýtur að kalla óhjákvæmilega á aukna verðbólgu vegna kannske nauðsynlegra gengisbreytinga, sem orðið hefur að gera, og einnig vegna þess að allur tilkostnaður við atvinnureksturinn er orðinn það hár, að með slíkri vaxtabyrði hlýtur það að auka mjög á verðbólguna. Ég held að um það þurfi ekki að deila og það fari ekkert á milli mála, að slíkir vextir hjá atvinnuvegunum hljóta að verka á þessa lund. Er þá sannarlega ekki náð þeim tilgangi, sem formaður bankaráðs var að ræða um þegar þetta frv. var síðast til umr., að höfuðnauðsyn væri að lækka verðbólguna. Ég tel að ákvörðun Seðlabankans í sambandi við vexti til atvinnuveganna verki alveg í þveröfuga átt og verki mjög til þess að auka á verðbólguhraðann. Nú eru allir sammála um að eðlilegt sé, miðað við þá verðbólgu sem hér hefur verið og enn þá ríkir hér, að tryggja sparifjáreigendum eftir einhverri leið sparifé þeirra. En stefnan í vaxtamálum, er að mínum dómi, eins og ég hef sagt áður, langt frá því að gera það og verkar í alveg öfuga átt.

Hv. 4. þm. Reykn. spurði, sem verður að telja eðlilegt, hvaða hugmyndir þm. hefðu þá um aðrar leiðir í sambandi við að tryggja sparifé almennings, ef það væri ekki gert með því að hækka vextina. Ég vil benda formanni bankaráðs á lög nr. 78 1966, um verðtryggingu fjárskuldbindinga. Þar er heimild til handa Seðlabankanum að verðtryggja fjárskuldbindingar, vissa flokka fjárskuldbindinga, sem þá gætu komið sparifjáreigendum til góða í auknu verðgildi þess fjár sem inni stendur í sparisjóðum og bankakerfinu á hverjum tíma. Ég er sannfærður um, ef þessi leið hefði verið farin 1974 þegar vextirnir voru hækkaðir meira en áður hafði þekkst, að vera mundi allt annað og betra ástand hjá atvinnuvegunum en nú er í sambandi við vaxtamálin. Ég tel að vextir til atvinnuveganna þurfi að vera eitthvað í samræmi við það sem þeir eru hjá öðrum viðskiptaþjóðum okkar og þeim aðilum sem við erum í samkeppni við, t. d. með útflutning sjávarafurða, og það hljóti að vera nær því að ná því marki að tryggja sparifé þeirra, sem það eiga í bankakerfinu, eftir annarri leið en vaxtahækkun, því að ekkert þarf að vera um það að ræða, að þegar verðbólgan er 30–40% er útilokað að setja vextina þannig á spariféð að sparifjáreigendur hafi tryggingu fyrir því, að sparifé þeirra rýrni ekki. Það hlýtur að verða að gerast eftir einhverjum öðrum leiðum, og í lögunum er heimild, eins og ég hef bent á, til þess að fara aðra leið. Á ég þar við að verðtryggja vissan hluta útlána, eins og lögin gera ráð fyrir að heimilt sé að gera, og mæta þannig rýrnun á því sparifé sem í bankakerfinu er.

Það er svo komið núna, eftir þeim upplýsingum sem ég hef og tel vera örugglega réttar, að frystiiðnaðurinn, ef maður tekur hann fyrir sérstaklega, greiddi á árinu 1977 frá 7.15% til 11% af framleiðsluverðmæti sínu í vexti. Í áætlun Þjóðhagsstofnunar í byrjun ársins 1977 var gengið út frá að vextir mundu það ár verða 3.98% af framleiðsluverðmæti, en reynslan varð sú, að þeir urðu frá 7.15% upp í 11%, og hafa þeir þó hækkað verulega síðan. Var mér tjáð af þeim aðila, sem ég fékk þessar upplýsingar hjá, að þetta mundi þó vera heldur í lægri skalanum af því sem almennt væri, a. m. k. hér á Suður- og Suðvesturlandi. Ef svo fer sem allt virðist benda til, að vextir hjá frystiiðnaðinum verði kannske allt upp í 10–15–16% á árinu 1978, þá held ég að ekki þurfi langar umr. um það, að gersamlega útilokað er að frystiiðnaðurinn geti staðið undir slíku. Ég tel því að þarna verði að verða á breyting, kerfisbreyting að því leyti, að fundin verði önnur leið til að mæta rýrnun á verðgildi sparifjár en sú að hækka vextina stöðugt, eins og gert hefur verið undanfarið. Ég held að sú leið hafi gengið sér alveg til húðar og þurfi ekki að reikna með að þannig verði haldið áfram, þegar við nú í dag sjáum fram á kannske milli 30 og 40% verðbólgu.

Bankamál hafa verið nokkuð mikið til umr. að undanförnu í sambandi við það frv. sem hv. 2. þm. Austurl. flutti og hefur verið rætt á nokkrum fundum. Hefur þar að sjálfsögðu verið rædd hugmynd sem áður hefur komið fram, hvort ekki mætti spara í bankakerfinu með því að sameina einhverjar bankastofnanir. Stjórn Seðlabankans hefur látið fjhn. Ed. Alþ. í té álit sitt í sambandi við frv. sem þar liggur og er stjfrv. og hæstv. viðskrh. flutti í sambandi við bankamálin. Ég verð að segja um þá skýrslu sem fjhn. Ed. fékk og síðan var birtur útdráttur úr í einu dagblaðanna í Reykjavík, Tímanum 21. mars, að sumar þær hugmyndir, sem þar koma fram, koma manni ákaflega einkennilega fyrir sjónir og virðast síður en svo stefna í þá átt, að þær séu nokkuð til bóta eða lagfæringar í sambandi við bankakerfið og rekstur bankanna. Það má vel vera að sameining tveggja banka — það hefur aðallega verið rætt um sameiningu Búnaðarbanka og Útvegsbanka — gæti haft einhvern sparnað í för með sér, en ég hygg að þegar til kastanna kemur yrði hann minni en menn gera sér í hugarlund. Það liggur alveg ljóst fyrir, að afgreiðslum mundi sameiginlega ekkert fækka. Viðskiptamönnum mundi ekkert fækka og fyrirgreiðsla til þess hóps viðskiptamanna, sem nú skiptir við þessa banka sitt í hvoru lagi, mundi lítið spara þótt hún færi fram í einum banka, og hvorugur þessara banka er þess umkominn að yfirtaka reksturinn alveg. Báðar stofnanirnar eiga að vera í rekstri, hér í höfuðstaðnum a. m. k., í þeim byggingum sem þær nú eru starfandi í. Vel má vera að hægt væri að sameina útibú þessara tveggja stofnana einhvers staðar um landið, ef í slíka heildarsameiningu væri farið, og gæti það e. t. v. haft einhvern sparnað í för með sér, en þó ekki þannig, að það skipti í sjálfu sér neinu máli.

En ef rætt er um sparnað í bankakerfinu, þá held ég að einnig sé hægt að staldra við þá hugmynd, hvort ekki sé mestur sparnaður í því að leggja Seðlabankann niður í því formi, sem hann er nú í, og fela þau störf, sem honum voru á sínum tíma falin með lögum, Landsbankanum annars vegar að því er vissan þátt í starfi Seðlabankans áhrærir og hins vegar þá e. t. v. Þjóðhagsstofnun eða einhverri annarri stofnun sem nú fer með áætlanagerðir fyrir stjórnvöld. Ég verð að segja, að í 3. gr. laga um Seðlabankann sé ég ekkert það ákvæði um hlutverk hans, sem ekki mætti fela annars vegar Landsbankanum og hins vegar þá Þjóðhagsstofnun og e. t. v. einhverjum fleiri ríkisstofnunum. Ég segi þetta þegar ég tala um sparnað, vegna þess að svo virðist að rekstrarkostnaður Seðlabankans sé kominn það hátt, að það gæti verið um verulegan sparnað í þessu sambandi að ræða ef inn á slíkt yrði farið. Ég vil benda á að samkv. skýrslu Seðlabankans nam rekstrarkostnaður hans 263 millj. árið 1975 og 383 millj. árið 1976 — upplýsingar um reksturinn 1971 eru ekki fyrir hendi — og á sama tíma tók bankinn til sín hagnað til ráðstöfunar, eins og segir í skýrslu hans, sem þessi tvö ár nam tæpum 700 millj. kr. Það vill svo einkennilega til, og samkv. skýrslum Seðlabankans kemur það fram, að eftir að vaxtabreytingin var gerð 1974 verður stökkbreyting í afkomu Seðlabankans. Hann hefur í hagnað til ráðstöfunar 36 millj. 1973, en er kominn upp í 378 millj. 1975, þannig að hagnaður hans hefur á þessum tveimur árum tífaldast. Ég skal ekki um það dæma, hvort þetta er eðlileg þróun mála, en þetta gefur nokkra innsýn í það, að e. t. v. er eðlilegt að ráðamenn Seðlabankans vilji halda sig að þeirri vaxtastefnu, sem nú er, af því að alveg er ljóst af reikningum og skýrslum bankans, að sú stofnun hefur hagnast mjög mikið og þá auðvitað á kostnað þeirra, sem vextina greiða, og greiða þar atvinnuvegirnir sennilega langmest.

Það er annað einnig í sambandi við þá vaxtastefnu, sem nú ríkir hér og Seðlabankinn ber að mínum dómi fyrst og fremst ábyrgð á, því að þetta er hans ákvörðun sem auðvitað hefur mjög mikil áhrif á verðbólguna, en það er vaxtastefnan gagnvart þeim aðilum sem í húsbyggingum standa. Mér er tjáð og það liggur nokkurn veginn ljóst fyrir, að aðili sem er að kaupa íbúð nú eða byggja íbúð, sé kannske kominn upp í 80–100 þús. kr. vaxtagreiðslur á mánuði. Það fer að nálgast að þær nemi orðið kaupi þeirra sem eignast nýja íbúð eða nýlegar íbúðir og í lægri kauptöxtum eru, bæði innan Alþýðusambandsins og hjá því opinbera. Ég hygg að öllum hljóti að vera ljóst, að þannig er ekki hægt að fara að. Þetta hlýtur að kalla fram óeðlilegar kröfur um kauphækkanir, því að auðvitað vill fólk halda sínu þegar það er búið að komast í það að festa sér íbúð, hvort sem það er með nýbyggingu eða kaupum.

Eins og ég sagði áðan, sýnist mér að hlutverk Seðlabankans sé þess eðlis, að ef í fullri alvöru á að fara að ræða sparnað í bankakerfinu komi sá banki einnig mjög til álita, hvort ekki sé hægt að breyta þar um og fela öðrum það hlutverk, sem hann nú fer með í efnahagsmálunum, og spara þannig stórfé. Samkv. skýrslum bankans og reikningum eru eignir hans umfram skuldbindingar í árslok 1976 orðnar 1267 millj. kr. og hefur þessi eignaaukning orðið langsamlega mest á síðustu 2–3 árum. Þegar skýrslan kemur fyrir árið 1977, þá hygg ég að eignir fari að verða nokkuð yfir 1.5 milljarð. Með tilliti til þess, að þetta hefur auðvitað dregið fé til sin, bæði frá atvinnuvegunum og almenningi, auk þess sem á þessum þremur árum mun rekstrarkostnaður bankans nálgast 1 milljarð, þá held ég hljóti að mega skoða, hvort ekki er þarna breytinga þörf. Og kannske er þetta sú breyting sem mest gæti sparað þegar rætt er um sparnað í bankakerfinu.

Ég vil endurtaka, að ég tel að hér verði að verða stefnubreyting á, við séum að sigla þá leið, sem hljóti að leiða til ófarnaðar ef áfram á að halda þeirri stefnu sem verið hefur hjá Seðlabankanum, að mæta verðbólgunni með hækkun vaxta, bæði hjá sparifjáreigendum og þeim sem þurfa að fá lánsfé í sambandi við atvinnurekstur eða annað. Og ég sé ekki betur, eins og ég hef sagt, en það sé heimild í gildandi lögum til þess að fara aðrar leiðir, þar sem hægt væri að mæta rýrnun sparifjár með því að yfirfæra það þá frekar á þá, sem fjárfestingarlán fá og óneitanlega hljóta að hagnast á því að taka lán án vísitölubindingar eins og nú er. Jafnvel þó þeir þurfi að borga háa vexti, þá hljóta þeir að hagnast á því miðað við þá verðbólgu sem við höfum búið við og búum við enn í dag, en eðlilegt er að mínum dómi að þeir, sem í þá aðstöðu komast og í þeirri aðstöðu eru, greiði eða verði látnir endurgreiða lán sín að hluta til a. m. k. með vísitölubótum, þannig að þeir standi að sínum hluta undir því sem bæta þarf sparifjáreigendum fyrir sparifé þeirra í bankakerfinu.