17.04.1978
Neðri deild: 77. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3532 í B-deild Alþingistíðinda. (2687)
202. mál, embættisgengi kennara og skólastjóra
Frsm. (Ingvar Gíslason) :
Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um þetta frv. um embættisgengi kennara og skólastjóra. N. varð sammála um að leggja til að frv. verði samþykkt. þó með þeirri breyt. sem segir um á þskj. 663. Sú breyt. er við 14. gr. frv„ um það að breyta skuli þannig að cand. mag.-próf hafi vissan forgang fram yfir B. A.-próf. Okkur virtist í n., að þessi próf, cand. mag.- og B. A.- próf, verði ekki ævinlega lögð að jöfnu, a. m. k. ekki í öllum greinum og sérstaklega hvað varðar þekkingarkröfur í íslenskum fræðum. Þess vegna varð n. sammála um að rétt væri að breyta frv. að þessu leyti eins og segir á þskj. 563. Að öðru leyti leggur n. til að frv. verði samþ. óbreytt.